Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 20
Nánari upplýsingar á vefsíðu BYKO, byko.is Komdu við í BYKO á Skemmuvegi 2a, 200 Kópavogi, til að fá upplýsingar um CLT einingahús eða forsniðnar húsgrindur. Sími: 515-4000 2 SÉRBLAÐ KYNNING SUMARHÚS 22. MAÍ 2020 DV Síðan á tíunda áratugnum hefur CLT verið að ryðja sér til rúms á evrópskum markaði. CLT er fjölhæft efni sem hentar sérlega vel til húsabygginga. „Krosslímda timbrið er notað í veggi, gólf og þök og kemur allt sérútbúið og tilsniðið út frá teikningum. Byggingarhrað- inn er mikill og sparnaðurinn er gríðarlegur miðað við hefðbundnar húsbyggingar. Það getur því verið mikill kostnaðarsparnaður í notkun CLT miðað við almenn uppsteypt hús eða timburhús. Að auki er mun minni efnisrýrnun, en vegna þess að einingarnar koma tilsniðnar á bygg- ingarstaðinn eru nær engin afföll á efni. Þetta er því mun hraðvirkari, ódýrari og snyrtilegri byggingarmáti en margur annar,“ segir Sigurður Júlíus Jónsson, sölumaður hjá BYKO. BYKO flytur inn CLT-einingar frá framleiðslufyrirtækinu Skonto í Lettlandi. „Skonto er afar stórt á markaðnum í Evrópu og framleiðir hágæða CLT-einingar úr greni og hægvaxandi furu. Efnið er um- hverfisvænt og bindur kolefni sem skiptir miklu máli núna þegar við erum sífellt að leita að umhverfis- vænni kostum í allri byggingagerð. Þetta er án efa framtíðin í byggingar- iðnaðinum. Möguleikarnir eru nánast endalausir með þessu hentuga og vistvæna efni. Árið 2018 var fyrsta CLT-húsið teiknað af TeiknArk í samvinnu við BYKO og það seldist samstundis. Viðskiptavinirnir voru gjörsamlega í skýjunum. Núna erum við að selja CLT-hús sem fer á Þing- velli og erum með fjölda annarra verkefna í pípunum, hvort heldur er fyrir heimili, sumarhús, raðhús, parhús eða fyrirtæki.“ Styrkur og einangrun CLT er sérlega sterkt efni. „Miðað við stálið þá er CLT sterkara hvað varðar þyngd og eðlismassa. Kross- límda timbrið er einnig afar hentugt á jarðskjálftasvæðum og hafa bygg- ingar úr CLT gefist vel í Japan þar sem jarðskjálftar eru bæði tíðir og öflugir. Einangrunargildi CLT er að sama skapi mun meira í saman- burði við steinsteypu upp á þykktina að gera. Þá hefur 100 mm veggur úr CLT sambærilega einangrunarmögu- leika og 150 mm steinsteypuveggur. Því kemstu upp með að vera með þynnri einingar sem sparar dýr- mætan fermetrafjölda sem kemur aftur inn á byggingarkostnað.“ CLT í sumarhúsið og engar kuldabrýr „Að takmarka kuldabrýr er sér- staklega mikilvægt í sumarhúsum sem standa mörg hver tóm stóran hluta ársins og hitna og kólna með veðurfarinu. Þar kemur krosslímda timbrið afar sterkt inn. Timbrið leiðir ekki kulda og heldur hita mun betur en önnur byggingarefni. Einnig mælum við með því að nota loftristar í gluggum sem auka jöfn loftskipti, koma hreyfingu á loftið og stuðla að betri loftgæðum. Þetta takmarkar enn fremur rakamyndum í hýbýlum.“ Allt á einum stað Þegar kemur að því að byggja sumarhús getur BYKO boðið allan pakkann. „Við erum með allt til þess að byggja hús og innrétta, fyrir utan lóðina og sökkulinn. Það er, við bjóðum allar lausnir í húsbyggingu fyrir utan fljótandi steypu. Við erum til dæmis með þéttidúka frá SIGA, glugga, hurðir, klæðningar, þakefni, innréttingar, húsbúnaðinn, reiðhjólin, og allt annað sem þarf til þess að búa sér draumaheimili eða byggja fallegt sumarhús. Það er því óþarfi að leita annað en til okkar þegar kemur að framkvæmdum.“ BYKO er fyrst og fremst efnissali. „Við setjum ekki upp hús fyrir við- skiptavini. En ef viðskiptavinur er ekki nú þegar í sambandi við bygg- ingarverktaka getum við bent á góða aðila sem hafa sett upp hús frá okkur og búa yfir þekkingu og reynslu af því að vinna með CLT. Einnig erum við með hönnuði og arkitekta sem teikna upp hús fyrir viðskiptavini, en við tökum að sjálfsögðu líka við teikningum frá öðrum aðilum. Við höfum fengið fjölda fyrirspurna um hvað svona einingahús kosti. Það getur reynst erfitt að gefa upp nákvæmt verð vegna þess að hvert hús og hver eining er sérsniðin að þörfum viðskiptavinarins. Við getum þó fullyrt að CLT einingahús bjóða upp á ódýrari lausnir í húsbyggingu en allar aðrar gerðir húsbygginga af sama gæðastuðli.“ Forsniðnar húsgrindur BYKO býður einnig upp á stórsnið- uga lausn fyrir handlagna. „For- sniðnu húsgrindurnar hafa slegið í gegn hjá okkur undanfarið. Þetta eru rammahús í ýmsum stærðum og gerðum sem fólk skrúfar sjálft saman á staðnum. Það þarf enga sérmenntun enda kemur þetta allt tilsniðið með teikningum og öllu. Fólk getur því verið að dunda sér sjálft við að smíða sér gesthús eða geymslu. Svo velur maður klæðn- ingu, hvort sem það er gifs, bárujárn eða annað. Þetta er frábær viðbót við kofaflóruna sem við bjóðum upp á hjá BYKO.“ n BYKO BÝÐUR UPP Á HEILDAR- LAUSNIR FYRIR SUMARBÚSTAÐINN Undanfarið hefur CLT, eða krosslímt timbur, verið að ryðja sér til rúms á íslenskum byggingarmarkaði. Kostirnir eru gríðarlegir og möguleikarnir nánast óendanlegir. Sigurður Júlíus Jónsson, sölumaður hjá BYKO, mælir heils hugar með notkun CLT í sumarhúsið. MYNDIR/ERNIR BYKO getur bent á góða aðila sem hafa sett upp CLT hús og búa yfir þekkingu og reynslu af því að vinna með efnið. Við erum með allt til þess að byggja hús og innrétta, fyrir utan lóðina og sökkulinn. Það er, við bjóðum allar lausnir í húsbyggingu fyrir utan fljótandi steypu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.