Íþróttablaðið - 01.08.1968, Síða 20
ferð mótsins, en varð auk þess að þola þriggja
marka tap fyrir Val í þeirri umferð. Þar með
var liðið eiginlega búið að missa af strætis-
vagninum, og kann það að hafa valdið nokkru
kæiuleysi liðsins í seinni umferðinni, en þá
tapaði PH enn 2 leikjum, með 5 mörkum fyrir
Haukum og 11 mörkum fyrir Fram í síðasta leik
mótsins, sem þó var enginn úrslitaleikur í þess
orðs fyllstu merkingu, því að Fram þoldi tap,
en hefði engu að síður orðið meistari.
Liðið er þó að flestu leyti gott, en sá stóri
veikleiki er í leik þess, að of mikið er byggt á
snilli eins manns, Geirs Hallsteinssonar, sem
tvímælalaust er leiknasti handknattleiksmaður
íslands í dag. Knattmeðferð hans er oft svo
stórkostleg, að orð fá engan veg lýst, og hraði
hans hlýtur að reynast hverri vörn áhyggju-
efni. Þegar hann forfallaðist einn leik, stóð liðið
eftir eins og höfuðlaus her, vonlaus og dapur, og
á þó á að skipa ekki lakari mönnum en Erni,
bróður Geirs, og Birgi Björnssyni, landsliðs-
þjálfara, sem alltaf er traustur leikmaður,
þótt kannski megi telja hann kominn af léttasta
skeiði handknattleiksmanna.
Valsliðið byrjaði mjög vel í mótinu, tapaði
með aðeins tveggja marka mun fyrir Fram á
milli jóla og nýárs, en vann alla aðra leiki fyrri
umferðar og var þannig í öðru sæti að mótinu
hálfnuðu. Þar með var meðbyr liðsins lokið, því
að í seinni umferðinni tapaði Valur hverjum
einasta leik, að vísu naumt 4 þeirra, fyrir Fram
og Víking með einu marki, fyrir KR með tveim
og fyrir Haukum með þremur mörkum.
Liðið var þannig vel baráttuhæft, meira að
segja mjög gott á köflum, en það vantaði í það
eldmóðinn, sem skapar sigur. Ég verð að viður-
kenna, að ég bjóst við meiru af þessu liði eftir
mótinu 1967 að dæma, en það er eins og pilt-
arnir kunni vel við sig í 4. sæti ár eftir ár,
öruggu sæti í deildinni, og lengra nái metnaður
þeirra ekki fyrir hönd félags síns, þótt vart
verði í liðinu einstaklingsmetnaðar, sem á köfl-
um spillir góðum leik liðsins. Einn liðsmaður
fannst mér bera af, en það er Bergur Guðna-
son, sem er mjög vaxandi leikmaður og sýndi
auk þess sérstakt öryggi í vítaköstum í þessu
móti. Þá á Valur fljótlega afbragðs handknatt-
leiksmann, þar sem Jón Karlsson er, reynist
þessi ungi maður eins og efni standa til.
KR kom upp úr 2. deild á ný eftir eins árs
dvöl þar, barðist hraustlega fyrir sæti sínu í
deildinni og hélt því með 3 unnum leikjum, 2
sigrum á Víking og sigri á Val i seinni umferð-
inni. Liðið var ekki sérstaklega sigurstranglegt,
einkum var markvarzlan léleg, og því fylgir
alltaf leiðinlegri varnarleikur og erfiðari, þegar
ekki má treysta markmanninum og stöðva verð-
ur sérhvert skot með einhverjum ráðum, ólög-
legum, ef ekki vill betur. Hilmar Björnsson var
tvímælalaust bezti maður liðsins og Gísli Blönd-
al ein fastasta skytta mótsins, en of einhæfur
og þungur til þess að teljast í fremstu röð.
Víkingur féll niður í 2. deild að þessu sinni,
en mikið má breytast, ef lið félagsins leikur
þar nema árið. Liðið stendur þó mest og fellur
með 2 mönnum, þeim Jóni Hjaltalín Magnús-
syni og Einari Magnússyni, sem báðir léku með
landsliðinu í vetur. Þannig varð liðið gjörsam-
lega bitlaust, ef þessara leikmanna var sérstak-
lega gætt, og hvað Jón snertir, var það óþarf-
lega fyrirhafnarlítið, þar sem hann skaut eink-
um með uppstökki á sama stað á vellinum. Jón
verður að gæta þess að einhæfa ekki skotin,
ella er hann höfuðverkur hvers markmanns og
hverrar varnar, því skot hans eru með ólíkind-
um föst og nákvæm oftast nær. I miðju móti
bættist Víkingi þó liðsmaður, sem var því mikil
styrkur. Var það Jósteinn Kristjánsson.
Víkingur fékk aðeins 3 stig í mótinu, en það
segir ekki alla sögu, því að aðeins 13 mörk sett
til viðbótar á réttum augnablikum hefðu fært
liðinu 11 stig og 2. sætið í mótinu, og á sama
hátt hefðu 3 mörk gegn KR í seinni leiknum
forðað Víking frá fallinu. Víkingsliðið gerði
semsé jafntefli við FH í fyrri umferð og tapaði
fyrir Val með 1 marki. í seinni umferðinni tap-
aði Víkingur svo 2 leikjum með 1 marki hvor-
um, þ. e. leikjunum við FH og Hauka, og 2 leikj-
um með 2 mörkum hvorum, þ. e. leikjunum við
KR og Fram. Óneitanlega sorgleg staðreynd
fyrir Víkinga, en jafnframt gleðileg staðreynd
fyrir alla handknattleiksunnendur, að munur-
inn á efstu liðum í 1. deild og því neðsta skuli
ekki vera meiri en raun ber vitni.
2. deild karla
Til keppni í 2. deild karla voru skráð 6 lið,
en lið IBV var dregið út úr keppninni og ekki
reiknað með. Hafði liðið þó farið til Akureyrar
og leikið þar 2 leiki við IBA.