Íþróttablaðið - 01.05.1981, Side 11
viðru er ekki fullgerður enn, en
þess verður ekki langt að bíða að
9 holu völlur verði að veruleika,
og þá ættu þeir kylfingar að geta
æft íþrótt sína af kappi.
Íþróttalíf á
Selfossi
Með tilkomu þessara helstu
íþróttamannvirkja sem að fram-
an er lýst hefur íþróttalíf á Sel-
fossi aukist verulega og er mjög
blómlegt í dag. Fjöldi manns
stundar hinar ýmsu íþróttagrein-
ar og hefur áhugi á íþróttum farið
stöðugt vaxandi á seinni árum.
Flestir þeir sem íþróttir stunda
eru í Ungmennafélagi Selfoss en
þeir eru einnig margir sem
stunda íþróttir einungis til
heilsubótar en ekki með keppni
fyrir augum. Það er engu þýð-
ingarminna atriði og ekki verður
sagt annað en að yfirvöld
íþróttamála á Selfossi hugsi vel
um þann hóp fólks sem trimmar.
En til að fræðast betur um
íþróttalífið á Selfossi og eins
starfsemi Ungmennafélags Sel-
foss ræddum við stuttlega við
formann þess en það er einmitt
Sæmundur Stefánsson sem að
framan er getið.
Um 900 félagar
í UMF Selfoss
Við spurðum Sæmund fyrst að
því hver væru helstu verkefni
Ungmennafélagsins á næstunni
og hve margir félagsmennirnir
væru?
„Næsta stórverkefni hjá okkur
er þátttaka í Landsmóti UMFÍ
sem fram fer á Akureyri í sumar.
Við erum þegar farnir að undir-
búa okkur undir það. Einnig má
nefna að UMF Selfoss verður 45
ára 1. júní næstkomandi og við
ætlum okkur að reyna að halda
veglega upp á það afmæli.
Félagar í Ungmennafélaginu
eru um 900 en það er þó tæplega
raunhæf tala þar sem margir eru
þátttakendur í fleiri en einni
íþróttagrein. Raunhæf tala er
líklega um 600. Við leggjum
stund á nokkuð margar íþrótta-
greinar en þær helstu eru: knatt-
spyrna, handknattleikur, frjálsar
íþróttir, sund, lyftingar, borð-
tennis, badminton og karate, en
það er yngsta greinin hjá okkur
og er fyrir henni þó nokkur
áhugi,“ sagði Sæmundur.
Hugi og knattspyman
Selfyssingar hafa um nokkurt
skeið átt marga góða íþrótta-
menn. Flestir kannast eflaust við
sundmanninn Huga S. Harðar-
son, en hann hefur um nokkurt
árabil, þrátt fyrir ungan aldur,
verið í fremstu röð í sundinu.
Annan knáan sundmann mætti
nefna en það er Tryggvi Helga-
son.
Knattspyrnulið Selfoss hefur
staðið sig ágætlega og nægir þar
að minna á frammistöðu liðsins í
íslandsmótinu í fyrra. Liðið var
neðarlega fyrri hluta móts, en
eftir að Magnús Jónatansson tók
við liðinu fór að ganga betur og
þegar upp var staðið var liðið vel
* j
nmi L|<j&í.ýilk
íþróttahúsið hefur mikið aðdráttarafl fyrir ungu kynsióðina á Selfossi og aðstaða hennar hefur gjörbreyst
með tilkomu þess.
11