Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 40
28 FÓKUS 22. MAÍ 2020 DV Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi með meiru, hefur gengið til liðs við DV og mun svara spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í nýju Fjölskylduhorni. Þessa vikuna svarar Kristín spurningu um stjúptengsl, en þau geta oft verið erfið bæði börnum og foreldrum. ÉG ÞARF AÐ BIÐJA HANA UM AÐ „PASSA” BÖRNIN OKKAR Stjúphlutverkið er ekki jafn skýrt og margir stjúpforeldr- ar upplifa fyrir vikið að þeir séu vanmetnir. B lessuð, Kristín. Þannig er mál með vexti að ég er búin að vera í sam- bandi við kærustuna mína í nokkur ár og við búum sam- an. Ég á barn úr fyrra sam- bandi sem ég er með aðra hvora viku. Kærastan mín á hins vegar erfitt með að vera stjúpmamma. Ég þarf að biðja hana um að „passa“ ef ég þarf að vinna kvöld- vaktir, eða ef ég vil skjótast eitthvað frá, jafnvel þó hún sé ekki með nein plön. Jafn- vel hef ég oft þurft að biðja foreldra mína um pössun af því að kærastan mín kærir sig ekki um að „passa“, jafn- vel þó hún sé bara að fara að vera heima. En það eru liðin þónokkur ár sem við höfum verið saman og nú erum við farin að huga að því að eignast annað barn og ég er hræddur um að dóttir mín eigi eftir að verða miður sín þegar hún sér kærustu mína vera mömmu fyrir systk- ini sitt, en bara einhvers konar skemmtilega frænku fyrir sig. Hvernig er hægt að tækla þetta? Blessaður Takk fyrir spurninguna. Við förum í svo mörg hlutverk í dagsins önn, en það er ólíkt hvernig við veljum að tækla þau. Það sem þér þykir eðli- legt í stjúpforeldrahlutverki kann kærustunni þinni að þykja óþægilegt eða erfitt. Mögulega leggið þið mismun- andi merkingu í það hvert hlutverk stjúpmóður er og til þess að koma í veg fyrir togstreitu gæti verið ráð að taka samtalið um hvernig þið viljið hátta þessu. Í guðs bænum ekki panikka Hefur þú spurt kærustuna þína hvernig henni líður sem stjúpmóður? Hefur hún sjálf reynslu af stjúpforeldrum? Hvar mótuðust hugmyndir ykkar um það hvað góð stjúp- móðir gerir? Það mun kannski koma þér á óvart hvað hugmyndir ykkar og reynsla eru ólík í þessum efnum, en í guðs bænum ekki pan ikka. Þið getið lært hvort af öðru og samtalið getur skapað vett- vang til þess að koma ykkur saman um hvernig þið viljið gera þetta. Samningar og samningafundir Þegar pör byrja saman er al- gengt að báðir aðilar séu með ákveðnar hugmyndir í kollin- um, um það hvernig þau vilja haga framtíðinni. Það sem þó gleymist oftar en fólk grunar, er að bera þessar hugmyndir undir nýja kærastann/kær- ustuna. Við erum með samninga í kollinum um að hinn aðilinn eigi að „passa“ stjúpdóttur sína og elda læri á sunnu- dögum, en samningurinn var aldrei borinn undir alla aðila samningsins og undir hann var aldrei kvittað. Þegar það kemur svo í ljós að ákveðnir liðir samningsins voru ekki samþykktir, makinn er vegan og kann ekki að elda læri, getur það valdið vonbrigðum, sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með samninga- fundi. Ég veit að þetta hljómar þurrt, formlegt, ópersónulegt og leiðinlegt, en punkturinn er þessi: Gott getur reynst að bera saman bækur sínar um hvernig þið viljið hátta mikil- vægum þáttum í lífi ykkar og barnanna ykkar, áður en þið ákveðið innra með ykkur hvernig þetta eigi að vera. Stjúptengsl eru ósýnileg Þegar rætt er um „stjúp- blindu“, er átt við að stjúp- tengsl eru ósýnileg á öllum svið um samfélagsins. Hlut- verk blóðforeldra er miklu skýrara og um það er skrifað í lög, Biblíuna, lífsleiknibæk- ur og víðar. Stjúphlutverkið er ekki jafn skýrt og margir stjúpforeldr- ar upplifa fyrir vikið að þeir séu vanmetnir, eða ofmetnir, og að staða þeirra sé annað- hvort tekin sem sjálfsögð, eða að krafta þeirra sé ekki óskað við ákveðnar aðstæður. Það er erfitt að finna jafnvægið í tengslum við hvenær stjúp- foreldrar mega skipta sér af MYND/GETTY og hvenær ekki, hvenær þeir mega taka ábyrgð og hvenær það er óæskilegt. Er það sjálfsagt að stjúp- foreldri „passi“ stjúpbarnið sitt? Ábyrgðin á barninu er þín og þó þú þurfir stundum að setja barnið í pössun, þá má kærastan þín velja að taka ekki þá ábyrgð. Að sjálf- sögðu getur kærastan þín óskað eftir því að taka aukna ábyrgð með tímanum en það er hennar val, ekki skylda. Ef þið, aftur á móti, eignist barn saman, þá er ábyrgðin meira sameiginleg og þið þurfið að koma ykkur saman um hver situr yfir barninu þegar þið getið ekki gert það sjálf. Líttu á þetta sem tækifæri Gagnvart dóttur þinni er svo um að gera að útskýra hvern- ig þið ætlið að hátta stjúp- tengslum í ykkar fjölskyldu. Fyrirsjáanleiki er alltaf góður fyrir börn, enda eykur óvissa á kvíða. Að sama skapi er mikilvægt fyrir börn að vita hver ber ábyrgð á þeim og til hvers þau geta leitað. Þá hefur það sýnt sig, að því meiri samstaða sem er meðal foreldra, því betra er það fyrir barnið. Þið eruð feðgin, heima hjá ykkur getur þú verið foreldri og kærastan þín getur leikið hlutverk skemmtilegu frænk- unnar, eins og þú orðar það. Þið getið líka haft foreldra- kerfi þar sem þú og kærastan þín eruð foreldrar á heimili ykkar feðgina. En til þess að það gangi upp þurfið þið að vera samtaka með það og skilgreina hvað felst í ábyrgð foreldranna. Prófaðu að líta á þetta allt sem tækifæri, tækifæri til samtals við kærustuna þína, til samningsgerðar um fram- tíðina, til þess að skýra út fyrir dóttur þinni og undir- búa ykkur litlu fjölskylduna undir mögulegan, nýjan full- trúa. Það gæti orðið bæði spennandi og skemmtilegt. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.