Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 9
- fjallað um helstu íþróttamannvirki og
íþróttalíf á Selfossi og rætt vifl Sæmund
Stefánsson formann UMF Selfoss
Öli Þ. Guðbjartsson sýndi okkurhið nýja og glæsilega íþróttahús.
Óli Þ. Guðbjartsson skólastjóri
á Selfossi, sagði að kostir þessa
húss væru margir. Sem dæmi
nefndi hann að í húsinu væri
mjög fullkomin lýsing og væri
þetta eini staðurinn þar sem
kappleikir eða hliðstæð íþrótta-
starfsemi færi fram sem hægt
væri fyrir sjónvarpið að sjón-
varpa beint út. Þá nefndi hann
einnig loftræstinguna sem á sín-
um tíma hefði kostað 50 milljónir
og væri eitt dýrasta loftræstikerfi
sem uppi væri hér á landi. Óli
sagði einnig að gert hefði verið
ráð fyrir því við byggingu hússins
að hægt yrði að útbúa einskonar
leikhús ef Selfyssingar þyrftu á
að halda. Sagði hann að hljóm-
burður í húsinu væri einstaklega
góður og það væri algengt að
hljómsveitir héldu þar ýmiss
konar hljómleika.
í íþróttahúsinu er öll vinnuað-
staða til mikillar fyrirmyndar.
Kennarar og baðverðir hafa hver
sitt herbergi og vinnuaðstöðu.
Mjög góð baðaðstaða er í húsinu
og í heild er húsið til mikillar
fyrirmyndar hvað hreinlæti
varðar.
Áhorfendarými er þó nokkurt
og með góðu móti má koma fyrir
um 600 áhorfendum en húsið
tekur um 500 manns í sæti.
Undir sjálfum íþróttasalnum
er 500 fermetra kjallari sem
hugsaður er undir alls kyns fé-
lagsstarfsemi í framtíðinni. í dag
eru hinar ýmsu íþróttagreinar þar
með bráðabirgðaaðstöðu en
greinilegt er að þetta húspláss
býður upp á mjög marga mögu-
leika varðandi félagsstarfsemi.
Ekki hefur enn verið gengið
endanlega frá því hvernig þeirri
starfsemi verður háttað.
Þessa ungu og hressu stráka hitt-
um við í sundlauginni og þeir
brugðu á leik fyrir ijósmyndarann.
í lokin má geta þess að nokkrir
landsleikir hafa farið fram í
íþróttahúsinu á Selfossi og hafa
allir látið mjög vel af því að leika
þar.
Sundlaug Selfoss
Fram til ársins 1977 var ein-
ungis ein sundlaug á Selfossi,
16,67 metrar á langd og gefur
auga leið að svo lítil sundlaug
hefur ekki þjónað sundþörf bæj-
arbúa. Það kom líka vel í ljós árið
1977 þegar Selfyssingar keyptu
plastlaug frá Akranesi en þessi
sama laug var vígð á Landsmót-
inu á Akranesi 1974, að þröngt
hafði verið búið um Selfyssinga
varðandi aðstöðu til sundiðkana.
Aðsóknin margfaldaðist og segja
má að sundlaugin ásamt íþrótta-
húsinu hafi markað merk tíma-
mót i allri íþróttasögu Selfyss-
inga. Sem dæmi um aukninguna
í sundið má nefna að á síðasta ári
sóttu um 70 þúsund manns laug-
amar, en útilaugin stendur við
9