Íþróttablaðið - 01.08.1968, Qupperneq 23
Valur Árm. Fram Vík. KR UBK IBK Mörk Stig
1. Valur X 13:11 11:7 12:5 19:6 20:9 24:7 99:45 12
2. Ármann 11:13 X 11:11 13:12 10:8 15:8 17:10 77:62 9
3. Fram 7:11 11:11 X 8:8 12:5 18:11 22:6 78:52 8
•t. Víkingur 5:12 12:13 8:8 X 13:9 10:6 10:7 58:55 7
5. KH 6:19 8:10 5:12 9:13 X 11:8 11:9 50:71 4
6. UBK 9:20 8:15 11:18 6:10 8:11 X 24:15 66:89 2
7. ÍBK 7:24 10:17 6:22 7:10 9:11 15:24 X 54:108 0
Ármannsliðið færðist þó verulega upp í röð-
inni, var nú í 2. sæti, en næstneðst í 1. deild
árið áður. Féklr Ármann þó minnstan hlut við
skiptin á FH-liðinu.
Ef ég man rétt, lýsti ég því yfir í grein um
HMÍ 1967, að mér hefði fundizt lágt risið á
handknattleik stúlknanna, sem þær sýndu í
Laugardalshöllinni. Ég get því miður ekki
skýrt frá því, að það, sem ég sá til þeirra í
vetur, hafi breytt þeirri skoðun minni — og ég
held enn fram þeirri hugmynd minni, að leiðin
til bóta sé að taka upp tvöfalda umferð hjá
stúlkunum eins og er í báðum deildum meist-
araflokks karla.
2. flokkur kvenna.
Eini ijósi punkturinn, sem ég sá í handknatt-
leik kvenna á þessu móti, var úrslitaleikurinn í
2. flokki milli Fram og KR, en hann fór fram í
gamla hjallinum á Hálogalandi, sem enn sem
fyrr, þótt undarlegt megi virðast, hefur mesta
stemningu, mesta leikgleði og oft. ágætan hand-
knattleik yngri flokkanna fram að bjóða.
I 2 fl. kvenna kepptu hvorki meira né minna
en 12 lið. Léku þau í 2 riðlum, eins og sjá má á
úrslitatöflunni, og sigruðu ofangreind lið hvort
í sínum riðli.
Fram-stúlkurnar, sem léku yfirvegaðri leik,
sigruðu svo í þessum úrslitaleik með 6 mörkum
Islandsmeistarar Knattspyrnufé-
lagsins Fram í 2. aldursflokki.
Fremri röð frá vinstri: Guðríður
Halldórsdóttir, Andrea Steinars-
dóttir, Elín Hjörleifsdóttir, Kol-
brún Þórarinsdóttir, Guðrún
Sverrisdóttir og Kristín Orradótt-
ir. 1 aftari röð frá vinstri: Eva
Geirsdóttir, Sigríður Magnúsdótt-
ir, Oddný Sigsteinsdóttir, Þórdís
Ingólfsdóttir, Sigrún Sigurðar-
dóttir og Ingólfur Óskarsson,
þjálfari stúlknanna.
207