Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 16
22. MAÍ 2020 DV16 EYJAN Þ essi þáttur blaðsins er helgaður pólitík og pólitíkin er víðar en í þingsölum. Hún birtist líka í verkalýðshreyfingunni sem er sterkur valdaaðili og óhjá- kvæmilega þarf að taka tillit til. Stéttarfélögum er ætlað mikilsvert hlutverk að lögum, sér í lagi sem viðsemjandi um kjör launafólks. Umfang verkalýðshreyfingarinnar er mikið og til marks um það má nefna að samanlagt bók- fært eigið fé tveggja stærstu stéttarfélaga landsins, VR og Eflingar, nam rúmum 25 millj- örðum króna í árslok 2018. Friður og sátt í þjóðfélaginu Á eftirstríðsárunum runnu upp nýir tímar í samfélögum Vestur-Evrópu. Borgaralegu öflin færðust nær þeim rót- tæku. Hægrimenn sættust á víðtækan, opinberan rekstur og stóraukin útgjöld til félags- mála, á sama tíma og vinstri- menn höfnuðu frekari þjóð- nýtingu og vildu treysta að nokkru marki á frjálst fram- tak. Viðreisnarstjórnin, sam- stjórn Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks, sem sat að völdum 1959–1971, var tímanna tákn. Á þessu tímaskeiði sáttar í vestrænum samfélögum hefur orðið lífskjarabylting, líka meðal aldraðra. Með sam- stilltu átaki verkalýðshreyf- ingar og vinnuveitenda var hér á landi komið á fót einu öflugasta lífeyriskerfi heims. Þar hefur forystufólk stéttar- félaga og atvinnurekendur bundist traustum böndum, við ávöxtun fjármuna sjóðfélaga, og gagnkvæmur skilningur vaxið á því að öflugu félags- legu kerfi verður ekki við- haldið, nema með þróttmiklu atvinnulífi. Beinir hagsmunir alls almennings Með íslenska lífeyrissjóða- kerfinu má segja að hér á landi hafi myndast það sem sem fyrir mörgum áratugum voru kölluð „alþýðuvöld í at- vinnulífinu“, en fyrir forgöngu Guðmundar H. Garðarssonar og fleiri forystumanna Líf- eyrissjóðs verslunarmanna, var lífeyrissjóðum gert kleift að fjárfesta í hlutabréfum. Það var óumdeilanlega mikið heillaskref og þegar er litið er til áranna 1980 til 2015 kemur í ljós að raunávöxtun sjóðsins í íslenskum hlutabréfum var að meðaltali 10,7 prósent, sem er mun hærra en af öðrum fjár- festingum. Hér meðfylgjandi er tafla sem sýnir eignarhluti Líf- eyrissjóðs verslunarmanna og Gildis í nokkrum félögum í Kauphöllinni. Verkalýðs- hreyfingin skipar helming stjórnarmanna í báðum þess- um sjóðum og sömu sögu er að segja til dæmis um Lífeyris- sjóð ríkisstarfsmanna, Birtu, Brú og Stapa, sem líka eru umsvifamiklir á hlutabréfa- markaði. Stóryrði gagnast engum Á umliðnum dögum hefur Icelandair, eitt mikilvægasta fyrirtæki landsins, róið lífróð- ur og við öllum blasir að draga þarf stórlega úr kostnaði, svo hægt verði að bjarga félag- inu. Bogi Nils Bogason, for- stjóri þess, hefur ekki dregið neina fjöður yfir það að launa- kostnaður flugstétta vegi þar þyngst og í innanhússskeyti til starfsfólks – sem Ríkisút- varpið sagði frá – kom fram að á sama tíma og unnið væri nótt og dag við að bjarga fyr- irtækinu, fyndi hann að helsta fyrirstaðan værum „við sjálf, starfsfólkið sem starfar hjá fyrirtækinu“. Drífa Snædal, forseti Alþýðusambandsins, sagði þessar fullyrðingar „ein- staklega ósvífnar“. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, lét einnig í sér heyra og kvaðst vera orðinn „þreyttur á því að alltaf skuli starfsfólkið vera aðalvandamálið þegar illa gengur, þegar annað er augljóst“. Digurbarkalegar yfirlýs- ingar koma engum að gagni þegar svo miklir þjóðhagsleg- ir hagsmunir eru í húfi. Öllum er ljóst að draga þarf verulega úr kostnaði eigi Icelandair að lifa af. Lífeyrissjóðirnir komu til bjargar Hið opinbera getur ekki leitt okkur úr þeirri djúpu kreppu sem þjóðfélagið stendur frammi fyrir. Ríkisvaldið ráðstafar eingöngu þeim fjár- munum sem atvinnulífið hefur látið því í té með sköttum. Eina bjargræðið er arðvænleg fyrirtæki. Icelandair hefur verið þar í lykilhlutverki og rétt að rifja upp að það voru lífeyrissjóðir landsmanna sem endurreistu það í kjölfar bankahrunsins. Sjóðirnir létu þá til sín taka með myndarlegum hætti og stofnuðu Framtakssjóð Íslands sem hafði grundvallarþýðingu við uppbyggingu atvinnulífsins í kjölfar bankahrunsins. Ice- landair hafði lent í eignarhaldi banka, sem ekki gat gengið. Framtakssjóðurinn hafði afl til að koma félaginu á rétta braut, studdur af Lífeyrissjóði verslunarmanna og Lífeyris- sjóði starfsmanna ríkisins. Framtakssjóðurinn hagnaðist um alls 47,7 milljarða króna, en það var hvorki meira né minna en 110 prósenta ávöxtun á stuttum líftíma sjóðsins. Í nú- verandi ástandi í þjóðfélaginu vantar tilfinnanlega öflugan fjárfestingasjóð af þessu tagi. Að verja störfin Þjóðfélagið er ein órofa heild og hagsmunir rækilega sam- tvinnaðir, sér í lagi í ljósi beinna ítaka sjóða launafólks í stærstu fyrirtækjum lands- ins, og þegar eitt mikilvægasta fyrirtæki landsins rær lífróð- ur, skiptir máli að talsmenn launafólks leiti allra leiða til verja tilverugrundvöll þess. Alvöruforystufólk verður að geta hafið sig yfir sífellt karp á götuhornum um allt og ekki neitt. n GÍFURYRÐI GAGNAST ENGUM Á ÞINGPÖLLUM Björn Jón Bragason eyjan@eyjan.is Rétt er að líf- eyrissjóðir landsmanna kanni stofnun nýs Framtaks- sjóðs Íslands. Stærstu eigendur Icelandair Par Investment 12,50% Lífeyrissjóður verslunarmanna 11,81% Gildi lífeyrissjóður 7,24% Birta lífeyrissjóður 7,07% Lífeyrissj. starfsm. rík. A-deild 6,24% HEIMILD: HEIMASÍÐA ICELANDAIR Hlutur Lífeyrissjóðs verslunarmanna og Gildis í fyrirtækjum í Kauphöll Íslands Lífeyrissjóður verslunarmanna Gildi lífeyrissjóður Marel 8,20% 4,98% Arion banki 5,33% 9,14% Hagar 10,05% 14,56% Síminn 12,11% 9,29% Festi 11,29% 9,81% Reitir 13,11% 14,84% Reginn 10,14% 8,66% Sjóvá 8,57% 9,49% Eimskip 14,86% 13,43% TM 9,58% 9,25% VÍS 8,90% 7,78% Sýn 10,74% 13,63% HEIMILD: TÍMARITIÐ FJÁRMÁL OG ÁVÖXTUN Lykiltölur úr rekstri og efnahag tveggja stærstu stéttarfélaganna Tekjur á árinu 2018 Bókfært eigið fé í árslok 2018 VR 375 m. kr. 12,3 milljarðar kr. Efling 2,4 milljarðar kr.* 13 milljarðar kr. *Aðeins tekjur af iðgjöldum. HEIMILD: ÁRSSKÝRSLUR VR OG EFLINGAR Þegar eitt mikilvægasta fyrirtæki landsins rær lífróður skiptir máli að forysta launafólks leiti allra leiða til verja tilverugrundvöll fyrirtækisins. MYND/VILHELM GUNNARSSON

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.