Íþróttablaðið - 01.08.1968, Page 14
fSLAND 1968
Norðurlandamót í
körfuknattleik
Árið 1962, þegar sænska körfuknattleiks-
sambandið varð 10 ára, buðu Svíar hinum
Norðurlandaþjóðunum til keppni í Stokkhólmi
um bikar, sem þeir nefndu „Polar Cup“. Þá var
samin reglugerð fyrir Polar Cup-keppnina sem
meistaramót Norðurlanda í körfuknattleik.
Síðan hefur mótið verið haldið á tveggja ára
fresti í Helsinki og Kaupmannahöfn.
Þegar ákveðið var á ráðstefnu norrænu
körfuknattleikssambandanna í Kaupmannahöfn
um páskana 1966, að „Polar Cup“ skyldi hald-
ið í Reykjavík um páskana 1968, fannst körfu-
knattleiksmönnum KKÍ hafa færzt allmikið í
fang, en komizt jafnframt í feitt.
Undirbúningur að mótinu var allur hinn
bezti, og á undirbúningsnefndin, sem skipuð
var þeim Magnúsi Björnssyni, Helga Sigurðs-
syni og Einari Matthíassyni, lof og þakkir skil-
ið fyrir vel unnin störf, svo og allur sá fjöldi
áhugamanna, sem vann við mótið. Dómarar
mótsins voru Leo Ahlbom (Finnland), Torben
Steen-Nielsen (Danmörk), Lennart Rörgren
(Svíþjóð), Stein Evju (Noregur), Ingi Gunn-
arsson (Island) og Marinó Sveinsson (Island).
Dómararnir voru allir góðir, en áberandi var,
hve norski dómarinn vann starf sitt vel, og var
hann ekki síður sveittur en leikmexm.
Mótið fór fram í Laugardalshöllinni. Var það
«ett þar nákvæmlega kl. 2 laugardaginn 13. apríl.
Menntamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason,
setti mótið, og Lúðrasveitin Svanur lék þjóð-
söngva landanna, en áður höfðu liðin fimm
gengið inn á gólf hallarinnar með dómara og
glímumenn, sem fánabera hvers liðs, í broddi
fylkingar. Var setningarathöfnin hátíðleg í alla
staði.
Fyrsti leikurinn var milli Dana og Norð-
manna. Danir sýndu skemmtilegan leik og unnu
með yfirburðum, 100 stigum gegn 29. Allmikill
byrjendabragur var á leik Norðmanna, enda er
íþróttin á talsverðu byrjunarstigi þar í landi.
Þetta var í annað sinn, að Norðmenn tóku þátt
í Polar Cup. Talsverð forföll voru í norska lið-
inu, m. a. sat bezti maður liðsins, Pál Vik, snú-
inn á ökla á varamannabekkjunum.
Mikill spenningur ríkti meðal Islandinga um
næsta leik, sem var milli Svía og íslendinga, en
til þess að vinna 2. sætið í keppninni varð ís-
lenzka liðið að vinna Svía. Greinilegt var, að
Fyrirliði íslenzka liðsins, Kolbeinn Pálsson, heilsar fyr-
irliða þess sænska, áður en leikur hefst.
198