Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Síða 24
I dex býður upp á einingahús úr krosslímdu timbri, öðru nafni CLT (e. cross laminated timber). CLT er endingargott og sterkt bygg- ingarefni sem hentar hvort heldur er í gólf, veggi eða þök. CLT er notað í stórar sem smáar byggingar, svo sem sumarhús, einbýlishús, skóla eða skrifstofur. Einnig hefur það verið notað í iðnaðarhúsnæði. „Það hljómar kannski svolítið gamaldags, en aukin notkun timburs er mikilvægur hlekkur í orkusparnaði í byggingar- iðnaði framtíðarinnar,“ segir Ragnar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Idex. CLT er framleitt í Austurríki af fyrirtækinu Stora Enso. Fyrirtækið hefur tekið forystuna á þessu sviði og sérhæft sig í framleiðslu CLT með frábærum árangri. „Krosslímda timbrið er tilvalið byggingarefni fyrir sumarhúsið. Kostirnir eru fjöl- margir og byggingartíminn er stutt- ur. Að auki getum við boðið heildar- lausnir í einingahúsum, gluggum og klæðningu þannig að húsið verði allt meira og minna tilbúið á einni hendi, sem sparar mikinn tíma og fé við samræmingu ólíkra byggingarhluta hússins.“ Hvers vegna timbur? Byggingar valda um 40% af allri kolefnislosun í heiminum og CO2, eða koltvísýringur, er sú gróðurhúsa- lofttegund sem talin er eiga hvað stærstan þátt í hnattrænni hlýnun jarðar. Ræktun skóga gegnir lykil- hlutverki í bindingu kolefnis í heim- inum. Það er, þegar skógar vaxa taka þeir til sín CO2 úr andrúmsloftinu og einn rúmmetri af timbri geymir um eitt tonn af CO2. Að sama skapi geymir timbur, sem notað er í bygg- ingar, koltvísýring um aldur og ævi. „Í Austurríki einu saman vaxa skóg- arnir því sem nemur byggingarefni í eitt hús á hverri einustu sekúndu og þegar tré er höggvið skapast rými fyrir ný tré, sem halda áfram að taka til sín koltvísýring úr andrúms- loftinu. Timbur er þannig eitt um- hverfisvænasta byggingarefni sem hugsast getur. Viður er að sama skapi hagkvæmur og endurnýjanlegur. Að byggja úr viði krefst mun minni orku en til dæmis að byggja úr steypu, eða öðru byggingarefni. Timburhús, sem hefur þjónað hlutverki sínu og er rifið niður, skilur ekki eftir sig rusl sem fylgja vandkvæði að losna við. Það skilur hins vegar eftir sig efni sem hægt er að endurnýta í orku- framleiðslu.“ Hvers vegna að velja hús úr krosslímdu tré? CLT er gegnheill samlímdur viður sem er unninn að lágmarki úr þremur lögum af borðviði, sem lögð eru hornrétt hvert á annað og límd saman með umhverfisvænu lími. Lögin geta verið allt að átta talsins og heildarþykkt allt að 320 mm. Fram- leiðsla CLT er prófuð og samþykkt af utanaðkomandi aðilum, til að tryggja hámarksgæði og öruggar byggingar. Það eru fjölmargir kostir við að velja CLT frá Stora Enso þegar kemur að byggingu húsa. „Fyrir það fyrsta kemur allt það timbur sem Stora Enso notar til sinnar framleiðslu, úr sjálfbærum skógum, það er, fyrir hvert tré sem er fellt þá er sáð fyrir þremur í staðinn. Kostirnir eru svo enn fleiri.“ • Stuttur byggingartími Margfaldur hraði miðað við aðrar byggingar­ aðferðir. • Sveigjanleiki Auðvelt er að laga einingar að hvaða byggingu sem er. • Umhverfisvænt • Einfalt Engra sérverkfæra eða stórra krana er þörf. • Þægilegt og heilsusamlegt Engin mengandi efni, allt náttúrulegt. • Orkusparandi Timbrið er einangrun í sjálfu sér. • Ending Helst um ókomin ár. • Auðvelt í hönnun og útreikningi • Engar kuldabrýr Lítil hætta á myglu. Idex býður heildarlausnir við byggingu húsa og býður upp á um- hverfisvænar og endurnýtanlegar álklæðningarlausnir frá Larson auk vistvænna glugga- og glerlausna frá Rationel og Schuco. Glugga- og glerlausnir Idex Idex er með stórgott úrval af glugg- um. „Allt frá árinu 1990 höfum við selt Rationel glugga og búum því að góðri þekkingu. Gluggarnir eru úr kjarnatré úr samlímdri skandina- vískri furu sem gefur þeim hámarks- endingu. Rationel gluggar fást bæði úr tré- og í ál/tré-útfærslu.“ Einn- ig er Idex með eigin framleiðslu á Schuco álgluggum í Reykjanesbæ. „Margir hafa nýtt framleiðslu okkar með góðum árangri. Þar á meðal má nefna Háskólann í Reykjavík, Fang- elsið á Hólmsheiði, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Flugstjórnarmiðstöð- ina á Reykjavíkurflugvelli.“ Þá flytur Idex inn gler, bæði í glugga og fyrir aðrar glerlausnir svo sem innveggi, í handrið, gólf, hurðar, þök, og fleira. Fyrirtækið er líka með gott úrval af svalaskjólum og svalahandriðum frá Lumon. Larson álklæðningar Idex er með umboð fyrir Larson klæðningar, sem koma frá spænska fyrirtækinu Alucoil. „Alucoil býr yfir 35 ára reynslu og þekkingu á sviði ál- framleiðslu og er með þeim fremstu á sínu sviði í heiminum í dag.“ Um er að ræða samsettar klæðningar sem byggjast upp á þunnri álplötu að utan og innan með brunavörðum FR steinefnakjarna á milli. Klæðningin kemur í stöðluðum litum, en yfir- borð getur verið úr áli, ryðfríu stáli, kopar, sinki, messing og fleiru, allt eftir því hvað hentar hverri byggingu fyrir sig. „Idex hefur komið að fjölda verkefna þar sem Larson álklæðn- ingar voru notaðar með frábærum árangri.“ n Helstu eiginleikar Larson álklæðninga • Eldþolnar • Léttar og sléttar • Sex tegundir burðarkerfa sem henta hverju verkefni • Einstakt veður- og efnaþol • Allt að 20 ára ábyrgð • Einstakir efniseiginleikar • Hávaða- og hitaeinangrun • Umhverfisvænar UMHVERFISVÆN BYGGINGAREFNI Idex-nafnið á sér yfir 30 ára sögu á íslenskum byggingamarkaði og er fyrirtækið í hvívetna þekkt fyrir framleiðslu á gæðavöru og fagmannlega þjónustu. Nánari upplýsingar á idex.is Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogur Sími: 412­1700 idex@idex.is Ragnar Jóhannsson, framkvæmdastjóri Idex. MYND/VALLI Klæðningin kemur í stöðluðum litum en yfirborð getur verið úr áli, kopar og fleiru. 6 SÉRBLAÐ KYNNING SUMARHÚS 22. MAÍ 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.