Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Síða 23
H úsasmíðin er í fararbroddi þegar kemur að íslenskri framleiðslu heilsárshúsa sem eru í senn falleg, vönduð, traust og standast íslenskar aðstæður, veður og vinda. „Fullsamsettu húsin frá Húseiningu eru alfarið byggð innanhúss og þegar þau eru tilbúin til afhendingar eru þau hífð upp á sérútbúinn flutningavagn inni í verk- smiðjunni og flutt á byggingarstað. Kaupandinn getur svo flutt inn 2-4 dögum eftir að við slökum húsinu á sökklana. Húseining framleiðir einn- ig húseiningar fyrir allar stærðir ein- býlishúsa sem og sumarhús og fást einingarnar afhentar við verksmiðju- dyr. Hjá okkur færðu allt á einum stað, því við framleiðum einnig sökklana undir húsin. Það besta við þetta er að verðið kemur þægilega á óvart,“ segir Kjartan Ragnarsson, sölu- og markaðsstjóri Húseiningar. Verksmiðja Húseiningar að Vogum er einstök á landsvísu og býður upp á bestu aðstæður sem völ er á til fram- leiðslu tilbúinna húsa innandyra. „Við getum framleitt þar allt að 120 fer- metra einbýlishús/sumarhús. Ef um parhús er að ræða eru þau framleidd sem tvö hús og koma saman á sökkl- unum þannig að bílageymslurnar mætast og mynda eina heild, eða samtals 240 fermetra parhús. Húsin afhendast fullbúin með öllum inn- réttingum, heimilis- og hreinlætis- tækjum, gólfefnum, rafmagni, hita- kerfi og vatnskerfi. Aldrei fyrr hefur verið boðið upp á slíka möguleika hér á landi í svo stórum húsum.“ Það eru fjórir lykilþættir þegar kemur að kostum þess að framleiða fullbúið hús í verksmiðju, tilbúið til flutnings: 1. Húsin eru framleidd við bestu að- stæður, sérstaklega með tilliti til veðurs. 2. Í byggingarferlinu fer ekki tími til spillis í ferðir starfsmanna til og frá byggingarstað. 3. Hús kemst fyrr í notkun hjá kaupanda, því uppsetningartími er mjög stuttur. 4. Þetta skapar betra hús og mjög hagstætt verð. Smáhýsi, minni og stærri Smáhýsin frá Húseiningu eru frábær lausn fyrir þá sem vilja koma sér upp dásamlegum griðastað í náttúrunni, eða vilja auka gistimöguleika við núverandi sumarbústaði. Um er að ræða annars vegar vönduð, fullei- nöngruð 14,99 til 17 fermetra hús, með baðherbergi og forsteyptum sökkulundirstöðum. Einnig er um að ræða 24,74 til 39,9 fermetra hús,, með 35 fermetra verönd. Húsin eru af- greidd frá verksmiðju fullsamsett. Sumarhús í einingum Húseining býður upp á 65 til 111 fer- metra sumarhús, sem fást afhent í einingum við verksmiðjudyr. Ein- ingarnar eru klæddar láréttri báru og eru húsin afar fljótreist. Einingar koma með gluggum og hurðum, full- glerjuðum. Þakvirki, þakkantur, allar festingar fyrir reisingu, einangrun rakasperra og lagnagrind fylgja, ásamt öllum efnispakka fyrir alla milliveggi. Smart einbýli minni og stærri Samsettu Smart einbýlin frá Húsein- ingu koma í tveimur stærðum. Ann- ars vegar þriggja herbergja 73 fer- metra hús og hins vegar er fjögurra herbergja 87,5 fermetra hús. Í þeim eru tvö til þrjú svefnherbergi, eldhús, bað og stofa. Húsin koma fullsam- sett frá verksmiðju með vönduðum innréttingum. Báðar gerðir eru með hita í gólfi, forsteyptum sökkulundir- stöðum og með 20 fermetra verönd með heitum potti. Einbýlishús í einingum Húseining framleiðir einnig húsein- ingar fyrir allar stærðir einbýlishúsa sem afgreiddar eru við verksmiðju- dyr. Einingar koma með gluggum og hurðum, fullglerjuðum. Þakvirki, þakkantur, allar festingar fyrir reis- ingu, einangrun rakasperra og lagna- grind fylgja, ásamt öllum efnispakka fyrir alla milliveggi. Einingarnar eru klæddar láréttri báru og eru húsin afar fljótreist. Einnig eru einingar til afstúkunar á bílageymslu og bruna- hurð milli bílageymslu og aðalrýmis, auk bílskúrshurðar með járnum. Láttu drauminn verða að veruleika með húsi frá Húseiningu. „Verðið er ótrúlega gott því hagræðing við smíðarnar er mikil. Við vöndum til allra verka og útkoman er ómótstæði- leg í nýju, sterku og fallegu einbýli. Við bjóðum áhugasama kaupendur velkomna í heimsókn í verksmiðju Húseiningar í Vogum.“ n Hlynur Sigursveinsson framkvæmdastjóri Húseiningar Igor Bezenar verksmiðjustjóri Húseiningar HÚSEINING ER FRUMKVÖÐULL Í TILBÚNUM HÚSUM Á ÍSLANDI Húsasmíði Húseiningar markar tímamót á íslenskum fasteignamarkaði og framleiðir fyrirtækið meðal annars glæsileg einbýlis- og sumarhús sem eru afhent fullbúin. Húseining ehf. er í Hraunholti 1, 190 Vogum. Sími 770-5144. Nánari upplýsingar á huseining.is og á netfanginu kjartan@huseining.is. Húseining framleiðir ýmsar gerðir af heimilum og sumarhúsum. MYNDIR/AÐSENDAR Kjartan Ragnarsson, sölu- og markaðsstjóri Húseiningar. MYND/ERNIR SUMARHÚS KYNNING SÉRBLAÐ 5 DV 22. MAÍ 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.