Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR 22 MAÍ 2020 DV Umsækjendur um leigu á tjaldsvæðinu á Borg í Grímsnesi í ársbyrjun voru, auk Guðmundar Jóns- sonar, hjónin Skúli Baldurs- son og Ingunn Magnúsdóttir fyrir hönd fjölskyldufyrirtæk- isins Lynggarða ehf. og Magn- ús Ingberg Jónsson verktaki, sem nýverið dró til baka fram- boð sitt til embættis forseta Íslands. Engar hæfniskröfur í fyrri auglýsingu Eins og DV greindi frá var Guðm undur Jónsson, fyrr- verandi forstöðumaður Byrgisins, val inn hæfasti umsækjandinn af sveitar- stjórn Grímsnes- og Grafn- ingshrepps. Árið 2008 hlaut Guðmund- ur fang elsisdóm fyrir kyn- ferðislega misnotkun og árið 2010 dóm fyrir umboðssvik, fjárdrátt, skattalaga- og bók- haldsbrot. Guðmundur Jónsson hefur rekið tjaldsvæðið á Borg síðan 2017. Þá sendu tveir inn um- sókn eftir að sveitarfélagið aug lýsti eftir rekstraraðila en Guðm undur var metinn hæfari. Eng ar hæfniskröfur voru þá sett ar fram af hálfu sveitarfélagsins. Sveitarstjórn ráðfærir sig við lögmann Auglýst var að nýju í árs- byrjun og var Guðmundur þá metinn hæfastur þriggja umsækjenda. Þá voru settar fram þær hæfniskröfur að umsækjandi „þurfi að gera grein fyrir reynslu sinni af ferðaþjónustu, gera grein fyrir sýn sinni á rekstur tjald- svæðisins, hafa reynslu af rekstri, vera reglusamur, vera í skilum með opinber gjöld og lífeyrisiðgjöld starfsmanna“. Ekki hefur enn fengist upp- gefið hjá sveitarstjórn Gríms- nes- og Grafningshrepps hver hinn umsækjandinn var í fyrra skiptið. Oddviti sveitar- stjórnar svaraði því til að sveitarstjórnin væri að fara yfir þá fyrirspurn og ýmsar aðrar spurningar frá DV í samráði við lögmann, svo sem hvað Guðmundur hefði haft fram yfir aðra umsækj- endur í hvort skipti. Sveitar- stjórn hefur hins vegar upp- lýst blaðamann um hverjir sóttu um í ár. Um árabil í farsælum rekstri Skúli og eiginkona hans, Ingunn Magnúsdóttir, ráku Sláttu- og garðaþjónustu Suð- urlands um fimm ára tíma- bil og sáu um mörg stór verk fyrir sveitarfélög, húsfélög, fyrirtæki og einstaklinga. Meðal sveitarfélaga sem þau störfuðu fyrir voru Hvera- gerði, Bláskógabyggð og Ár- borg. Þegar mest var störfuðu hjá þeim tíu manns yfir sum- artímann. Árið 2016 seldu þau fyrirtækið og stofnuðu Lyng- garða ehf., sem sinnir alhliða garðaþjónustu, smíðavinnu og meindýravörnum. Skúli og Ingunn hafa ávallt staðið í skilum með opinber gjöld og hvorki þau né fyrir- tæki á þeirra vegum farið í gjaldþrot. Síðustu tólf ár hafa þau enn fremur rekið ferða- þjónustu og selt bæði gistingu í bústaði og veiðileyfi. Skúli vildi ekki tjá sig um umsókn þeirra að öðru leyti en því, að þau hefðu talið sig eiga möguleika á að vera valin úr hópi umsækjenda: „Við teljum að við höfum verið fyllilega hæfir umsækjendur.“ Tvisvar í forsetaframboði Magnús Ingberg er frá Svína- vatni í Grímsnesi en er nú búsettur á Selfossi. Hann rak bátaleigu við Svínavatn í 15 ár og stendur nú í námuvinnslu á landareign sinni í Stangarhyl í Grímsnesi. Magnús bauð sig fram til embættis forseta Íslands fyr- ir fjórum árum, en náði ekki að safna nægilega mörgum undirskriftum til að fram- boðið væri gilt. Þá bauð hann sig einnig fram í ár en dró framboðið til baka vegna þess hversu hægt gekk að safna undirskriftum. Skilaði engum fylgigögnum Magnús sendi DV afrit af um- sókn sinni um leigu og rekstur á tjaldsvæðinu, en þar kemur aðeins fram: „Hér með sæki ég um tjaldsvæðið á Borg,“ og síðan fylgir með fullt nafn og kennitala. Þegar sveitarstjóri svaraði og sagði að mögulega hefði vantað viðhengi þar sem farið væri yfir hvernig um- sækjandi uppfylli kröfur aug- lýsingar, sendi Magnús til baka að hann gæti fyrirfram- greitt sveitarfélaginu andvirði fimm ára leigu á tjaldsvæðinu, en í auglýsingu kom fram að hægt væri að greiða leigu með vinnuframlagi. Magnús segir að sveitar- félagið hefði átt að vera afar sátt við slíkt tilboð en rekstur- inn var boðinn út til fimm ára. Hann viðurkennir að hafa átt töluverð samskipti við sveitarstjórnina vegna ýmissa mála, til dæmis hafi þau keppt um lóð á uppboði, og að milli þeirra séu ekki miklir kær- leikar. „Það hefði engu máli skipt þó ég hefði skilað inn öllum gögnum með umsókn því það hefði alltaf komið niður á sama stað,“ segir hann. n Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt FORSETAFRAMBJÓÐANDI VILDI BORGA FIMM ÁR FYRIR FRAM Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur enn ekki svarað því hvað Guð- mundur Jónsson hafði fram yfir aðra umsækjendur um rekstur tjaldsvæðisins á Borg. Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, var metinn hæfasti umsækjandinn af sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps. MYND/GVA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.