Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Qupperneq 8
8 UMRÆÐA Sandkorn 31. janúar 2020 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing Suðurlandsbraut 14 2. hæð FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Meiri sviptingar Nýlega festi Torg ehf., útgáfu- félag Fréttablaðsins, kaup á DV og því sem miðlinum fylgir. Enn á eftir að samþykkja kaup- in hjá Samkeppniseftirlitinu en áður hefur Torg keypt fjölmið- ilinn Hringbraut. Nú gengur sú saga fjöllum hærra að Sýn, sem rekur til að mynda sjónvarps- stöðina Stöð 2, útvarpsstöðv- arnar Bylgjuna, X-ið og FM 957 og heldur úti fréttavefnum Vísi, ætli að kaupa Birtíng útgáfu- félag, sem gefur út tímaritin Vikuna, Gestgjafann og Hús og híbýli og fríblaðið Mann- líf. Ljóst er að tímaritarekstur gefur ekki mikið í aðra hönd og skilur rekstraraðila frekar eftir í mínus og því verður forvitni- legt að sjá, ef satt reynist, hvort tímaritaútgáfunni verður haldið áfram eða hún lögð af. Óvinsælt að vera lögga Kompás greindi frá því í vik- unni að lögreglumönnum hafi fækkað undanfarin ár. Há- skólanám lögreglufræða hefur ítrekað sætt gagnrýni síðustu ár, einkum hvað varðar ströng skilyrði um líkamlegt og and- legt atgervi nemenda. Til að mynda hefur kvíði gert það að verkum að nemendur þurfi að hverfa frá. Hlutfall ómennt- aðra lögreglumanna og lög- reglunema í afleysingum hef- ur hins vegar farið hækkandi. Góð og öflug lögregla, skipuð hæfu fólki er grundvöllur þess að almenningur megi finna fyrir öryggi. Við leyfum nem- um að starfa við löggæslustörf, en þeir sömu nemar eru svo ekki metnir hæfir til að gegna sama starfi í formlegu starfs- námi. Eru síðan engir lögreglu- menn sem greinast með líkam- lega eða andlega kvilla að námi loknu? Eða skiptir það kannski bara máli meðan á náminu stendur? Spurning vikunnar Hvert er besta teiknimyndalagið? „Allt „soundtrackið“ í Rango þar sem að það er falið meistaraverk.“ Árni Þór Guðjónsson „Mitt uppáhaldslag í teiknimynd er sennilega þemalagið í Beauty And The Beast.“ Gunnar Hrafn Kristjánsson „Besta teiknimyndalagið að mínu mati myndi ég segja að væri Hakuna Matata úr Lion King. Það er svo ótrúlega skemmtilegt lag sem er með boðskapinn að slaka bara á og fylgja flæðinu. Það er líka svo ótrúlega skemmtileg og grípandi laglína þannig að þú getur ekki gert annað en sungið með.“ Halldóra Elín Einarsdóttir „Colors of the Wind verður að vera fyrir valinu. Uppbyggingin, textinn og bara allt við það er ótrúlega fallegt.“ Ísold Ylfa Schweitz Viðvörunarbjöllurnar öskra N ýr útvarpsstjóri var ráðinn í vikunni, sem hefur líklega ekki farið framhjá neinum. Síðan þá hafa samsæriskenn- ingar blossað upp hægri vinstri, einmitt um hægrið og vinstrið og hvernig ráðningin sé enn eitt plottið í flókinni og útsmoginni fléttu Sjálfstæðisflokksins. Áður en útvarpsstjóri var ráðinn voru ýmsar samsæriskenningar á lofti um ráðninguna þótt engum samsæriskenn- ingasmið hafi dottið í hug að Stefán Eiríksson myndi hreppa hnossið. Samsæriskenningarn- ar eru orðnar svo margar að flestir eru vænt- anlega búnir að týna þræðinum og fussa bara og sveia. Það er ekki skrýtið að þessar samsær- iskenningar spretti upp eins og gorkúlur. Stjórn RÚV ákvað, eftir að hafa ráðfært sig við ráðningarfyrirtækið Capacent, að birta ekki lista yfir umsækjendur og er alls kostar óvíst hvort það standist lög og reglur um opinber- ar stofnanir. Það var því ljóst frá upphafi ráðn- ingarferlisins að hver sem ráðinn yrði myndi verða umdeildur. Vissulega hefur almenning- ur fengið að heyra nokkur nöfn af þeim rúm- lega fjörutíu sem sóttu um, en enn vantar inn í heildarmyndina. Sú leynd yfir þeim sem sóttu um eitt mest áberandi starf landsins býður upp á samsær- iskenningar, purk og pískur og gerir ofboðs- lega lítið til að fylla almenning því trausti sem ráðamenn í landinu eru sífellt að falast eftir, án þess að lyfta svo mikið sem litla fingri til að öðlast það. Þrátt fyrir allt þetta, þrátt fyrir að nýr út- varpsstjóri, alveg sama hvað fólki finnst hann æðislegur, frábær og meiriháttar næs gaur, þurfi nú að lesa um sig endalausar kenningar og upplognar eða sannar skoðanir og póli- tískar meiningar, þá finnst nýjum útvarps- stjóra bara fínt að þessum lista skyldi hafa verið haldið leyndum. Hann skilur þá afstöðu stjórnar RÚV fullkomlega. Þá byrja viðvör- unarbjöllur mínar að hringja, þótt mér finn- ist hann bera af sér góðan þokka þá ég þekki manninn ekki neitt. Viðvörunarbjöllurnar mínar klingdu síðan enn hærra þegar kom í ljós að nýr útvarps- stjóri vill ólmur halda RÚV á auglýsingamark- aði. Það lá við að hljóðhimna mín spryngi þegar hann viðraði þessar áætlanir sínar því í mínum huga er vera RÚV á auglýsingamark- aði algjörlega galin, ekki síst vegna þess að markaðsöflin á RÚV hafa seilst sífellt lengra til að blóðmjólka markaðinn. RÚV meðframleið- ir sjónvarpsefni sem síðan er selt til risa eins og Netflix og RÚV fær sinn hluta af kökunni. Framleiðir efni þar sem laun þáttarstjórnanda eru greidd af fjármálafyrirtækjum úti í bæ. Efnið er samt auðvitað ekki kostað, því það má ekki á RÚV. Markaðsfólkið á RÚV er búið að finna gloppu í kerfinu, í þeim ramma sem RÚV þarf að vinna innan, og ætlar að mala úr þessari gloppu skínandi fagurt gull. Þá er hægt að halda uppi heilli deild til að selja meira. Birta fleiri auglýsingar. Framleiða meira efni sem hentar fjársterkum fyrirtækjum. Algjör- lega galið dæmi. Nýr útvarpsstjóri vill líka gera RÚV sýni- legra á samfélagsmiðlum, líkt og hann gerði með Lögregluna. Af hverju? Þann rökstuðning þrái ég að heyra því varla tilheyrir það samfé- lagslegri ábyrgð RÚV að birta flipp í „story“ á Instagram eða vera með hótfyndni á Twitter. Eftir að hafa fylgst með nýjum útvarps- stjóra í gegnum fjölmiðla fékk ég þá tilfinn- ingu að nýr útvarpsstjóri væri maður með bein í nefinu, maður sem stæði uppi í hár- inu á ráðamönnum ef svo bæri undir. Svo er hann líka gallharður Eurovision-aðdá- andi, sem skemmir náttúrulega aldrei fyrir og eykur mannkosti ef eitthvað er. Nú hafa við- vörunarbjöllur mínar hins vegar drekkt þeim englahljómi og ég held að ástæða sé til að hafa verulegar áhyggjur af þessari ráðningu, hvað sem öllum samsæriskenningum líður. n Leiðari Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Lifað í gegnum linsuna Ferðamenn hafa þarna komið auga á eitthvað merkilegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.