Íþróttablaðið - 01.08.1968, Qupperneq 5
Þegar ganga yngri flokksins hófst um kl.
16, var sólbráð og 6 gráðu hiti við markið.
Allhvass sunnan- og suðvestanvindur var á
og fór vaxandi, þegar leið á gönguna. Var
þessi veðurhæð keppendmn til mikils óhagræð-
is, og má segja, að menn hafi varla ráðið sér
í efsta hluta brautarinnar í hvössustu hryðjun-
um.
Fyrsti sigurvegari mótsins varð Sigurður
Gunnarsson frá Isafirði. Var hann ræstur ann-
ar af þeim, sem göngunni luku, næstur á eftir
Ásmundi Eiríkssyni úr Fljótum, og var sigur
Sigurðar ekki minni fyrir það, að hann var
brautryðjandi mestan hluta leiðarinnar.
Úrslit í 15 km göngu 20 ára og eldri
1. Trausti Sveinsson, F
2. Gunnar Guðmundsson, S
3. Kristján R. Guðmundsson, 1
4. Stefán Jónasson, A
5. Gunnar Pétursson, t
6. Birgir Guðlaugsson, S
7. Sigurjón Erlendsson, S
8. Sigurður Sigurðsson, 1
9. Elías Sveinsson, í
10. Júlíus Arnarsson. A
11. Siguröur Steingrímsson, F
12. Sigurður Jónsson, 1
13. Halldór Margeirsson, 1
14. Davið Höskuldsson, 1
Sextán voru ræstir, tveir hættu.
Ganga eldri flokkanna hófst um kl. 17. Þá var
3 gráðu hiti við mark, en skuggi færðist yfir
göngusvæðið. Varð þá mikið rennsli í slóðinni,
Trausti Sveinsson úr Fljótum
— Islandsmeistari í 15 km og 30 km skíðagöngu —
en skel utan slóðar. I lok göngunnar var hita-
stig 0° C við mark.
Trausti Sveinsson, Fljótamaður, sem hafði
rásnúmer 13, sigraði meistara fyrra árs, Gunn-
ar Guðmundsson frá Siglufirði, með nærri
einnar mínútu yfirburðum og sýndi góðar fram-
farir frá því í fyrra, en þá varð hann fjórði
í þessari grein. Rásnúmerið reyndist Trausta
því engin óhappatala, en hann vann nú fyrsta
íslandsmeistaratitil sinn.
1-22:52 klst.
1-23:45 klst.
1-26:39 klst.
1-29:01 klst.
1-29:23 klst.
1-29:53 klst.
1-32:53 klst.
1-35:34 klst.
1-36:23 klst.
1-41:32 klst.
1-41:51 klst.
1-52:06 klst.
1- 59:25 klst.
2- 02:18 klst.
Frá setningu Skíðamóts Islands
1968. ■— Þær myndir, sem fylgja
þessari grein, tók Matthías Gests-
son, ljósmyndari á Akureyri.
189