Íþróttablaðið - 01.08.1968, Blaðsíða 16
og Norðmanna, og töpuðu Norðmenn eins og áð-
ur með miklum mun, 56 stigum gegn 131. Finn-
ar sýndu mjög mikla leikni eins og áður.
Síðasta dag mótsins, mánudaginn 15. apríl,
hófst keppni klukkan 9,30 á leik Finna og Is-
lendinga. Þessi leikur var bezti leikur Islands í
mótinu, og missti margur af góðum og eftir-
minnilegum leik. Nú sýndi íslenzka liðið vel,
hvað bezt í því býr. 85:70 urðu lokatölurnar,
tap, sem þó var stórsigur fyrir Islendinga, mið-
að við fyrri getu í leikjum við Finna.
Islenzka liðið byrjaði vel og hafði eitt stig
yfir um miðjan fyrri hálfleik, en þá náðu Finn-
ar mjög góðum leikkafla. Höfðu Finnar forystu
í leikhléi 43:27, og leit því út fyrir stórsigur
þeirra. En íslenzku liðsmennirnir, með Kolbein
í broddi fylkingar, mættu fílefldir til leiks í síð-
ari hálfleik og sigruðu í þeim hálfleik með einu
stigi, 43:42. Kolbeinn gætti Pilkevaara og fórst
það vel úr hendi, enda skoraði Pilkevaara ,,að-
eins“ 15 stig í þessum leik. Bezti maður íslenzka
liðsins var þó tvímælalaust Þorsteinn Hall-
grímsson. Hann og Einar Bollason skoruðu
meginhluta stiganna, Þorsteinn 14 og Einar 12.
Auk þess voru þeir mest afgerandi menn liðs-
ins í seinni hálfleik. Einnig átti Birgir Jakobs-
son góðan leik, en hann er sterkur bæði í sókn
og vörn. Og ekki má gleyma Kristni Stefáns-
syni, sem var mjög góður, en skorti hörku og
úthald til þess að hafa við hinum risavöxnu
andstæðingum sínum í liðum Finna og Svía.
Finnar voru með aðallið sitt á leikvelli mestan
hluta leiksins. Kari Lahti átti beztan leik, skor-
aði 25 stig og hafði 83% hittni í tilraunum sín-
um, Pilkevaara átti mjög góðan leik eins og
endranær, og Kari Rönnholm lék einnig mjög
vel, skoraði 14 stig.
Seinni leikurinn þennan morgun var milli
Svía og Dana. Svíar höfðu alla yfirburði í þess-
um leik og höfðu þó varalið sitt á leikvelli mest-
allan tímann. Samt var Hanson stigahæstur
með 13 stig, þótt hann tæki ekki þátt í leiknum
nema í 10 mín. Fiigedi var einnig með 13 stig og
Gunná með 12 stig. Danir virtust eitthvað mið-
ur sín, og var þetta lélegasti leikur þeirra.
Birger Fiala og Arne Petersen skoruðu 8 stig
hvor og voru stigahæstir. Lokatölurnar urðu
88:46 (38:23) Svíum í vil.
Klukkan 14,30 léku íslendingar síðasta leik
sinn í mótinu, við Norðmenn. I þessum leik
settu bæði liðin „persónuleg met“ í skorun.
Norðmenn hafa aldrei skorað svo mörg stig í
einum leik og Islendingar ekki heldur. Beztu
leikmenn Islands voru Einar Bollason, Birgir
Jakobsson og Þorsteinn Hallgrímsson. Einnig
áttu Þórir Magnússon og Jón Sigurðsson
ágætan leik. Einar var stigahæstur með 24
stig. Hjá Norðmönnum var Leif Bráten stiga-
hæstur með 15 stig. Lokatölur urðu 123:59
(59:24), og ísland hlaut 3. sæti á Polar Cup
1968 eins og alltaf áður.
Þá var komið að hápunkti mótsins, úrslita-
leiknum milli Finna og Svía. Fyrir mótið höfðu
Svíar gert sér miklar vonir um 1. sætið og
sögðust aldrei hafa haft jafn mikla möguleika
og nú.
Finnar byrjuðu með sitt sterkasta lið: Lahti,
Rönnholm, Karell, Pilkevaara, Immonen, og
Svíar einnig: Grönlund, Lindelöf, Dahllöf,
Hanson og Albertsson. Finnar unnu uppkastið,
en skoruðu ekki fyrr en í 3. upphlaupi. Sví-
ar jafna, og leikurinn helzt jafn nokkra stund.
Þá átti finnska liðið frábæran kafla og náði tíu
stiga forskoti. Á þessu tímabili skoruðu Finn-
ar svo að segja í hverju skoti sínu og sýndu
ótrúlegt öryggi í langskotum. En Svíar nálg-
uðust aftur og komust yfir, en fyrir leikhlé
náðu svo Finnar 3 stigum yfir, 31:28. Seinni
hálfleikur var afar spennandi. Liðin skiptust
á um forystu framan af hálfleiknum. En þegar
8 mínútur voru af síðari hálfleik tóku Finnar
sér leikhlé og skiptu um leikmenn. Stuttu síðar
varð Rönnholm að yfirgefa völlinn vegna 5
villna, og stóðu leikar þá 39:39. I stað Rönn-
holms kom öldungurinn Kuusela, stigahæsti
leikmaður Polar Cup 1962 í Stokkhólmi og fyr-
irliði finnska liðsins. Þegar 9 mínútur voru
eftir, komust Svíar yfir í 44:43 og virtust vera
að ná yfirhöndinni. En Finnar, með Kuusela og
Pilkevaara sem beztu menn, sýndu enn mjög
góðan leikkafla síðustu mínúturnar og sigruðu
með 68 stigum gegn 63. Aldrei hefur verið svo
mjótt á mununum, Svíar höfðu lög að mæla,
þegar þeir töldu sigurmöguleika sína mikla —
en það vantaði þó herzlumuninn.
Hjá Finnum áttu þeir Pilkevaara og Kuusela
ásamt Lahti beztan leik, en hjá Svíum risarnir
Hanson og Albertsson auk Grönlund, sem hef-
ur ótrúlegan stökkkraft af svo smáum manni
(1.83).
200