Íþróttablaðið - 01.08.1968, Page 19
hikað við að setja sterkustu leikmenn félagsins
í leikbann fyrir agabrot eða óreglu, jafnvel
þótt það kunni að kosta tapleik. Það telja önn-
ur félög sér ekki fært, þau, sem við mannfæð
búa, en þyrfti að vera sjálfsagt í hverju félagi.
Því aðeins er hægt að brýna reglusemi fyrir
yngri félagsmönnum, að þeir eldri gefi gott for-
dæmi.
Leikaðferð Fram var óbreytt, sterkur varn-
arleikur og mest lagt upp úr öryggi í sóknarað-
gerðum. Að einu leyti fannst mér þó liðið mun
betra en í fyrra: leikhraðinn var oftast mun
meiri en áður var.
Haukar urðu í öðru sæti í 1. deild eftir líkan
feril og árið á undan. Þá töpuðu þeir fyrstu 3
leikjum sínum, en eftir það aðeins einum leik
fyrir Fram. Nú töpuðu þeir fyrstu 3 leikjunum,
en heldur ekki meiru, og íslandsmeistarana
burstuðu þeir með 30:18. Þeir unnu að vísu
Víking og KR með aðeins eins marks mun í
seinni umferðinni, en það undirstrikar kannski
bezt það, sem mér fannst einkenna liðið, en það
var einbeitni og sigurvilji, sem aldrei brást.
Liðsmenn Hauka eru sterkir og þolnir, og
liðið slær aldrei af hraðanum í leik sínum.
Knattmeðferð þeirra sumra ber reyndar með
sér, að þeir séu ekki beinlínis aldir upp með
knöttinn í höndunum, en þeir hafa næma til-
finningu fyrir samleik og gott auga fyrir veil-
um í vörn andstæðinganna.
Liðið er alljafnt að getu, Logi Kristjánsson
ágætur markvörður, en þó ekki áberandi bezti
maður liðsins eins og veturinn áður. Þórður
Sigurðsson og Stefán Jónsson voru sennilega
sterkastir í sókn, en það má einnig nefna Viðar
Símonarson og Sigurð Jóakimsson, og erfitt er
að gera upp á milli liðsmanna, því að styrkur
Haukanna liggur sízt í snilli einstaklinganna.
FH varð í þriðja sæti að þessu sinni, og er
ekki að efa, að liðsmönnum félagsins hefur þótt
þeir bíta í súrt. FH gerði jafntefli við Víking
og Fram, botnliðið og meistarana, í fyrri um-
Islandsmeistarar Knattspyrnufé-
lagsins Fram. 1 fremstu röð: Guð-
jón Jónsson, Ingólfur Óskarsson,
Björgvin Björgvinsson og Pétur
Böðvarsson. Aðrir frá vinstri:
Arnar Guðlaugsson, Ragnar Gunn-
arsson, Sigurður Einarsson, Gylfi
Jóhannesson, Þorsteinn Björnsson,
Gunnlaugur Hjálmarsson, Hinrik
Einarsson, Jón Pétursson, Hilmar
Ólafsson, þjálfari, Gylfi Hjálmars-
son og Guðmundur Gunnarsson. Á
myndina vantar Sigurberg Sig-
steinsson og Vilhjálm Knudsen.
203