Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2020, Blaðsíða 45
FÓKUS 4531. janúar 2020 stúdíóinu, en þá stoppaði hljóðmaðurinn mig af og sagði: „It’s ok, I cried too, every­ body cries when they see this“.“ Felur sig ekki á bak við gardínu Upplifir þú þig sem þekkt andlit? „Ég upplifi aldrei þessa tilfinningu að ég sé fræg, eins og ég ímynda mér að fólk sem vinnur ekki sambærilega vinnu sem felur í sér að vera áberandi á stórum skala hlýtur að upplifa. Ég er alltaf bara ég og það breyt­ ir því ekkert. Bruce Lee sagði einhvern tímann í viðtali þegar hann var spurður að þessu sama að það að vera stjarna eða vera kallaður stjarna væri bara hilling, tál­ sýn, blekking, það væri ekkert slíkt til. Ég finn að sjálfsögðu fyrir því að fólk þekk­ ir andlitið á mér og sumum finnst jafnvel sem þau þekki mig, sem mér finnst ekk­ ert að í sjálfu sér. Ég hef gaman af fólki og hef gaman af mannlegum samskiptum, en ég hef enga þörf fyrir að vera „idoliseruð“ enda er það bara hégómi sem ég kann al­ veg sérstaklega illa við. Ég tek takmarkað inn á mig, hvort sem það er neikvætt eða jákvætt. Ég er og verð alltaf bara það sem ég er og á þeim stað sem ég er, það er það sem gerist innra með manni sem skiptir mann mestu máli og ég held að allir geti verið sammála því. Mér líður oftast óþægi­ lega þegar verið er að hylla mig, frumsýn­ ingar og annað. Mér finnst meira gaman að skapa eitthvað sem ég er stolt af, ég flýt svo bara í gegnum svona hátíðarhöld, brosi, er kurteis og reyni að vera ég sjálf en ekki fela mig bak við gardínu. Ef ég er með að­ gerðarplan og tel verkefnið hafa tilgang og erindi fæ ég alltaf adrenalín svo best megi heppnast og að ég skili mínu til áhorfenda hvort sem það er að leika eða syngja, en þá er fókusinn á verkefninu sjálfu en ekki mér. Ég krullast hins vegar alveg upp í tánum og fæ í magann af meðvirkni ef ég á að ganga um rauða dregla og veifa til fólks, það er bara vandræðalegt.“ Hef aldrei verið með tékklista eða aðgerðaráætlun Finnst þér þú ferilslega fullnægð? „Ég hef vissulega þörf fyrir að skapa eitt­ hvað sem skemmtir mér og öðrum, það kveikir í mér. Þegar maður svo lítur til baka sér maður veginn, en þá er það vegur sem maður er búinn að ganga. Ég geng þetta líf til að sjá meira og helst að njóta þeirrar stundar og fólksins sem ég er stödd með á þeim tíma. Það er vissulega oftar hægara sagt en gert, en það er markmiðið. Fram­ tíðin er óskrifað blað og ég er vön að gera það sem mér þykir skemmtilegt, ég vona að ég haldi því áfram á þessari göngu minni. Ég er kaos í sjálfri mér og stundum líður mér eins og ég sé ekki beint að stjórna sjálf, heldur sé með stillt á „autopilot“ með inn­ sæið sem kompás. Svo verður endalaust af fólki og hugmyndum á vegi manns sem maður hefur hugrekki til að hlusta á og fylgja. Ég hef aldrei verið með neinn tékk­ lista eða aðgerðaráætlun, ef mig langar að syngja, geri ég það, ef mig langar að koma einhverju á framfæri geri ég það. Ef mig langar að leika, þá bara geri ég það líka, en fæst af þessu gerir maður einn síns liðs. Ég hef verið svo lánsöm að hafa hitt fólk sem veitir mér innblástur og mig langar að eyða tíma með og búa til eitthvað skemmtilegt og spennandi. Annars á ég mér ævilangan draum, það er að vera hamingjusöm. Allt sem ég geri miðar að því.“ Einræðisherrann sá eini sem fær að syngja Ágústa á tvö börn, þau Þorleif Óðin og Rebekku, en þau fylgdu móður sinni eftir meðan á upptökum Beforeingers stóð, bæði í Noregi og Litháen. Hún segir fram­ leiðendur þáttanna strax hafa gert sér grein fyrir því að þeir væru að ráða fjölskyldu í verkefnið en ekki einstakling. „Börn manns eru mikilvægasti hlekk­ urinn fyrir innihaldsríkt líf, ástin, kærleik­ urinn og tilgangurinn sem er innprentaður í okkur til að halda keðjunni. Að því sögðu er ég líka mikilvæg fyrir þau, til að fram­ fleyta þeim á minn besta máta. Ég þarf að vera til staðar fyrir þau en líka fyrir sjálfan mig. Ef ég er ekki í lagi þá skortir ekki bara mig eitthvað heldur þau líka. Þau munu alltaf vera númer eitt, fram yfir vinnu og annað, en þau þurfa mest á mér að halda í góðu standi, því þá gef ég þeim mest af því sem þau raunverulega þurfa. Ég var svo heppin að hafa Davíð Illugason og Bryn­ dísi, sem börnin mín elska og dá, með mér úti sem au­pair. Elínborg og Guðný vin­ konur mínar flugu með mér út í prufurn­ ar og Sveinn bróðir, Helga konan hans og mamma voru með mér á æfingaferlinu og önnuðust börnin mín, skemmtu þeim og menntuðu þegar ég var vant við látin. Þetta var því ekki síður auðgandi fyrir þau og allt miðað við þeirra þarfir. Við fengum bíl og íbúð og alla þá þjónustu. Framleiðendurn­ ir gerðu sér fulla grein fyrir að þeir væru að ráða fjölskyldu í vinnu en ekki bara mig eina. Annars hefði ég slaufað þessu verk­ efni.“ Það er óhætt að segja að Ágústa höfði mikið til barna enda blés hún ógleyman­ lega lífi í Línu langsokk samhliða því að syngja eitt lífseigasta lag allra teiknimynda, Þetta er nóg. Hún segir börnin sín lítið kippa sér upp við frægðarsól móður sinnar enda séu þau alin upp í samfélagi þar sem ekki er farið í manngreinarálit. „Þau vita að þetta er vinnan mín og finnst það bara fínn díll. Ég fæ fleiri frídaga en aðrir foreldar og get unnið mikið heima, við erum þakklát fyrir það. Þeim finnst ég bara vera venjuleg mamma og fólk starfar við ólík störf, en ekkert starf er merkilegra en annað. Ef þau heyra mig syngja í út­ varpinu þá er það bara stuð, en ég er frekar pirrandi ef ég er að syngja heima, þar má bara ein manneskja syngja og það er litli einræðisherrann, dóttir mín.“ Mun aldrei upplifa neitt þessu líkt Næsta verkefni Ágústu byggir einmitt á sönghæfileikum hennar en þann 14. febrúar mun hún efna til minningartón­ leika tileinkaða söngvaranum Prince sem haldnir verða á Hard Rock Café. „Mig langaði að syngja eitthvað öðru­ vísi, eitthvað sem kveikir í mér og veitir innblástur. Mig langaði líka að spila með Ómari Guðjóns, vini mínum, en við höf­ um spilað mikið saman síðustu tíu ár. Val­ entínusardagurinn var í sjónmáli og þá dúkkaði Prince upp í hugann. Vissulega verðugt verkefni enda maðurinn með breiðasta raddsvið sem hugsast getur, söng mikið í falsettu og samdi tónlist fyrir aðra söngvara einkum konur. Ég sá fyrir mér að með réttri nálgun og rétta fólkið mér við hlið gæti ég púllað þetta. Prince var ekki mikið í norminu, hann blandaði saman fjöldanum öllum af ólíkum tónlist­ arstefnum, notaði óhefðbundna hljóma­ samsetningu og fór óhefðbundnar leið­ ir í listsköpun sinni og framkomu sem og klæðaburði. Inntak tónlistarinnar var oft­ ar en ekki andlegt og líkamlegt ástarsam­ band. Árið 2007 fór ég á fyrstu tónleikana með honum og stóð í um það bil 100 metra fjarlægð frá honum þar sem hann söng öll frægustu lögin sín og svo óheyrt efni inni á milli. Það var þá sem ég féll fyrir honum, líkt og ég hefði hitt Jesú Krist í holdi og blóði. Upplifunin var úr þessum heimi, algjörlega óskiljanleg. Ég veit að ég mun aldrei upplifa annað þessu líkt það sem ég á eftir ólifað. Ég sé fyrir mér að fólk komi í hópum, einstæðir og pör í bland, fái sér eitthvað gott í kroppinn og njóti ástarinnar og fái jafnvel smá innblástur og upplyftingu, höldum upp á ástina, er nokkuð betra en einmitt það?“ n Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.