Íþróttablaðið - 01.02.1975, Síða 23

Íþróttablaðið - 01.02.1975, Síða 23
TTUR ILL, - LITRÍKUR! FRÁ FUNDI FRAMKVÆMDA- STJÓRANNA — Glenn Morris er fjölhæfasti íþrótta- maður allra tíma, sagði bandaríski olympíuþjálfarinn eftir sigur Morris í tugþraut á Olympíuleikuum í Berlín 1936. Glenn Morris hlaut 300 stigum meira en næsti maður og setti ótrúlega gott heimsmet, hlaut 7900 stig eftir þá- gildandi stigatöflu. Ýmsir drógu þessi ummæli Robertsons í efa og höfðu þá í huga frábært afrek Jim Thorpe í tugþraut frá Olympíuleik- unum í Stokkhólmi 1912, en hann var dæmdur atvinnumaður í íþróttum og verðlaunin tekin af honum, eins og mörgum er kunnugt. Yfirburðir Thorpe voru enn meiri, en þess ber að geta, að keppnin var harðari og æfingar almenn- ari 1936. Hverjár sem skoðanir manna eru, þá er hægt að vera sammála um, að íþróttaferill Glenn Morris var ein- stæður og afrek hans frábær. Hann keppti í fyrsta sinn í tugþraut sjálft ólympíuárið 1936 og sama ár varð hann olympíumeistari á nýju glæsilegu heims- meti! Glenn Morris fæddist árið 1912 á bóndabæ rétt utan við Simla í Colorado. Á unglingsárunum iðkaði hann töluvert frjálsar íþróttir, en amerískur fótbolti heillaði hann þó mest og hann tók þátt í keppni á háskólaárunum. Eftir sigur landa hans Jim Bausch í tugþraut á Olympíuleikunum í Los Angeles 1932, kviknaði áhuginn fyrir frjálsum íþróttum að nýju. Hann keppti í 400 m grindahlupi, varð unglingameist- ari og hlaut þriðja sæti á bandaríska meistaramótinu. Árið 1935 hóf Glenn Morris að undirbúa sig af alvöru fyrir tugþraut, hann tók þátt í fyrstu tugþraut- inni í apríl 1936 í Kansas og sigraði á nýju bandarísku meti, 7576 stigum. Á úrtökumótinu í Milwaukee sló hann heimsmetið, hlaut 7880 stig og þann árangur bætti hann í Berlín og hlaut 7900 stig, eins og fyrr segir. Þrátt fyrir sigurinn og yfirburðina í Berlín var fyrirfram búist við harðri keppni í tugþrautinni. Á æfingum fyrir keppnina fann Morris til meiðsla í læri, sem háði honum mjög í köldu veðri, en það var ekki hlýtt í Berlín um þess- Framh. á bls. 45 Dagana 7. og 8. nóv. s.l. béldu fram- kvæmdastjórar norrænu Iþróttasainband anna fund í Reykjavík til undirbúnings ráðstefnu Iþróttasambandanna á Norð- urlöndum, sem haldinn verður hér á landi í júnímánuði 1975. Mörg mál verða þar til umræðu og mun fþróttablaðið að sjálfsögðu greina ýtarlega frá þeim fundi siðar. Framkvæmdastjórarnir héldu sinn fund á skrifstofu f.S.f. og eru þeir á myndinni talið frá vinstri: Emanuel Rose Danmörku, Joel Juppi Finnlandi, sem mætti í stað Mauri Oksanen fram- kvstj. finnska sambandsins, Hermann Guðmundsson, Thor Hernes Noregi og Bo Bengtson Svíþjóð. Bo Bengtson varð sextugur á s.l. sumri og af því tilefni var hann sændur Heið- ursorðu Í.S.Í., er honum var afhent á fundinum. Við sama tækifæri afhenti hann Gisla Halldórssyni forseta .S.f. Heiðursorðu sænska íþróttasambandsins, en Gísli var sæmdur henni s.l. sumar. 23

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.