Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Síða 30
30 PRESSAN 31. janúar 2020 Þ etta er stór áfangi fyrir forsetann … og enn mikilvægari áfangi fyrir landið okkar,“ sagði Chad Wold, starfandi ráðherra þjóðaröryggis­ mála í Bandaríkjunum, fyrr í mánuðinum þegar hann fagnaði því að fyrstu 100 mílurnar (161 kílómetri) af landamæra­ múr Donalds Trump forseta á landamær­ unum við Mexíkó höfðu verið reistar. Hann hefði auðveldlega getað bætt við að múr­ inn markaði einnig annan stóran áfanga, að þetta yrði dýrasti múr sinnar tegundar í heiminum. Hver míla hefur að meðaltali kostað tæplega 20 milljónir dollara eftir því sem kemur fram í stöðuskýrslu frá bandarísku tolla­ og landamæralögreglunni CBP. Það kostar því sitt að koma upp stórum múr úr steypu og stáli á landamærunum að Mexíkó. En það er meira en steypa og stál sem er notað í múrinn mikla, sem var eitt helsta kosningaloforð Trump. Á honum er einnig komið fyrir hátæknibúnaði, til dæmis hreyfiskynjurum, myndavélum og ljóskösturum. Þá nær hann sums staðar langt niður í jörðina en það er gert til að eiturlyfja smyglarar og aðrir geti ekki grafið göng undir hann. Múrinn er einnig hærri en aðrir sambærilegir múrar en hann er rúmlega níu metrar á hæð og því þarf meira efni í hann. Það eykur síðan enn á kostn­ aðinn að ógirt svæði á landamærunum eru afskekkt og mörg ekki í vegasambandi. Því þarf að byrja á að leggja vegi að þeim til að geta flutt nauðsynlegt byggingar efni á staðinn. Þá er stór hluti af landsvæðun­ um í einkaeigu sem þýðir að semja þarf við landeigendur um kaup á hluta af jörðum þeirra. Í valdatíð Georges W. Bush lét hann byggja múr eða kannski öllu frekar háa girðingu á hluta landamæranna. Þá kostaði hver míla 3,9 milljónir dollara. Landamæramúrinn, sem Ísraelsmenn reistu á landamærunum við Vesturbakk­ ann, er sá næstdýrasti í heiminum en hver míla af honum kostaði á milli einnar og fimm milljóna dollara. Meiri áhersla á múrinn Seinustu ummæli og aðgerðir Trump í tengslum við múrinn benda til að hann ætli að beina enn meiri athygli og krafti að múr­ num en hann telur hann mikilvægan lið í að tryggja sér endurkjör í forsetakosningun­ um í nóvember. Nú hafa enn fleiri milljarð­ ar verið færðir úr ýmsum sjóðum ríkisins til byggingar múrsins og er því búið að tryggja byggingu mörg hundruð mílna til viðbótar á næstu tveimur árum. „Þið fáið múr ólíkan öllum öðrum. Hann verður sterkur, frábær múr. Mjög stór og mjög sterkur landamæramúr verður reistur á mettíma og nú er búið að fjármagna hann að fullu. Er það ekki frábært?“ sagði Trump nýlega á kosningafundi í Milwaukee. En múrinn rís ekki á neinum methraða því margra mánaða seinkun hefur orðið á verkinu, meðal annars vegna andstöðu jarðeigenda í Texas. Þær 100 mílur sem hafa verið reistar fram að þessu hafa allar komið í stað eldri girðingar sem var kominn tími á að skipta út. Það er aðeins á einum kafla í Texas sem verið er að byggja múr á svæði þar sem ekki var áður girðing eða múr. Trump hefur lofað að búið verði að reisa um 700 kílómetra af múr fyrir forsetakosningarnar í nóvember, en meira að segja yfirmaður landamæra­ eftirlitsins, Mark Morgan, hefur efasemdir um að það náist. n Landamæramúr Trump verður sá dýrasti í heiminum n Hver míla kostar að meðaltali tæplega 20 milljónir dollara n Rís ekki á methraða„Þið fáið múr ólíkan öllum öðrum. Hann verður sterkur, frábær múr. Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is MYND: GETTHY Yfirlýsingaglaður Mikið hefur verið skrafað um múr Donalds Trump. Mynd: Getty Images

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.