Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Blaðsíða 34
TÍMAVÉLIN Ef þú ert Íslendingur má leiða líkur að því að þú hafir komið á, komið undir á eða að minnsta kosti heyrt af útihátíð um versl- unarmannahelgina. Ófáar hátíðir hafa verið haldnar hér á landi undanfarna áratugi og þó svo að sumar þeirra heyri sögunni til þá lifa þær enn góðu lífi í þjóðarsálinni. Bregðum okkur aftur til fortíðar og rifjum upp nokkrar af eftirminnilegustu íslensku útihátíðunum. Eftirminnilegar útihátíðir Fjölmargar útihátíðir voru haldnar hér á landi á níunda og tíunda áratugnum og veittu Þjóðhátíð í Eyjum harða samkeppni. Þær heppnuðust misjafnlega vel. ELDBORG Útihátíðin Eldborg var fyrst haldin um versl- unarmannahelgina árið 1992, á Kaldármelum á Snæfellsnesi. Hátíðin vakti þó ekki mikla lukku: Mikið var um drykkju og eiturlyf og var hún því ekki haldin aftur að ári. Það var ekki fyrr en níu árum síðar, árið 2001, að ákveðið var að endurlífga Eldborg og varð hátíðin helsti keppinautur Þjóðhátíðar í Eyjum það árið. Óhætt er að fullyrða að hátíðin sé ein sú alræmdasta sem haldin hefur verið hér á landi. „Stjórnlaus hryllingur“ og „mikil grimmd og ofbeldi“ var meðal annars notað til að lýsa því sem gekk á og þá var talað um „smjörsýru- hátíðina“. Átta þúsund manns voru á svæðinu, langmest unglingar og ungt fólk. Dópneysla var áberandi mikil og þá vakti það mikinn óhug að tilkynnt var um tíu nauðganir á hátíðinni. En þrátt fyrir neikvæðan fréttaflutning og mikla gagnrýni skemmtu margir sér konung- lega á Eldborg og eitt af því jákvæða við hátíðina var að rokksveitin Jet Black Joe átti þar endurkomu eftir margra ára hlé. Jón Atli Jónasson var einn þeirra sem komu að gerð heimildamyndar um hátíðina og í samtali við DV á sínum tíma sagði hann stemninguna hafa minnt á Woodstock-hátíðina forðum daga. Hann lýsti því þannig að „einhver tryll- ingur“ hefði verið í loftinu. „Fólk var auðvitað á geðveiku fylleríi þarna og það voru ábyggi- lega einhver efni í gangi sem ég kann ekki að nefna lengur, þannig að þetta var mikil upp- lifun.“ Þá sagðist hann ekki hafa orðið vitni að neinum slagsmálum. HÚNAVER „Stanslaus tónlist í þrjá og hálfan sólarhring. Drukknir unglingar, sofandi, dansandi, hlæjandi, í faðmlögum; skríðandi, vafrandi, grátandi, leitandi. Rusl, endalaust rusl, fjúkandi pappír, bjórdósir, gosdósir, gosflöskur, vínflöskur. Húnaver, átta þúsund manns, ein- hver þúsund af tjöldum og nokkur þúsund bílar.“ Blaðamaður Tímans lýsti þann- ig upplifun sinni af útihátíðinni sem Stuðmenn stóðu fyrir í Húna- veri um verslunarmannahelgina 1989, eftir 16 ára hlé. Hátíðin var haldin aftur næstu tvö ár á eftir, en Húnaver ´89 hlýtur þó að teljast eftirminnilegust. Blaðamaður Tímans rifjaði upp að áin á svæðinu hefði verið mikið notuð af samkomugestum þessa helgi, bæði til að vaða í henni og þrífa sig, svo og til annarra hluta. Í greininni kom einnig fram að allir smokkar sem til voru í apótekinu á Blönduósi voru keyptir upp af forsvarsmönnum útihátíðarinnar og seldust þeir upp á augabragði. „Það var oft og tíðum spaugi- leg sjón að sjá til fólks þar sem það gekk að ánni eftir misjafnlega langan og góðan nætursvefn til að bursta í sér tennur, eða slökkva þorsta sínum; og tók ekki eftir þeim er stóð skammt fyrir ofan hann á bakkanum og mé, né heldur notuðum klósett- pappírnum sem flaut niður ána.“ BÆRINN VAR EINS OG STRÍÐSSVÆÐI „Fylleríið á Halló Akureyri var hrikalegt, um það þarf ekki að hafa annað orð,“ ritaði Ólafur H. Oddsson, héraðslæknir, í Dag í ágúst 1996. Halló Akureyri hafði þá verið haldin tvisvar áður, en í þriðja skiptið fóru kynferðisbrot, eitur- lyfjaneysla og skemmdarverk að verða sífellt meira áberandi. Þó svo að hátíðarhöldin færðu Akureyrarbæ umtalsverðar tekjur, voru bæjarbúar allt annað en sáttir við óþrifnaðinn sem fylgdi, og skömmuðust yfir ólátunum og drykkjuskapnum í aðkomumönnum. Margir líktu bænum við stríðssvæði í lok hverrar verslunarmannahelgar. Halló Akureyri var seinast haldin árið 1999, en var síðan breytt í fjölskylduhátíðina Ein með öllu. ATLAVÍK Þeir sem voru upp á sitt besta á „eitís“ tímanum muna eflaust eftir útihátíðinni í Atlavík í Hallormsstaðarskógi sem efnt var til nokkur sumur í röð. Árið 1984 fréttist að Bítlagoðið Ringo Starr myndi koma fram á hátíðinni og það var eins og við manninn mælt, Íslendingar flykktust á hátíðina til að berja goðið augum. Flestir voru sammála um að vel hefði tekist til með hátíðina, veðurblíðan var mikil og ölvun og slagsmál voru í lágmarki. Dr. Gunni rifjaði hátíðina upp í samtali við DV árið 2004. „Ég kom við í Atlavík fyrir austan þar sem Ringo Starr var að spila með Stuðmönnum. Það var reyndar allt búið þegar ég mætti um hádegi á mánudegi þannig að þetta var eins og að koma til Íraks. Ég man sérstak- lega eftir manni sem dró á eftir sér brunnið tjald og sagði í sífellu: „Komdu hvutti, komdu hvutti.“ Hann hefur greinilega skemmt sér vel.“ UXI 95 Þeir sem ætluðu að skemmta sér um verslunarmannahelgina árið 1995 skiptust í tvo hópa; fóru á Uxa eða á Þjóðhátíð í Eyjum. Uxa-hátíðin var haldin á Kirkjubæjarklaustri og telst eftir- minnileg af nokkrum ástæðum. Uxi var metnaðarfull tilraun til að halda „alvöru“ tónlistarhátíð að erlendum sið. Tónlistardag- skráin var óvenju metnaðarfull og skartaði meðal annars Björk, The Prodigy, Bobby Gillespie og Andrew Innes úr Primal Scream ásamt rjómanum af íslensku tónlistarlífi. Heldur færri mættu en búist var við, gert hafði verið ráð fyrir allt að 15 þúsund manns, en rúm- lega 3.500 manns létu sjá sig. Blaðamaður Skinfaxa sem fór á hátíðina sagði gestina hafa verið allt niður í 15 ára unglinga, þrátt fyrir að aldurstakmarkið væri 16 ár. „Það var alltaf eitthvað að gerast á sviðinu frá hádegi og al- veg fram undir fjögur á nóttunni. Veðrið spillti heldur ekki fyrir og fólk brá sér frá að fossinum sem var þarna í hæfilegri fjarlægð og baðaði sig eða fór í röðina til að komast í sund á „Hótel Eddu”.” Þrátt fyrir glæsilega dagskrá var hátíðin mikið gagnrýnd fyrir óhóflega dópneyslu og hefur meðal annars verið kölluð „e- pillu hátíðin“. Uxi fór ekki fram aftur, af skiljanlegum ástæðum. 22 FÓKUS 22. MAÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.