Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 15

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 15
miðstöðvar muni tækifæri þeirra unglinga og íþróttahópa sem áhuga hafa á að dveljast í æf- ingabúðum aukast verulega. Við teljum að við getum boðið upp á íþróttaaðstöðu sem ekki finnst annars staðar á íslandi. Hér á Selfossi er öll aðstaða eins og best verður á kosið og það sem gerir íþróttasvæðið hér sér- staklega vel fallið til reksturs slíkrar miðstöðvar er að okkar mati það, hversu mannvirkin eru á litlu svæði. Þeir íþróttahópar sem munu koma til með að dvelja hér munu fá gistingu í Gagn- fræðaskólanum og þar verður einnig starfrækt mötuneyti. Þá fær hver hópur aðgang að öllum íþróttasölum, íþróttavöllum, sundlaugum og öðrum útivistar- svæðum að eigin vild. Þá verðum við einnig með ferðir fyrir ungl- ingana í Þrastarskóg en þar er sérlega skemmtilegt svæði til úti- veru og einn skemmtilegasti knattspymuvöllur landsins. Nú aðdragandinn eða ástæðan fyrir því að við förum út í þennan rekstur er aðallega sá að reyna að nýta öll þau íþróttamannvirki sem hér eru á Selfossi, nýta að- stöðuna allt árið. Með rekstri slíkrar íþróttamiðstöðvar sem hér er að fara af stað teljum við okkur vera að tryggja slíka nýtingu,“ sagði Jón. Kostar aðeins 90 krónur á dag fyrir manninn Ekki verður sagt að þeir Sel- fyssingar husi sér þetta sem eitt- hvert gróðafyrirtæki því verði er mjög stillt í hóf. Verðið er 90 krónur (9000 gamlar) fyrir manninn á dag. Innifalið í því er fæði og húsnæði og auk þess ótakmörkuð afnot af öllum íþróttamannvirkjum á staðnum. Þá getur viðkomandi einnig farið í skemmtiferðir í Þrastarlund eins og að framan greinir. Ætlunin er að hafa hesta á boðstólum og einnig geta unglingarnir skoðað Sundaðstaðan er orðin eins og best verður á kosið. ýmis söfn og fyrirtæki á Selfossi. Mörg skemmtileg söfn eru á Sel- fossi og má þar nefna Minja- safnið og Hið íslenska dýrasafn sem flutt var fyrir nokkru til Sel- foss. Reksturinn þríþættur Hvemig verður rekstrinum aðallega háttað Jón? „Það má segja að hægt sé að skipta rekstrinum í sumar í þrjú atriði. Þau eru í fyrsta lagi að taka á móti íþróttahópum sem hafa aðgang að öllum íþróttamann- virkjum á Selfossi. í öðru lagi verðum við með svokallaðan íþróttaskóla fyrir krakka hér hér á Selfossi og í þriðja lagi mun HSK reka sínar sumarbúðir. Þar gefst krökkum úr nágranna- byggðarlögum kostur á að koma saman. Kenndar verða íþróttir farið í hina ýmsu leiki og á kvöldin verða kvöldvökur.“ Að gera mikið fyrir lítið Eru íþróttahópar þegar famir að panta hjá ykkur? „Já það hefur verið þó nokkuð um það. Við erum búnir að senda öllum íþróttafélögum, ung- mennafélögum og héraðssam- böndum bréf þar sem vakin er athygli þeirra á þessari starfsemi okkar og pantanir eru þegar famar að berast. Við höfum mikla trú á að þetta geti blessast. Hér er bókstaflega allt sem til þarf, aðstað er hvergi betri og verðinu er stillt í hóf. Hvað mun það kosta ykkur að „starta“ íþróttamiðstöðinni? „Þetta er mikið fyrirtæki eins og gefur að skilja en við reiknum 15

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.