Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR 22 MAÍ 2020 DV
Umsækjendur um leigu á tjaldsvæðinu á Borg í Grímsnesi í ársbyrjun
voru, auk Guðmundar Jóns-
sonar, hjónin Skúli Baldurs-
son og Ingunn Magnúsdóttir
fyrir hönd fjölskyldufyrirtæk-
isins Lynggarða ehf. og Magn-
ús Ingberg Jónsson verktaki,
sem nýverið dró til baka fram-
boð sitt til embættis forseta
Íslands.
Engar hæfniskröfur
í fyrri auglýsingu
Eins og DV greindi frá var
Guðm undur Jónsson, fyrr-
verandi forstöðumaður
Byrgisins, val inn hæfasti
umsækjandinn af sveitar-
stjórn Grímsnes- og Grafn-
ingshrepps.
Árið 2008 hlaut Guðmund-
ur fang elsisdóm fyrir kyn-
ferðislega misnotkun og árið
2010 dóm fyrir umboðssvik,
fjárdrátt, skattalaga- og bók-
haldsbrot.
Guðmundur Jónsson hefur
rekið tjaldsvæðið á Borg síðan
2017. Þá sendu tveir inn um-
sókn eftir að sveitarfélagið
aug lýsti eftir rekstraraðila
en Guðm undur var metinn
hæfari. Eng ar hæfniskröfur
voru þá sett ar fram af hálfu
sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn ráðfærir
sig við lögmann
Auglýst var að nýju í árs-
byrjun og var Guðmundur
þá metinn hæfastur þriggja
umsækjenda. Þá voru settar
fram þær hæfniskröfur að
umsækjandi „þurfi að gera
grein fyrir reynslu sinni af
ferðaþjónustu, gera grein
fyrir sýn sinni á rekstur tjald-
svæðisins, hafa reynslu af
rekstri, vera reglusamur, vera
í skilum með opinber gjöld og
lífeyrisiðgjöld starfsmanna“.
Ekki hefur enn fengist upp-
gefið hjá sveitarstjórn Gríms-
nes- og Grafningshrepps hver
hinn umsækjandinn var í
fyrra skiptið. Oddviti sveitar-
stjórnar svaraði því til að
sveitarstjórnin væri að fara
yfir þá fyrirspurn og ýmsar
aðrar spurningar frá DV í
samráði við lögmann, svo
sem hvað Guðmundur hefði
haft fram yfir aðra umsækj-
endur í hvort skipti. Sveitar-
stjórn hefur hins vegar upp-
lýst blaðamann um hverjir
sóttu um í ár.
Um árabil í farsælum
rekstri
Skúli og eiginkona hans,
Ingunn Magnúsdóttir, ráku
Sláttu- og garðaþjónustu Suð-
urlands um fimm ára tíma-
bil og sáu um mörg stór verk
fyrir sveitarfélög, húsfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Meðal sveitarfélaga sem þau
störfuðu fyrir voru Hvera-
gerði, Bláskógabyggð og Ár-
borg. Þegar mest var störfuðu
hjá þeim tíu manns yfir sum-
artímann. Árið 2016 seldu þau
fyrirtækið og stofnuðu Lyng-
garða ehf., sem sinnir alhliða
garðaþjónustu, smíðavinnu og
meindýravörnum.
Skúli og Ingunn hafa ávallt
staðið í skilum með opinber
gjöld og hvorki þau né fyrir-
tæki á þeirra vegum farið í
gjaldþrot. Síðustu tólf ár hafa
þau enn fremur rekið ferða-
þjónustu og selt bæði gistingu
í bústaði og veiðileyfi.
Skúli vildi ekki tjá sig um
umsókn þeirra að öðru leyti en
því, að þau hefðu talið sig eiga
möguleika á að vera valin úr
hópi umsækjenda: „Við teljum
að við höfum verið fyllilega
hæfir umsækjendur.“
Tvisvar í forsetaframboði
Magnús Ingberg er frá Svína-
vatni í Grímsnesi en er nú
búsettur á Selfossi. Hann rak
bátaleigu við Svínavatn í 15 ár
og stendur nú í námuvinnslu á
landareign sinni í Stangarhyl
í Grímsnesi.
Magnús bauð sig fram til
embættis forseta Íslands fyr-
ir fjórum árum, en náði ekki
að safna nægilega mörgum
undirskriftum til að fram-
boðið væri gilt. Þá bauð hann
sig einnig fram í ár en dró
framboðið til baka vegna þess
hversu hægt gekk að safna
undirskriftum.
Skilaði engum fylgigögnum
Magnús sendi DV afrit af um-
sókn sinni um leigu og rekstur
á tjaldsvæðinu, en þar kemur
aðeins fram: „Hér með sæki
ég um tjaldsvæðið á Borg,“ og
síðan fylgir með fullt nafn og
kennitala.
Þegar sveitarstjóri svaraði
og sagði að mögulega hefði
vantað viðhengi þar sem
farið væri yfir hvernig um-
sækjandi uppfylli kröfur aug-
lýsingar, sendi Magnús til
baka að hann gæti fyrirfram-
greitt sveitarfélaginu andvirði
fimm ára leigu á tjaldsvæðinu,
en í auglýsingu kom fram að
hægt væri að greiða leigu með
vinnuframlagi.
Magnús segir að sveitar-
félagið hefði átt að vera afar
sátt við slíkt tilboð en rekstur-
inn var boðinn út til fimm ára.
Hann viðurkennir að hafa
átt töluverð samskipti við
sveitarstjórnina vegna ýmissa
mála, til dæmis hafi þau keppt
um lóð á uppboði, og að milli
þeirra séu ekki miklir kær-
leikar.
„Það hefði engu máli skipt
þó ég hefði skilað inn öllum
gögnum með umsókn því það
hefði alltaf komið niður á
sama stað,“ segir hann. n
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
FORSETAFRAMBJÓÐANDI VILDI
BORGA FIMM ÁR FYRIR FRAM
Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps hefur enn ekki svarað því hvað Guð-
mundur Jónsson hafði fram yfir aðra umsækjendur um rekstur tjaldsvæðisins á Borg.
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Guðmundur Jónsson, fyrrverandi forstöðumaður Byrgisins, var metinn hæfasti umsækjandinn af
sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps. MYND/GVA