Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Page 46
Þ að er búið að kynna markaþátt og uppgjörsþátt fyrir Pepsi
Max deild karla en ekki hefur
heyrst múkk um kvenna
deildina. Þetta er eins og þetta
hefur verið undanfarin ár, öll
umfjöllun um kvennadeildina
kemur á eftir karladeildinni.
Ég sé ekki hver ástæðan gæti
verið fyrir því,“ segir Krist
ján Guðmundsson, þjálfari
kvennaliðs Stjörnunnar í
knattspyrnu.
Stöð 2 Sport ákvað fyrir
nokkru að sýna alla leikina
í fyrstu tveimur umferðum
Pepsi Max deildar karla í
knattspyrnu. Samkvæmt Ei
ríki Stefáni Ásgeirssyni, for
stöðumanni íþrótta hjá Sýn,
var ákvörðunin tekin til að
koma til móts við þá stað
reynd að ekki verður hægt að
fá marga áhorfendur á völlinn
eins og staðan er núna.
Það sama mun ekki gilda
um fyrstu tvær umferðirnar
í Pepsi Max deild kvenna. Ef
tímabilið síðasta sumar er
skoðað má sjá að 52 prós ent
leikja í Pepsi Max deild karla
voru sýnd á Stöð 2 Sport.
Þetta gerir tvo til fjóra leiki í
hverri umferð. Aðeins 21 pró
sent leikja í Pepsi Max deild
kvenna var sýnt, sem sam
svarar einum leik í umferð.
Vilja gera meira
fyrir konurnar
„Við erum með minnst einn
leik í hverri umferð í Pepsi
Max deild kvenna og ætlum
að sinna deildinni betur en
áður, með fleiri og stærri út
sendingum. Sýndir verða að
minnsta kosti tveir leikir í
fyrstu umferðinni en ekki all
ir,“ segir Eiríkur. Hann segir
það koma til greina að sýna
fleiri leiki en nefnir að sumir
leikjanna séu á sama tíma sem
geri þeim erfitt fyrir. Leik
irnir í fyrstu tveimur umferð
unum í Pepsi Max deild karla
voru skipulagðir þannig að
þeir verða allir hver á sínum
tímanum svo að mögulegt sé
að sýna þá alla.
Umræðan um að skipu
leggja fyrstu tvær umferð
irnar í kvennadeildinni eins
og í karladeildinni fór aldrei
af stað, að sögn Eiríks. Hann
segir jafnframt að Stöð 2
Sport vilji gera meira fyrir
konurnar en hefur verið. „Við
ætlum að efla umfjöllun og
breyta nálguninni að þættin
um okkar um kvennadeildina
frá fyrri árum.“
Stelpur eða strákar
skiptir ekki máli
Kristján, þjálfari Stjörn
unnar, er sjálfur fremur
nýr í kvennaboltanum. „Það
hefur blundað í mér að þjálfa
í kvennaboltanum. Ég hef
búið í Garðabænum í 17 ár
með þetta geggjaða kvenna
lið við hliðina á mér, sem ég
hef fylgst vel með. Þegar ég
þjálfaði stundum stelpur á
einstaklingsæfingum hjá Val,
fann ég skuldbindinguna sem
konur koma með inn í fót
boltann. Ég horfi á þetta sem
ákveðið starf, að vera fótbolta
þjálfari, og það skiptir ekkert
máli hvort þetta eru stelpur
eða strákar sem ég þjálfa.“
Eftir að hafa byrjað að
þjálfa konur, skilur Kristján
betur það sem þær hafa verið
að tala um og berjast fyrir.
„Ég þekki betur þeirra hlið og
hvernig þær vinna og hugsa.
Ég veit líka hvernig talað er
í karlaboltanum og hvernig
nálgunin gegn kvennafótbolta
er þar. Núna veit ég betur
hvernig konur nálgast karla
boltann og sinn eigin bolta.“
Kvennadeildin fylgir með
„Stærsta vandamálið er að
samstarfsaðilinn gerir samn
ing við Stöð 2 Sport, um að
fjalla um efstu deildir karla
og kvenna. Þar er einblínt
á karladeildina þrátt fyrir
að kvennadeildin sé í sama
pakka. Kvennadeildin fylgir
með, það er gallinn. Vanda
málið liggur ekki endilega hjá
Stöð 2 Sport, heldur hjá sam
starfsaðilanum,“ segir Kristj
án. Vill hann að samningnum
við Ölgerðina sé rift og að
fenginn sé nýr samstarfsaðili
fyrir kvennadeildina.
Kristján veltir því fyrir sér
hvers vegna kvennadeildin
sé ekki auglýst eins mikið og
karladeildin, hvers vegna út
sendingarnar eru ekki eins
margar og svo framvegis.
„Það er alltaf hægt að segja að
það sé ekki eins mikill áhugi á
kvennadeildinni og karladeild
inni. Það verður áhugi ef þú
setur eitthvert sjónvarpsefni
af stað og byrjar að hugsa vel
um það, þá kviknar áhuginn.
Þessi rök halda ekki. Eins og
þetta er núna er verið að búa
til áhuga á karladeildinni en
ekki kvennadeildinni.“
Svo tölum við um laun
Kristján telur vandann liggja
hjá Ölgerðinni og KSÍ. „Ef
samstarfsaðilinn væri að
styrkja tvær deildir, en ekki
bara eina, þá myndi sam
starfsaðilinn, sem í þessu
tilviki er Ölgerðin, tala við
KSÍ og Stöð 2 Sport. Hann
myndi ekki sætta sig við að
það væri stanslaust verið að
fjalla um karladeildina, en
ekki kvennadeildina.“
Kristján segir kynjajafn
rétti vera mikið í umræðunni
og að konur séu í sókn. „Það
eru einstaklingar og fyrir
tæki úti í bæ sem segjast
vilja styrkja konur. Hvar eru
þessar raddir og af hverju
koma þær ekki fram? Koma
þær jafnvel frekar fram ef
við fáum annan samstarfsað
ila á kvennadeildina og koma
þessir aðilar og sýna í verki
það sem þeir eru að segja?
Sýnið okkur virðingu fyrst,
þegar hún er komin og um
fjöllunin er komin á alvöru
plan og þegar fólkið sem
segist vilja standa við bakið á
okkur er komið fram, þá fyrst
skulum við tala um laun og
eitthvert svona bull. Komið
með virðinguna og höfum
þetta í lagi. Ekki bara tala um
þessa hluti,“ segir Kristján
og vitnar um leið í Söru Björk
landsliðsfyrirliða.
„Af hverju er sjálfgefið að
það sé meiri áhugi á karlafót
bolta heldur en kvenna, eru
ekki jafn margar konur og
karlar í heiminum? Þetta er
bara bullshit!“
Þarf að skapa sama
vinnuumhverfi
„Af hverju á meistaraflokkur
kvenna alltaf að æfa á eftir
körlunum? Það er vegna þess
að það er búið að skapa körl
unum það vinnuumhverfi að
þeir geta mætt fyrr. Stelp
urnar koma svo hlaupandi
inn á æfingu klukkan fimm.
Það þarf bara að skapa þetta
vinnuumhverfi fyrir konurnar
og ég efast ekki um að þær
myndu rækta það jafn vel og
strákarnir, ef ekki betur.“
Til að breyta þessu segir
Kristján að þau fyrirtæki sem
eiga peninga fyrir auglýsing
um verði að stíga fram. „Þau
fyrirtæki og einstaklingar
sem hafa talað um að þau vilji
fara meira inn í kvennageir
ann, verða að gera það. Knatt
spyrnusambandið þarf líka
að taka alvöru ákvarðanir. Í
vetur átti bara að rifta þessum
samningi við Ölgerðina. Um
fjöllunin um kvennaboltann
er miklu minni en um karla
boltann. Því meiri umfjöllun,
því meiri áhugi.“
Reyna að aðskilja deildirnar
Íslenskur toppfótbolti (ÍTF)
fékk samningsréttinn við Sýn
(áður 365 miðlar) úr höndum
KSÍ. Samningurinn var gerð
ur árið 2015 og gildir út tíma
bilið 2021. Birgir Jóhannsson,
framkvæmdastjóri ÍTF, segir
að áhugi sé á að breyta samn
ingnum þegar hann rennur út.
Honum líst vel á að aðskilja
kvenna og karladeildirnar og
hafa aðskilda styrktaraðila.
„Við höfum verið að horfa á
hvernig þetta er gert erlendis.
Eins og enska úrvalsdeildin
heitir bara „Enska úrvalsdeild
in“ og svo eru nokkrir styrkt
araðilar á deildinni. Hér ætti
karladeildin að heita „Úrvals
deild karla“ og kvennadeildin
„Úrvalsdeild kvenna“ og svo
væru bara nokkrir styrktarað
ilar á hvorri deild. Sama hvort
það væru sömu eða sitt hvorir,
peningurinn væri að minnsta
kosti eyrnamerktur hvorri
deild fyrir sig. Við munum
reyna að gera þetta svona.“ n
EKKI MÚKK UM KVENNADEILDINA
Sóley Guðmundsdóttir
soley@dv.is
Kristján segist skilja kvennafótboltann og baráttuna sem fylgir honum betur, eftir að hann byrjaði að þjálfa konur. MYND/ERNIR
Kristján Guð-
mundsson
kallar eftir
meiri umfjöllun
um kvenna-
knattspyrnuna
á Íslandi.
Þetta er bara
bullshit!
32 SPORT 433 22. MAÍ 2020 DV