Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Síða 25
Sérblað31. janúar 2020 KYNNINGARBLAÐ BABYBREZZA: Fullkomin pelamjólk og heimatilbúinn barnamatur með engri fyrirhöfn Heildsalan Extra sf. byrjaði að bjóða upp á vörur frá framleiðandanum BabyBrezza árið 2015. Þá voru vörurnar frá þessum gæða barnavöruframleiðanda nýkomnar í sölu í Evrópu. BabyBrezza hefur hægt og rólega verið að ryðja sér til rúms á meðal íslenskra foreldra enda er um að ræða frábærar vörur í hæsta gæðaflokki sem hjálpa til við að einfalda foreldrahlutverkið. Fullkomnun í pelaformi Pelavélarnar frá BabyBrezza eru alger himnasending fyrir foreldra með börn á þurrmjólk. BabyBrezza Formula Pro Advanced er ný endurgerð af eldri gerð pelavélar. Nú er BabyBrezza enn betur í stakk búin til þess að hjálpa þér við foreldrahluterkið á hverjum degi. BabyBrezza Formula Pro Advanced virkar með yfir fimm hundruð mismunandi þurrmjólkurtegundum. Rafrænar stillingar auðvelda þér að stilla saman vélina og þurrmjólkurtegundina. Þú einfaldlega fyllir á vatnstankinn og þurrmjólkurtankinn og velur hitastigið og rétta stillingu út frá þurrmjólkurtegund. Vélin sér svo um að blanda mjólkina í réttu hitastigi. Engin froða, rétt hitastig og ekkert vesen. Heimatilbúinn barnamatur á nokkrum mínútum Það er engin fyrirhöfn að búa til sinn eigin barnamat með BabyBrezza FoodMaker Deluxe. Matvinnsluvélin gufusýður og blandar barnamatinn í einni og sömu vélinni og í sama hólfinu. Það eina sem þú þarft að gera er að skera niður grænmeti og ávexti og setja í vélina. BabyBrezza FoodMaker Deluxe sér um afganginn. Þú hefur fullkomna stjórn á því sem er í barnamatnum. Það er auðvelt að þrífa vélina og enn fremur má setja hnífinn og matarhólfið í uppþvottavélina. Endurnýtanlegar skvísur, sem auðvelt er að fylla á, fylgja með. Söluaðilar eru Tvö líf, Ólavía og Óliver, Lyfja og Græni unginn á Akureyri. Nánari upplýsingar má nálgast á babybrezza.com og Facebook: BabyBrezza Ísland

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.