Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Qupperneq 36
36 MATUR 31. janúar 2020 Umdeildasta matartrend ársins n Eftirrétturinn sem skiptir fólki í fylkingar n Verður það heitasta á þessu ári, eftir nokkur ár undir radarnum M atarsérfræðingar hafa kveðið upp sinn dóm um hverjir helstu straumar og stefnur í mat verða á árinu. Það vekur athygli að eitt af því sem spáð er mikilli velgengni er eftirréttarhummus, en hefðbundinn hummus er kjúklingabaunamauk sem saman stendur vanalega af kjúklingabaunum, tahini, hvítlauk, sítrónusafa, ólífuolíu og salti. Maukið er afar vinsælt í Mið-Austurlöndum og borð- að með ýmsum mat. Því reka eflaust margir upp stór augu yfir eftirrétt- arhummus, en það eina sem það á sameiginlegt með forrennara sínum eru kjúklingabaunirnar. Heimurinn heyrði fyrst um eftirréttahummus í raunveruleika- þættinum Shark Tank, þar sem frumkvöðlar keppast um fjárfestingu auðjöfra. Í þættinum fengu stofnendur fyrirtækisins Delighted By fjár- festingu upp á sex hundruð þúsund dollara til að framleiða eftirrétt- arhummus í ýmsum bragðtegundum. Síðan þá hafa önnur fyrirtæki vestanhafs hafið framleiðslu á réttinum. Þetta hummusafbrigði hefur hins vegar ekki náð heimsfrægð enn og er því spáð að árið 2020 verði ár þessa undarlega eftirréttar. Undarlegt er einmitt orð sem margir hafa um eftirréttarhummus. Ógeðslegt, viðbjóður og asnalegt eru önnur lýsingarorð sem hafa fall- ið um réttinn. Hins vegar eru einnig margir sem eru komnir á bragð- ið, telja þetta merkilegustu mataruppfinningu nútímans og líkja eftir- réttinum við eiturlyf. Það er leikur einn að búa til eftirréttarhummus heima fyrir og borða það með ávöxtum, snakki eða kexi, svo fátt eitt sé nefnt. Hér eru nokkr- ar hugmyndir að þessu einkennilega fyrirbrigði. n 425 g kjúklingabaunir án safa n 3 frosnir bananar n 2–3 msk. próteinduft n 2–4 msk. möndlumjólk n 1 tsk. vanilludropar n 1–2 msk. kókossykur eða annað sætuefni Setjið allt í blandara og blandið þar til maukið er silkimjúkt og kekkjalaust. Fallegt Mjög girnilegt hummus. n 425 g kjúklingabaunir án safa (skolaðar) n ¼ bolli hveiti (bakað í ofni við 175°C í 5 mínútur) n 2 msk. sykur n 1 msk. hlynsíróp n 1 msk. vanilludropar n ¼ tsk. lyftiduft n 1/8 tsk. salt n 1–2 msk. mjólk n kökuskraut Setjið öll hráefni í blandara eða matvinnsluvél, nema mjólk- ina. Maukið í um mínútu og bætið mjólkinni varlega saman við þar til réttri þykkt er náð. Smakkið til og skreytið með kökuskrauti. Gott með ávöxtum Smáköku- hummus er eins og kaka. n 370 g kjúklingabaunir án safa n 60–80 ml kókosmjólk n 50 g hrásykur n 2 msk. tahini (eða möndlu- smjör) n 1 msk. vanilludropar n 2½ tsk. kanill n ¾ tsk. salt n 100 g kókossykur n ¼ tsk. cream of tartar (má sleppa) Skolið kjúklingabaunirnar vel. Setjið þær í matvinnsluvél eða blandara ásamt öllum hinum hráefnunum. Byrjið samt á að setja bara smá af kókosmjólk og bætið henni varlega saman við til að ná réttri þykkt. Blandið þar til maukið er kekkjalaust og best er að setja það í ísskáp í hálftíma áður en það er bor- ið fram. n 425 g kjúklingabaunir án safa n 1 msk. hnetusmjör n 3 msk. ólífuolía n ½ bolli kakó n ½ bolli kókossykur n 1 tsk. instantkaffi n 1 tsk. vanilludropar n ½ tsk. salt n 2–4 msk. vatn Setjið allt nema vatnið í mat- vinnsluvél eða blandara og blandið vel. Bætið vatninu varlega saman við þar til rétt þykkt næst. Banana- hummus Súkkulaði- hummus MYND: A VIRTUAL VEGAN KökudeigshummusSmákökuhummus MYND: BITTER SWEET BLOG Fallegt Mjög girnilegt hummus. Súkkulaðihummus Næstum því eins og súkkulaðikaka. MYND: MY FREE YOGA Margir möguleikar Hægt er að skreyta banana- hummus með ýmsu. Gott með ávöxtum Smáköku- hummus er eins og kaka. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.