Dagblaðið Vísir - DV - 22.05.2020, Page 23
H úsasmíðin er í fararbroddi þegar kemur að íslenskri framleiðslu heilsárshúsa
sem eru í senn falleg, vönduð, traust
og standast íslenskar aðstæður,
veður og vinda. „Fullsamsettu húsin
frá Húseiningu eru alfarið byggð
innanhúss og þegar þau eru tilbúin
til afhendingar eru þau hífð upp á
sérútbúinn flutningavagn inni í verk-
smiðjunni og flutt á byggingarstað.
Kaupandinn getur svo flutt inn 2-4
dögum eftir að við slökum húsinu á
sökklana. Húseining framleiðir einn-
ig húseiningar fyrir allar stærðir ein-
býlishúsa sem og sumarhús og fást
einingarnar afhentar við verksmiðju-
dyr. Hjá okkur færðu allt á einum
stað, því við framleiðum einnig
sökklana undir húsin. Það besta við
þetta er að verðið kemur þægilega
á óvart,“ segir Kjartan Ragnarsson,
sölu- og markaðsstjóri Húseiningar.
Verksmiðja Húseiningar að Vogum
er einstök á landsvísu og býður upp á
bestu aðstæður sem völ er á til fram-
leiðslu tilbúinna húsa innandyra. „Við
getum framleitt þar allt að 120 fer-
metra einbýlishús/sumarhús. Ef um
parhús er að ræða eru þau framleidd
sem tvö hús og koma saman á sökkl-
unum þannig að bílageymslurnar
mætast og mynda eina heild, eða
samtals 240 fermetra parhús. Húsin
afhendast fullbúin með öllum inn-
réttingum, heimilis- og hreinlætis-
tækjum, gólfefnum, rafmagni, hita-
kerfi og vatnskerfi. Aldrei fyrr hefur
verið boðið upp á slíka möguleika hér
á landi í svo stórum húsum.“
Það eru fjórir lykilþættir þegar kemur
að kostum þess að framleiða fullbúið
hús í verksmiðju, tilbúið til flutnings:
1. Húsin eru framleidd við bestu að-
stæður, sérstaklega með tilliti til
veðurs.
2. Í byggingarferlinu fer ekki tími til
spillis í ferðir starfsmanna til og frá
byggingarstað.
3. Hús kemst fyrr í notkun hjá
kaupanda, því uppsetningartími er
mjög stuttur.
4. Þetta skapar betra hús og mjög
hagstætt verð.
Smáhýsi, minni og stærri
Smáhýsin frá Húseiningu eru frábær
lausn fyrir þá sem vilja koma sér upp
dásamlegum griðastað í náttúrunni,
eða vilja auka gistimöguleika við
núverandi sumarbústaði. Um er að
ræða annars vegar vönduð, fullei-
nöngruð 14,99 til 17 fermetra hús,
með baðherbergi og forsteyptum
sökkulundirstöðum. Einnig er um að
ræða 24,74 til 39,9 fermetra hús,, með
35 fermetra verönd. Húsin eru af-
greidd frá verksmiðju fullsamsett.
Sumarhús í einingum
Húseining býður upp á 65 til 111 fer-
metra sumarhús, sem fást afhent í
einingum við verksmiðjudyr. Ein-
ingarnar eru klæddar láréttri báru
og eru húsin afar fljótreist. Einingar
koma með gluggum og hurðum, full-
glerjuðum. Þakvirki, þakkantur, allar
festingar fyrir reisingu, einangrun
rakasperra og lagnagrind fylgja,
ásamt öllum efnispakka fyrir alla
milliveggi.
Smart einbýli minni og stærri
Samsettu Smart einbýlin frá Húsein-
ingu koma í tveimur stærðum. Ann-
ars vegar þriggja herbergja 73 fer-
metra hús og hins vegar er fjögurra
herbergja 87,5 fermetra hús. Í þeim
eru tvö til þrjú svefnherbergi, eldhús,
bað og stofa. Húsin koma fullsam-
sett frá verksmiðju með vönduðum
innréttingum. Báðar gerðir eru með
hita í gólfi, forsteyptum sökkulundir-
stöðum og með 20 fermetra verönd
með heitum potti.
Einbýlishús í einingum
Húseining framleiðir einnig húsein-
ingar fyrir allar stærðir einbýlishúsa
sem afgreiddar eru við verksmiðju-
dyr. Einingar koma með gluggum
og hurðum, fullglerjuðum. Þakvirki,
þakkantur, allar festingar fyrir reis-
ingu, einangrun rakasperra og lagna-
grind fylgja, ásamt öllum efnispakka
fyrir alla milliveggi. Einingarnar eru
klæddar láréttri báru og eru húsin
afar fljótreist. Einnig eru einingar til
afstúkunar á bílageymslu og bruna-
hurð milli bílageymslu og aðalrýmis,
auk bílskúrshurðar með járnum.
Láttu drauminn verða að veruleika
með húsi frá Húseiningu. „Verðið
er ótrúlega gott því hagræðing við
smíðarnar er mikil. Við vöndum til
allra verka og útkoman er ómótstæði-
leg í nýju, sterku og fallegu einbýli.
Við bjóðum áhugasama kaupendur
velkomna í heimsókn í verksmiðju
Húseiningar í Vogum.“ n
Hlynur
Sigursveinsson
framkvæmdastjóri
Húseiningar
Igor Bezenar
verksmiðjustjóri
Húseiningar
HÚSEINING ER FRUMKVÖÐULL
Í TILBÚNUM HÚSUM Á ÍSLANDI
Húsasmíði Húseiningar markar tímamót á íslenskum fasteignamarkaði og framleiðir
fyrirtækið meðal annars glæsileg einbýlis- og sumarhús sem eru afhent fullbúin.
Húseining ehf. er í Hraunholti 1,
190 Vogum. Sími 770-5144.
Nánari upplýsingar á huseining.is
og á netfanginu kjartan@huseining.is. Húseining framleiðir ýmsar gerðir af heimilum og sumarhúsum. MYNDIR/AÐSENDAR
Kjartan Ragnarsson, sölu- og markaðsstjóri Húseiningar. MYND/ERNIR
SUMARHÚS KYNNING SÉRBLAÐ 5 DV 22. MAÍ 2020