Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 32
Linda Björk Ólafsdóttir var tvítug þegar hún ákvað að sækja um inn- göngu í Lögregluskólann. Í þá daga voru hæðartakmarkanir og þótti Linda aðeins of lág- vaxin og komst því ekki inn í skólann. En árið 2006 sótti hún um starf sem afleysinga- lögreglumaður, þrátt fyrir að hafa gefið starfið upp á bátinn mörgum árum áður og vildi láta á það reyna aftur. Linda var ráðin, ílengdist og þótti starfið gefandi. Í kjölfarið fór hún í Lögregluskólann. Að loknu námi fékk hún starf hjá Lögreglunni á Suðurnesjum. Linda var því nýútskrifuð úr Lögregluskól- anum þegar hún var á vakt í Grindavík. Á þessum tíma var lögreglustöð í Grindavík, en þar var ekki sólarhrings- vakt. Linda og starfsfélagi henn- ar voru við eftirlit þegar til- kynning barst um að þykk- an reyk legði frá íbúð þar skammt frá. Linda og félagi hennar fóru á vettvang og sáu reykjarmökk koma frá íbúð- inni og fundu mikla bruna- lykt. Þau bönkuðu og hringdu dyrabjöllunni en fengu engin svör. Þau ganga aftur fyrir húsið og í gegnum glugga sér Linda að þar liggur maður hreyf- ingarlaus í sófa. Hann sýnir engin viðbrögð og reyna þau að banka á svalahurð og glugga og kalla inn til hans. Nágrannar mannsins eru einnig á vettvangi og samein- ast allir um að banka, kalla og athuga hvort einhvers staðar sé gluggi opinn, svo hægt sé að komast inn. Svo er ekki og félagi Lindu fer aftur að framhlið hússins til að kanna stöðu mála þar. Engin viðbrögð Maðurinn sýnir engin við- brögð og biður Linda einn ná- grannann að sækja verkfæri sem nýta megi til að spenna upp hurðina. Þau ná svo í sameiningu að spenna hana upp. Mikinn reyk leggur út um dyrnar og Linda tekur ákvörðun um að fara inn í íbúðina. Reykurinn umlykur allt en Linda leggst á gólfið, þreifar sig áfram og skríður í átt að sófanum. Meðan á þessu stendur magnast reykurinn, en Linda dregur peysukragann fyrir vit sín til að skýla sér sem mest fyrir reyknum. Linda kemst að sófanum og þreifar eftir fótum mannsins. Hún reynir að vekja hann, en fær engin viðbrögð. Maðurinn er með- vitundarlaus. Þarna tekur Linda ákvörð- un um að standa upp, hún nær að grípa utan um manninn, sem var töluvert stærri og þyngri en hún sjálf, og byrjar að draga hann í átt að dyr- unum. Við þetta missir hún peysukragann frá andlitinu og er því alveg berskjölduð fyrir reyknum. Maðurinn bregst ekkert við í fyrstu en þegar Linda nálg- ast svaladyrnar rankar hann við sér. Hann byrjar að berj- ast um og slá frá sér. Linda út- skýrir fyrir honum að hún sé lögreglumaður og sé að reyna að koma honum út úr íbúð- inni. Maðurinn heldur áfram að berjast um, en á einhvern ótrúlegan hátt nær Linda að koma honum út úr íbúðinni. Á sömu stundu kemur félagi Lindu og hjálpar henni að draga manninn í öruggt skjól. Hann rankar aðeins betur við sér og Linda og félagi hennar fá þær upplýsingar frá honum að hann hafi verið einn í íbúð- inni. Hikaði ekki Spurð hvort hik hefði komið á hana áður en hún óð inn í íbúðina, svaraði Linda því neitandi. Hún mat aðstæður þannig að bregðast þyrfti skjótt við því að reykurinn magnaðist með hverri mín- útunni og varð svartari og svartari. Það tekur ákveð- inn tíma fyrir slökkvilið að komast á vettvang og ekki er hægt að spá fyrir um hvert ástand mannsins hefði verið þá. Maðurinn hafði verið tölu- vert lengi inni í reykfylltri íbúðinni og hafði Linda mest- ar áhyggjur af reykeitrun. Í þokkabót sýndi hann engin viðbrögð og Linda sá að það var enn súrefni niður með gólfinu svo að mögulegt var að komast að honum. Þegar hún tók ákvörðunina um að fara inn, vissi hún að þetta væri mínútuspursmál fyrir manninn. Linda hafði hlotið góða þjálfun í Lög- regluskólanum, en þar hafði hún æft reykköfun og notkun reykköfunarbúnaðar hjá slökkviliðinu. Slökkvilið var á leiðinni frá Keflavík en Linda gat ekki hugsað sér að bíða, enda mikilvægt að ná mann- inum út sem fyrst. Linda fann ekki fyrir ótta er hún fór inn í íbúðina, hún bara fór inn, staðráðin í að ná manninum út. Maðurinn var svo fluttur til innlagnar á sjúkrahús með reykeitrun. Linda fékk sjálf reykeitrun og fann vel fyrir því í nokkra daga eftir atvikið. Hún áttaði sig á því eftir á að hún hefði fengið reykeitrun, en fór ekki til aðhlynningar á sjúkrahús eftir atvikið. Hún fann fyrir andþyngslum í kjölfarið og man vel eftir hversu sterk reykjarlyktin var í fötunum hennar. Hún var með tækja- belti og minnist þess hversu lengi lyktin sat föst í beltinu. Elskar starfið Þegar ég spurði Lindu út í til- finningar hennar eftir þetta sagðist hún hafa verið stolt, og ætti hún svo sannarlega að vera það, enda bjargaði hún að öllum líkindum mannslífi. Hún talaði um að þau hefðu verið á réttum stað á réttum tíma og að þetta hefði greini- lega átt að fara svona. Linda sýndi hugrekki og þor, enda var meginástæða þess að hún gekk til liðs við lögregluna sú að hana langaði að hjálpa öðrum og gefa af sér. Linda hafði það líka með sér að hafa verið viðloðandi líkamsræktargeirann lengi og meðal annars þjálfað Slökkvi- lið Reykjavíkur á sínum tíma. Í samtali mínu við Lindu skein í gegn hversu mikið hún naut þess að starfa hjá lögreglunni og hvað henni þykir vænt um þessa starfs- stétt. Linda slasaðist illa við lögreglustörf árið 2011 og hefur ekki getað sinnt starfi sínu síðan vegna þess. Linda er greinilega mjög ákveðin og dugleg kona, hún sagði mér að nú væri þetta hennar verk- efni, að huga að heilsunni og að hana langaði að fara aftur til starfa. Hún var einmitt í göngutúr þegar við spjöll- uðum saman. Ég held að hverjum sem lesi þessa grein sé það ljóst að Linda Björk Ólafsdóttir er hörkukona sem brást þarna við af mikilli fórnfýsi og óeigingirni. Lögreglumenn og -konur eru þjóðfélagi okkar gífurlega mikilvæg og ætla ég að minna á að lögreglu- menn hafa verið án kjara- samnings í 13 mánuði. Við sem þjóðfélag ættum öll að leggjast á eitt í stuðningi við þessa mikilvægu stétt. n Hlaðvarpið Háski kemur út á mánudögum á vef DV. Lumar þú á Lífsháskasögu? Sendu okkur endi- lega ábendingu á haskipodcast@gmail.com UNG LÖGREGLUKONA BJARGAR MANNI ÚR BRENNANDI HÚSI Linda Björk Ólafsdóttir var nýútskrifuð úr Lögregluskóla ríkisins er hún bjargaði lífi manns. Kviknað hafði í íbúð mannsins og lá hann meðvitundarlaus þar inni. Linda Björk þótti of lágvaxin fyrir Lögregluskólann þegar hún sótti fyrst um. MYND/VALLI LÍFSHÁSKI Unnur Regína Gunnarsdóttir 20 FÓKUS 22. MAÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.