Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 10
útilaugina og þegar gott er veður
má sjá þar margan manninn.
Hnáturnar voru að læra sund, og biðu þolinmóðar eftir þvíað kennarinn
kæmi og leiðbeindi þeim. Kannski eru þetta sunddrottningar framtíðar-
innar.
Sólaraukinn við sundlaugina. Margir hafa notfært sér þessa þjónustu og
fá sér brúnan lit á kroppinn.
sundlaugarbygginguna. Þetta er
gífurleg aðsókn, þegar það er haft
í huga að íbúar á Selfossi eru um
3300.
En það er hægt að gera fleira
en synda þegar maður kaupir sér
aðgang að laugunum. Á neðri
hæð sundlaugarbyggingarinnar
er leikfirr:«alur þar sem hinn al-
menni borgan getur gert hinar
ýmsu leikfimiæfingar og einnig
er þar aðstaða til lyftinga og
margvíslegrar heilsubótar. Þar
eru og svokölluð þrekhjól, ein
fjögur.
Sólaraukinn nýtur
gífurlegra vinsælda
Að sögn Sæmundar Stefáns-
sonar forstöðumanns lauganna
gerir fólk mikið að því að notfæra
þessa séraðstöðu sér til hressingar
og um fram allt til heilsubótar.
„Svo erum við með eitt undra-
tæki hér sem við köllum sólar-
aukann, en það er eins konar
lampi í formi legubekks. Liggi
fólk í þessum lampa verður það
sólbrúnt án bruna og auk þess
losar þetta um vöðvastreitu og
alla spennu. Þetta’ tæki nýtur al-
veg gífurlegra vinsælda. Fólk
verður að panta tíma í þetta en
10X30 mínútur kosta aðeins 190
krónur,“ sagði Sæmundur og var
greinilega stoltur yfir þessu tæki.
Þetta er eina sundlaug landsins
sem hefur yfir slíku tæki að ráða.
Enn frekari aðstöðu er til að
dreifa við sundlaugarnar. Þar eru
svokallaðir heitu pottar með
mismunandi heitu vatni. Vað-
laug er þar einnig utandyra og er
hún ætluð þeim yngri. Þá er sól-
baðsaðstaða mjög góð í kringum
íþróttavellimir
á Selfossi
Tveir löglegir knattspyrnuvell-
ir eru á Selfossi. Einn malarvöllur
og einn grasvöllur. Umhverfis
hann er hlaupabraut og í fram-
tíðinni er ætlunin að leggja á hana
tartanefni en slíkt efni er komið á
allar atrennubrautir vallarins.
Báðir knattspyrnuvellimir eru
sérlega góðir en nokkuð vantar
þó á að búningsaðstaða sé full-
nægjandi og er sömu sögu að
segja um aðstöðuna við sund-
laugarnar.
Umhverfi vallanna er sérlega
skemmtilegt, grasivaxnir hólar
skilja þá að og þar Iiggja áhorf-
endur í náðum hlíðum er gott er
veður.
Nýr golfvöllur
við Alviðru
Mikill áhugi er fyrir golfi á
Selfossi og nágrannabyggðum.
Golfmenn hafa nýlega flutt sig
um set. Þeir hafa ráðist í lagningu
nýs golfvallar við Alviðru, rétt
vestan við brúna yfir Sogið. Áður
iðkuðu menn golfið skammt fyrir
austan Selfoss. Völlurinn við Al-
10