Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Side 46
Þ að er búið að kynna markaþátt og upp­gjörsþátt fyrir Pepsi Max deild karla en ekki hefur heyrst múkk um kvenna­ deildina. Þetta er eins og þetta hefur verið undanfarin ár, öll umfjöllun um kvennadeildina kemur á eftir karladeildinni. Ég sé ekki hver ástæðan gæti verið fyrir því,“ segir Krist­ ján Guðmundsson, þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu. Stöð 2 Sport ákvað fyrir nokkru að sýna alla leikina í fyrstu tveimur umferðum Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu. Samkvæmt Ei­ ríki Stefáni Ásgeirssyni, for­ stöðumanni íþrótta hjá Sýn, var ákvörðunin tekin til að koma til móts við þá stað­ reynd að ekki verður hægt að fá marga áhorfendur á völlinn eins og staðan er núna. Það sama mun ekki gilda um fyrstu tvær umferðirnar í Pepsi Max deild kvenna. Ef tímabilið síðasta sumar er skoðað má sjá að 52 prós ent leikja í Pepsi Max deild karla voru sýnd á Stöð 2 Sport. Þetta gerir tvo til fjóra leiki í hverri umferð. Aðeins 21 pró­ sent leikja í Pepsi Max deild kvenna var sýnt, sem sam­ svarar einum leik í umferð. Vilja gera meira fyrir konurnar „Við erum með minnst einn leik í hverri umferð í Pepsi Max deild kvenna og ætlum að sinna deildinni betur en áður, með fleiri og stærri út­ sendingum. Sýndir verða að minnsta kosti tveir leikir í fyrstu umferðinni en ekki all­ ir,“ segir Eiríkur. Hann segir það koma til greina að sýna fleiri leiki en nefnir að sumir leikjanna séu á sama tíma sem geri þeim erfitt fyrir. Leik­ irnir í fyrstu tveimur umferð­ unum í Pepsi Max deild karla voru skipulagðir þannig að þeir verða allir hver á sínum tímanum svo að mögulegt sé að sýna þá alla. Umræðan um að skipu­ leggja fyrstu tvær umferð­ irnar í kvennadeildinni eins og í karladeildinni fór aldrei af stað, að sögn Eiríks. Hann segir jafnframt að Stöð 2 Sport vilji gera meira fyrir konurnar en hefur verið. „Við ætlum að efla umfjöllun og breyta nálguninni að þættin­ um okkar um kvennadeildina frá fyrri árum.“ Stelpur eða strákar skiptir ekki máli Kristján, þjálfari Stjörn­ unnar, er sjálfur fremur nýr í kvennaboltanum. „Það hefur blundað í mér að þjálfa í kvennaboltanum. Ég hef búið í Garðabænum í 17 ár með þetta geggjaða kvenna­ lið við hliðina á mér, sem ég hef fylgst vel með. Þegar ég þjálfaði stundum stelpur á einstaklingsæfingum hjá Val, fann ég skuldbindinguna sem konur koma með inn í fót­ boltann. Ég horfi á þetta sem ákveðið starf, að vera fótbolta­ þjálfari, og það skiptir ekkert máli hvort þetta eru stelpur eða strákar sem ég þjálfa.“ Eftir að hafa byrjað að þjálfa konur, skilur Kristján betur það sem þær hafa verið að tala um og berjast fyrir. „Ég þekki betur þeirra hlið og hvernig þær vinna og hugsa. Ég veit líka hvernig talað er í karlaboltanum og hvernig nálgunin gegn kvennafótbolta er þar. Núna veit ég betur hvernig konur nálgast karla­ boltann og sinn eigin bolta.“ Kvennadeildin fylgir með „Stærsta vandamálið er að samstarfsaðilinn gerir samn­ ing við Stöð 2 Sport, um að fjalla um efstu deildir karla og kvenna. Þar er einblínt á karladeildina þrátt fyrir að kvennadeildin sé í sama pakka. Kvennadeildin fylgir með, það er gallinn. Vanda­ málið liggur ekki endilega hjá Stöð 2 Sport, heldur hjá sam­ starfsaðilanum,“ segir Kristj­ án. Vill hann að samningnum við Ölgerðina sé rift og að fenginn sé nýr samstarfsaðili fyrir kvennadeildina. Kristján veltir því fyrir sér hvers vegna kvennadeildin sé ekki auglýst eins mikið og karladeildin, hvers vegna út­ sendingarnar eru ekki eins margar og svo framvegis. „Það er alltaf hægt að segja að það sé ekki eins mikill áhugi á kvennadeildinni og karladeild­ inni. Það verður áhugi ef þú setur eitthvert sjónvarpsefni af stað og byrjar að hugsa vel um það, þá kviknar áhuginn. Þessi rök halda ekki. Eins og þetta er núna er verið að búa til áhuga á karladeildinni en ekki kvennadeildinni.“ Svo tölum við um laun Kristján telur vandann liggja hjá Ölgerðinni og KSÍ. „Ef samstarfsaðilinn væri að styrkja tvær deildir, en ekki bara eina, þá myndi sam­ starfsaðilinn, sem í þessu tilviki er Ölgerðin, tala við KSÍ og Stöð 2 Sport. Hann myndi ekki sætta sig við að það væri stanslaust verið að fjalla um karladeildina, en ekki kvennadeildina.“ Kristján segir kynjajafn­ rétti vera mikið í umræðunni og að konur séu í sókn. „Það eru einstaklingar og fyrir­ tæki úti í bæ sem segjast vilja styrkja konur. Hvar eru þessar raddir og af hverju koma þær ekki fram? Koma þær jafnvel frekar fram ef við fáum annan samstarfsað­ ila á kvennadeildina og koma þessir aðilar og sýna í verki það sem þeir eru að segja? Sýnið okkur virðingu fyrst, þegar hún er komin og um­ fjöllunin er komin á alvöru plan og þegar fólkið sem segist vilja standa við bakið á okkur er komið fram, þá fyrst skulum við tala um laun og eitthvert svona bull. Komið með virðinguna og höfum þetta í lagi. Ekki bara tala um þessa hluti,“ segir Kristján og vitnar um leið í Söru Björk landsliðsfyrirliða. „Af hverju er sjálfgefið að það sé meiri áhugi á karlafót­ bolta heldur en kvenna, eru ekki jafn margar konur og karlar í heiminum? Þetta er bara bullshit!“ Þarf að skapa sama vinnuumhverfi „Af hverju á meistaraflokkur kvenna alltaf að æfa á eftir körlunum? Það er vegna þess að það er búið að skapa körl­ unum það vinnuumhverfi að þeir geta mætt fyrr. Stelp­ urnar koma svo hlaupandi inn á æfingu klukkan fimm. Það þarf bara að skapa þetta vinnuumhverfi fyrir konurnar og ég efast ekki um að þær myndu rækta það jafn vel og strákarnir, ef ekki betur.“ Til að breyta þessu segir Kristján að þau fyrirtæki sem eiga peninga fyrir auglýsing­ um verði að stíga fram. „Þau fyrirtæki og einstaklingar sem hafa talað um að þau vilji fara meira inn í kvennageir­ ann, verða að gera það. Knatt­ spyrnusambandið þarf líka að taka alvöru ákvarðanir. Í vetur átti bara að rifta þessum samningi við Ölgerðina. Um­ fjöllunin um kvennaboltann er miklu minni en um karla­ boltann. Því meiri umfjöllun, því meiri áhugi.“ Reyna að aðskilja deildirnar Íslenskur toppfótbolti (ÍTF) fékk samningsréttinn við Sýn (áður 365 miðlar) úr höndum KSÍ. Samningurinn var gerð­ ur árið 2015 og gildir út tíma­ bilið 2021. Birgir Jóhannsson, framkvæmdastjóri ÍTF, segir að áhugi sé á að breyta samn­ ingnum þegar hann rennur út. Honum líst vel á að aðskilja kvenna­ og karladeildirnar og hafa aðskilda styrktaraðila. „Við höfum verið að horfa á hvernig þetta er gert erlendis. Eins og enska úrvalsdeildin heitir bara „Enska úrvalsdeild­ in“ og svo eru nokkrir styrkt­ araðilar á deildinni. Hér ætti karladeildin að heita „Úrvals­ deild karla“ og kvennadeildin „Úrvalsdeild kvenna“ og svo væru bara nokkrir styrktarað­ ilar á hvorri deild. Sama hvort það væru sömu eða sitt hvorir, peningurinn væri að minnsta kosti eyrnamerktur hvorri deild fyrir sig. Við munum reyna að gera þetta svona.“ n EKKI MÚKK UM KVENNADEILDINA Sóley Guðmundsdóttir soley@dv.is Kristján segist skilja kvennafótboltann og baráttuna sem fylgir honum betur, eftir að hann byrjaði að þjálfa konur. MYND/ERNIR Kristján Guð- mundsson kallar eftir meiri umfjöllun um kvenna- knattspyrnuna á Íslandi. Þetta er bara bullshit! 32 SPORT 433 22. MAÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.