Íþróttablaðið - 01.08.1968, Page 4
Miðvikudagur 10. apríl:
Setning mótsins fór fram klukkan þrjú mið-
vikudaginn 10. apríl. Formaður mótsstjómar,
Hermann Stefánsson, flutti ávarp, en formað-
ur Skíðasambands íslands, Stefán Kristjánsson,
setti mótið með stuttri ræðu.
Þá var við setningu mótsins afhent stytta
til minningar um Einar heitinn Kristjánsson,
sem var fyrrum formaður Skíðasambands Is-
lands, en hann hefði orðið sjötugur á þessu
ári, hefði honum enzt líf. Styttuna gáfu vinir
hans og samstarfsmenn, og skal um hana keppt
í 15 km göngu á Skíðamóti Islands árlega.
Vinnst styttan til eignar þrisvar í röð eða fimm
sinnum alls.
Að setningu lokinni hófst mótið með keppni
í 10 km göngu 17-19 ára unglinga og því næst
15 km göngu karla.
Ganga 17 — 19 ára og 20 ára og eldri.
Lýsing göngubrautar.
Gangan hófst í Hrappstaðaskál norðan og
neðan við Mannshrygg í 650 m hæð. Gengið var í
suður frá markinu og síðan beygt til austurs
og svo til norðurs á ofanverðri Stórhæð. Fyrstu
200 — 300 m voru á jafnsléttu, en þá hallaði
aðeins undan niður á Stórhæðina. Norður eftir
henni var að mestu gengið á jafnsléttu, en hægt
undanhald var norður af hæðinni niður á 610
m yfir sjó. Rétt norðan við brekkurótina var
1 km frá rásmarki. Brautin lá nú norður fjall-
ið austan við girðingu, sem þar er, en nokkuð
frá henni víðast hvar. Þegar komið var norður
undir girðingarhornið, beygði brautin til norð-
vesturs upp fyrir girðinguna og hækkaði þá
upp í 650 m. Þar voru 2 km frá rásmarki. Nú
beygði brautin til suðurs og lækkaði aftur. Var
nú gengið suður Hrappstaðaskálina á nokkuð
flötu landi, en þó var þessi kafli aðeins á fótinn.
Síðan beygði slóðin í suðvestur og var þá geng-
ið beint upp ca. 300 m brekku. Þetta var erf-
iðasti kafli leiðarinnar. Þegar upp var komið,
voru 3 km frá rásmarki og brautin í 725 m
hæð yfir sjó. Nú var stefnt í suðaustur og nokk-
urt undanhald fyrst, en síðan beygði brautin
aftur til vesturs og svo til norðvesturs, þar til
4 km voru frá rásmarki. Þessi hluti brautarinn-
ar var nokkuð öldóttur og léttur yfirferðar. Við
4 km markið var hæsti hluti brautarinnar, 750
m yfir sjó. Þaðan lá slóðin all bugðótt til suð-
urs og suðausturs niður lægð eina, sem liggur
að mestu í austur, og að lokum beygði slóðin
í suður og í markið.
Öll leiðin var 5 km. Hæðarmismunur 140 m.
Úrslit í 10 km göngu 17—19 ára:
1. Sigurður Gunnarsson, 1
2. —3. Halldór Matthíasson, A
2.—3. Guðjón Höskuldsson, 1
4. Kári Jónsson, P
5. Ásmundur Eiríksson, F
Sex voru ræstir, einn hætti.
67:08 min.
67:46 mín.
67:46 mín.
68:31 mín.
68:38 mín.
Vinir og samstarfsmenn Einars
heitins Kristjánssonar, fyrrum
formanns Skíðasambands Islands,
gáfu styttu til minningar um
hann. Hér sést Hermann Stefáns-
son, formaður IBA og formaður
mótsstjórnar, veita styttunni við-
töku, en Stefán Kristjánsson, for-
maður SKl, sést til vinstri á
myndinni.
188