Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 32
32 31. janúar 2020 Gamla auglýsingin Helgarpósturinn - 27. febrúar 1986Tímavélin Þ etta er bara einhver ein­ beiting sem ég get ekki gert mér grein fyrir,“ sagði Njáll Torfason aflrauna­ maður í viðtali á Stöð 2 árið 1993. Það hafði þá vakið mikla athygli og eftirtekt þegar í ljós kom að Njáll var fær um festa á sig ýmsa hluti úr járni, postulíni og plasti, að því virtist með hugarorkunni einni saman. Njáll var á þessum tíma orðinn þekktur aflraunamaður og hafði nokkrum mánuðum áður sett tvö heimsmet. Hann hafði annars vegar tætt í sundur tíu símaskrár á 1,16 mínútum og hins vegar hafði hann gengið á grófum gler­ brotum, sem voru brotin á staðn­ um og því gjörsamlega óslípuð. Það sem kom Njáli á sporið var lítil frétt í Morgunblaðinu þar sem greint var frá Rússa sem var fær um að festa við líkamann alls kyns járnhluti. Í júlí 1993 mætti Njáll á rit­ stjórn Morgunblaðsins til að sýna þessa ótrúlegu hæfni. „Þegar ég las um manninn í Morgunblað­ inu langaði mig til að vita hvort þetta væri hægt, því ég hélt eins og þú að þetta væri með lími eða einhverju. Ég uppgötvaði að þetta var ekkert mál fyrir mig,“ sagði Njáll meðal annars í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Sagðist hann hafa þreifað sig áfram með hluti eins undirskál­ ar, kveikjara og litla barnabók, en hlutir úr áli hentust þó frá. „Á meðan Njáll var að ná ró og einbeitingu var gengið úr skugga um að áhöldin væru ekki smurð með neinu sem gæti fest þau við líkamann. Sömuleiðis eftir sýn­ inguna voru áhöldin skoðuð eftir og það fór ekki á milli mála að þau voru hrein. Fyrst þegar Njáll reyndi að festa við sig hlutina féllu þeir svo til strax af líkamanum, en smám saman eftir því sem hann varð ró­ legri og gat náð meiri einbeitingu fóru hlutirn­ ir að festast. Og þar kom að straujárn, postulínsdiskur, skeið og gafflar sátu fastir á líkamanum. Eitt sinn missti hann skeiðina og eðlileg viðbrögð voru að kipp­ ast við, en samt sat straujárnið og diskurinn föst. Þegar sýningunni var lokið bað blaðamaður um að fá að taka annan gafallinn af og var ekki að finna að neitt væri á honum sem hugsanlega gæti fest hann við ennið. Tilfinningin var heldur ekki eins og um segul­ magn væri að ræða,“ skrifaði blaðamaður Morgunblaðsins. Sjálfur sagði Njáll að þetta væri ekki segulorka því segull held­ ur postulíni ekki föstu. „Ég veit ekki hvað þetta er, en ég hef alla tíð verið umvafin sérstakri orku,“ sagði hann meðal annars í sam­ tali við blaðamanninn og bætti jafnframt við að hann hefði verið skyggn frá barnsaldri. Það hefði háð honum alla tíð. Hugsunin hefur hreyfiafl Þetta sama ár birtist innslag í sjónvarpsþætti Stöðvar 2 þar sem Jón Ársæll og tökulið fylgdu Njáli eftir í einn dag þegar hópur fræði­ manna við Háskóla Íslands gerði á honum tilraunir. Vísindamenn á rannsóknarstofu í lífeðlisfræði, fylgdust með Njáli gera kúnst­ ir „sem fá hárin til að rísa á höfði manns“ eins og Jón Ársæll orðaði það. Þá voru viðstaddir kennarar í sálarfræði. „Njáll hóf að gera þessar ein­ stæðu tilraunir eftir að hafa lesið um rússneskan kraftaverka­ mann sem gat látið ýmisskon­ ar búsáhöld festast við líkama sinn. Það kom fljótlega í ljós að Njáll var enginn eftirbátur Rúss­ ans og reyndar bætti hann um betur. Njáll getur „haldið á“ ýms­ um munum sem ekki eru úr járni, svosem leirdiskum og plast­ hlutum og meira að segja strau­ járni, sem Rússinn getur ekki. Í dag sýndi hann ýmsum vísinda­ mönnum háskólans ótrúlega getu sína á þessu sviði,“ sagði Jón Ársæll við sjónvarpsáhorfendur. Þá var rætt við Guðmund Einarsson verkfræðing og leitað svara við hvaða kraftar þetta væru sem Njáll byggi yfir og brytu í bága við lögmál Newton um að­ dráttaraflið. „Þetta er eitthvað fyrirbrigði sem ég myndi telja að væri tengt hugsuninni, „psychogenesis“, hún hefur hreyfiafl,“ sagði Guð­ mundur meðal annars. „Ind­ verjar segja að heimurinn sé hugsun Guðs. Eins og þegar þú getur brotið glas með hugsun þá er talið að þú setjir hugaröld­ ur í gang, þannig að þær verða harmonískar við eðlistíðni efnis­ ins sjálfs. Þegar þú hittir akkúrat á það, splundrast glerið. Þetta hef­ ur verið gert undir eftirliti.“ Þá sagði Þór Eysteinsson taugalífeðlisfræðingur að þetta væru „hlutir sem hann hefði ekki séð áður.“ Hann hefði að vísu ekki gert mikið annað þenn­ an dag en að fylgjast með Njáli leika listir sínar, og því hefði hann ekki rannsakað það sem fram fór. Hann sagðist því lítið geta sagt til um hvað væri þarna að baki. „En þetta er athyglisvert.“ Sjálfur sagðist Njáll „alltaf hafa fundið fyrir þessum krafti“ en aldrei dottið í hug að láta reyna á þennan kraft, ekki fyrr en hann sá mynd af fyrrnefndum Rússa. „Þegar ég prufaði þetta, þú hefðir átt að sjá til mín, ég hló svo mikið. Ég var svo hissa sjálfur.“ n Íslendingurinn sem festi á sig hluti með hugarorkunni n Aflraunamaðurinn Njáll Torfason gat leikið á lögmál Newton n Vísindamenn gáttaðir Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Úr sjónvarpsþætti Stöðvar 2, þar sem fylgst var með Njáli. LJÓSMYND/YOUTUBE LJÓSMYND/YOUTUBE Njáll heimsótti skrifstofur Morgunblaðsins í júlí 1993 og lék listir sínar. Ljós- mynd/Tímarit.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.