Íþróttablaðið - 01.08.1968, Qupperneq 9
Laugardagur 13. apríl:
Boðganga J^xlO km.
Brautarlýsing.
Gangan hófst sunnan og neðan við Stórhæð,
skammt frá Skíðahótelinu. Markið var í 575
m yfir sjó. Gengið var til norðurs neðan við
Stórhæðina, og lækkaði brautin þá lítið eitt (í
550 m). Farið var upp gilið norðan við Stór-
hæðina upp fyrir girðingu, sem liggur þvert
um fjallið. Þangað voru 2500 m frá markinu.
Nú lá brautin lítið eitt í suðvestur upp Stór-
hæðina að norðan, en beygði síðan til norðurs
og lá í nokkrum krókum norður Hrappstaða-
skálina, að mestu vestan við girðingu. Þegar
komið var út að girðingarhorninu, beygði slóð-
in til norð-vesturs og lá norður af ásnum norð-
an við Hrappstaðaskálina, þar beygði slóðin
aftur til suðurs og niður í Skálina. Þessi krók-
ur norður á ásinn var um 500 m. Þegar halla
tók suður og niður í Hrappstaðaskálina, var
komið í 650 m yfir sjó, og var þá leiðin hálfnuð.
Suður Skálina lá slóðin í töluverðum krókum,
þar til kemur að girðingunni, sem liggur nið-
ur Mannshrygg norðan í Stórhæðinni (frá
vestri til austurs). Gengið var upp með girð-
ingunni að norðan, þar til komið var í 660 m
hæð, en þá lá slóðin suður með brekkurótun-
um og síðan niður og austur sunnan við girð-
inguna, sem síðast var nefnd. Þá lá slóðin í
krókum vestan við Stórhæðina og síðan suður
af hjallanum og í krókum suður fjallið, vestan
við skíðahótelið, þar til komið var suður fyrir
raflínuna, sem liggur að Strompnum. Þar beygði
slóðin aftur til norðurs og 1 krókum niður brekk-
urnar að endamarkinu.
Brautin var 10 km og hæðarmismunur 110 m.
Gangan hófst kl. 13,30, og var þá sólbráð
og andvari af suðri. Hiti var 4 gráður. Göng-
unni lauk kl. 16,23. Eftir því sem á gönguna
leið, batnaði færið. Þá lygndi og fór heldur
kólnandi. Við lok göngunnar var hiti 3 gráður.
Úrslit:
1. Akureyri:
Júlíus Arnarsson 45:13 mín.
Sigurður Jónsson 40:52 mín.
Halldór Matthíasson 38:33 mín.
Stefán Jónasson 38:57 mín.
2-43:35 klst.
Reynir Brynjólfsson, Akureyri
— Islandsmeistari í stórsvigi —
2. Siglufjörður:
Sigurjón Erlendsson 45:09 min.
Birgir Guðlaugsson 41:15 mín.
Þórhallur Sveinsson 39:58 mín.
Gunnar Guðmundsson 39:06 mín.
Fljótamenn: 2-45:28 klst.
Ásmundur Eiríksson 45:12 mín.
Kári Jónsson 43:00 mín.
Frímann Ásmundsson 39:49 mín.
Trausti Sveinsson 37:47 mín.
Isafjörður A-sveit: 2-45:48 klst.
Sigurður Sigurðsson 47:16 min.
Sigurður Gunnarsson 41:01 mín.
Gunnar Pétursson 44:30 mín.
Kristján R. Guðmundsson 38:16 mín.
Isafjörður B-sveit: 2-51:03 klst.
Elías Sveinsson 45:46 mín.
Guðjón Höskuldsson 44:57 mín.
Sigurður Jónsson 42:10 mín.
Davíð Höskuldsson 41:49 mín.
2-54:42 klst.
193