Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 5

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 5
i blaóinu Heimsókn á Selfoss Íþróttalíf á Selfossi hefur verið mjög fjölskrúðugt og blómlegt um langt árabil, og nú hafa Selfyssingar hafið nýja sókn. fþróttaaðstaða í kauþstaðnum er nú orðin eins og best verður á kosið og hefur hið nýja íþróttahús gjörbreytt allri aðstöðu til innanhússíþrótta. Selfyssingar hyggjast starfrækja íþróttamiðstöð í sumar, og er ekki að efa að margir verða til þess að notfæra sér þá ágætu aðstöðu sem er í kaupstaðnum. fþróttablaðið brá sér nýlega í heimsókn til Selfoss og kynnti sér þar íþróttaaðstöðu og íþróttalíf, ræddi við for- ystumenn og fleiri og birtist frásögn um þá heimsókn í blaðinu að þessu sinni. Ekki bara leikur Það er sagt að íþróttamenn eigi að hafa það í huga þegar þeir ganga til leiks að ekki megi kappið bera fegurðina ofurliði. Því miður er þaó svo að þegar þrautþjálfuð lið atvinnumanna eigast við í íþróttum þá vill þessi gullna regla stundum gleymast og hatrið og harkan ræður ríkjum. Um þetta er fjallað í grein í fþróttablaðinu, og margar Ijótar sögur sagðar. Þótt Evrópu- búar kvarti oft yfir því að of mikil harka sé í íþróttaleikjum eru þeir þó hreinir englar á við Suður-Ameríkumenn sem eru hreint ekki vandir að meðulum í leikjum sínum. Útilíf Gunnar Bender fjallar um útilíf í blaðinu, — segir frá skemmtilegri gönguleið í ná- grenni höfuðborgarinnar og ferð að hæsta foss landsins, Glym í Botnsdal, auk þess sem hann skrifar um laxveiðar og þá sér- staklega eina veiðiferð sína í Norðurá í fyrrasumar. Hannes Eyvindsson Nú fer keppnistímabil golfmanna senn að hefjast og því vel við hæfi að spjalla við íslandsmeistarann í golfi, Hannes Ey- vindsson. Hannes hefur lagt mikla rækt við íþrótt sína, allt frá því að hann var ungl- ingur, og árangurinn hefur orðið eftir því. íslandsmótið í knattspyrnu fslandsmótið í knattspyrnu er það íþróttamót á fslandi sem flestir taka þátt í og mest athygli beinist að. fþróttablaðið spjallar við tíu knattspyrnumenn — einn úr hverju 1. deildar liði, um komandi fslands- mót og horfur liða þeirra í mótinu, svo og álit þeirra á andstæðingunum. Forsíðumyndin í tilefni þess að knattspyrnumenn hafa nú dustað rykið af skónum birtum við mynd af ungum og glöðum knattspyrnu- strákum sem voru að ganga tii leiks í vor- móti fyrir skömmu. í sumar munu hundr- uðir slíkra strákaleikja fara fram um allt land, þar sem knattspyrnumenn framtíð- arinnar reyna með sér. Myndina tók Jens Alexandersson. 5

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.