Íþróttablaðið - 01.08.1968, Blaðsíða 7
Birgir Guðlaugsson frá Siglufirði varð meist-
ari í norrænni tvikeppni í þriðja sinn (áður
1964 og 1967). Hann er með beztu mönnum
hér bæði í stökki og göngu, en honum tókust
stökkin í tvíkeppninni ekki eins vel og í stökk-
keppninni, sem hann náði öðru sæti í. I 15 km
göngunni varð hann sjötti bæði í fyrra og núna,
en hefur þrívegis orðið göngumeistari fyrir
nokkrum árum.
Sigurjón Erlendsson, sem varð unglinga-
meistari í norrænni tvíkeppni í fyrra, varð ekki
langt á eftir Birgi í þetta sinn og á væntan-
lega eftir að láta enn betur til sín taka á næstu
árum.
Birgir Guðlaugsson frá Siglufirði
— Islandsmeistari í norrænni tvíkeppni —
Siglfirðingarnir tveir, sem luku keppni í norrænni
tvíkeppni. Birgir Guðlaugsson, sigurvegarinn, til
vinstri, en Sigurjón Erlendsson til hægri.
Árdís Þórðardóttir frá Siglufirði
— Islandsmeistari í stórsvigi og alpatvíkeppni —
Úrslit í stórsvigi kvenna:
1. Árdís Þórðardóttir, S
2. Karólína Guðmundsdóttir, A
3. Sigríður Júlíusdóttir, S
4. Marta B. Guðmundsdóttir, R
5. Guðrún Siglaugsdóttir, Á
6. Hrafnhildur Helgadóttir, R
Úr leik Birna Aspar, A.
1:33,4 min.
1:35,4 mín.
1:39,2 mín.
1:41,9 mín.
1:45,4 mín.
1:49,3 min.
Brautarlengd: 1350 m. Fallhæð 390 m. Hlið:
43. 7 hófu leik.
Stórsvigsbrautin hófst efst í Reithólum, lá
niður hólana og endaði í miðju Fossgili.
191