Íþróttablaðið - 01.08.1968, Blaðsíða 22
3. flokkur karla
I 3. aldursflokki karla kepptu 10 lið í 2 riðl-
um, og verður ekki annað sagt en að flest hafi
þau verið mjög góð, þegar litið er til þess, hve
þarna eru ungir piltar á ferð. Handknattleikur
á Islandi er ekki á flæðiskeri staddur, þegar
þeir, sem eiga að taka við eftir nokkur ár, eru
þegar orðnir svo góðir sem raun bar vitni í
þessu móti.
A. m. k. sá ég í þessum aldursflokki þann
handknattleik, sem mér fannst taka öllu öðru
fram í þessu móti — og var þar þó um lið að
ræða, sem ekki komst í úrslit, heldur varð í
öðru sæti í sínum riðli. Á ég þar við 3. fl. FH,
sem ég sá vinna Hauka með 13:4 í bráðsnjöll-
um leik. Var þó Haukaliðið langt frá því lélegt,
tapaði t. d. með aðeins einu marki fyrir Víkingi,
sem sigraði í riðlinum og vann síðan Fram með
8:7 í úrslitaleik.
Víkingsliðið, sem sigraði, er bráðefnilegt —
og sama má einnig segja um lið Fram, Ármanns
og KR, en KR-liðið varð í öðru sæti í sínum
riðli, tapaði engum leik, en gerði 2 jafntefli.
A-RIÐILL:
u
1. Pram 3
2. KR 2
3. Ármann 2
J T Mörk Stig
1 0 44:25 7
2 0 42:35 4
0 2 38:33 4
4. IR 1 1 2 35:40 3
5. ÍBK 0 0 4 30:56 0
B-RIÐILL:
U J T Mörk stig
1. Víkingur 4 0 0 36:30 8
2. PH 3 0 1 43:27 6
3. Þróttur 2 0 2 32:34 4
4. Haukar 1 0 3 30:40 2
5. Valur 0 0 4 26:36 0
Úrslit: Vikingur-Fram 8:7
Meistaraflokkur kvenna.
Valsstúlkurnar urðu nú íslandsmeistarar í 5.
skipti í röð, unnu alla sína leiki með yfirburð-
um, nema leikinn við Ármann, sem þær unnu
með ,,aðeins“ 2 mörkum.
Var nú leikið í einni deild, því aðeins 8 lið
voru skráð til leiks, en eitt þeirra, lið IBV,
hætti fljótlega þátttöku og var ekki reiknað
með.
Þessi 7 lið voru 5 fyrstu-deildarlið frá fyrra
ári og 2 efstu lið 2. deildarinnar, IBK og UBK.
Eitt 1. deildarlið fyrra árs vantar því í hópinn,
lið FH, sem Reykjavíkurfélögin Fram og Ár-
mann skiptu sín á milli, en ekki varð það sú
vítamínsprauta, að dygði til að hnekkja einveldi
Valsstúlknanna, þótt FH hefði skipað annað
sæti 1. deildar árið áður.
tslandsmeistarar Knattspyrnufé-
lagsins Víkings í 3. aldursflokki.
t fremri röð frá vinstri: Ágúst
Þórðarson, Reynir Olgeirsson,
Guðgeir Leifsson, Kristján
Óskarsson og Kristinn Sigurðs-
son. 1 aftari röð frá vinstri: Viðar
Jónsson, Guðmundur Stefánsson,
Skarphéðinn Óskarsson, Guðjón
Magnússon, Einar Einarsson og
Pétur Bjarnason, þjálfari. Á
myndina vantar Gunnar Bjarna-
son.
206