Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 19
Guðmundur Jónsson, formaður HSK:
„Undirbúningurinn er hafinn
fyrir landsmótið í sumar”
Iþróttaáhugi er mikill á Selfossi og ungir sem eldri æfa vel, ekki síst með
tilliti til næsta landsmóts UMFÍ.
„Jú við erum famir að
undirbúa okkur fyrir lands-
mótið á Akureyri sem fram
fer í sumar og við ætlum
okkur stóra hluti þar sem
endranær,“ sagði hinn
þekkti íþróttafrömuður
Guðmundur Jónsson
(Mummi Jóns) á Selfossi en
hann er formaður Héraðs-
sambandsins Skarphéðins
(HSK).
„Hinar ýmsu nefndir og deildir
eru þegar famar að undirbúa sig
fyrir mótið en það er mikið fyrir-
tæki að taka þátt í jafn stóru og
fjölmennu móti og landsmót er
hverju sinni,“ sagði Guðmundur.
Héraðssambandið Skarphéð-
inn hefur aðsetur á Selfossi en
HSK spannar yfir Ámes- og
Rangárvallasýslu.
Það gefur auga leið að mikill
kostnaður hlýtur að vera samfara
þátttöku í svo stóru móti sem
landsmótið er og því inntum við
Guðmund eftir fjárhag sam-
bandsins.
„Jafnvel vonlaust
að dæmið gangi upp“
„Fjárhagslega séð gengur
starfsemin mjög illa þrátt fyrir
velvilja ýmissa aðila. Okkur
vantar alltaf peninga. Fjáröflun-
arleiðir okkar eru heldur fátæk-
legar og við lifum mikið á betli
eins og mörg önnur héraðssam-
bönd. Þetta eilífa betl og allt það
svínarí sem því fylgir er að gera út
af við alla þá sem í því standa.“
Hverjar eru helstu fjáröflunar-
leiðir ykkar?
„Við leggjum mikla áherslu á
dansleikjahald og alls kyns sam-
komur og svo erum við alltaf
annað slagið með happdrætti í
gangi og eitt slíkt fer af stað í maí.
Við vonum að fólk taki því vel
því það er stór þáttur í okkar
fjáröflunarstarfssemi. Velta sam-
bandsins á síðasta ári var rúmar
16 milljónir gamalla króna en í
styrki frá Héraði, sem kallað er,
fengum við tæpar 5 milljónir
þannig að talsvert vantar upp á
að endar nái saman. Þá má eig-
inlega segja að það sé jafnvel
vonlaust að dæmið gangi upp,“
sagði Guðmundur Jónsson.
Guðmundur sem tók við for-
mennsku hjá HSK fyrir um það
bil tveimur mánuðum, bætti því
við í lokin og ítrekaði, að íþrótta-
fólkið í Skarphéðni væri staðráð-
ið í að standa sig vel á landsmót-
inu sem fram fer eins og áður
sagði á Akureyri í sumar. Hann
sagði að HSK hefði á síðasta
Landsmóti sigrað í frjálsíþrótta-
keppninni og unnið yrði að því
að halda þeim titli áfram í sumar.
Og að sjálfsögðu var Guðmund-
ur bjartsýnn á að það myndi tak-
ast.
Um 4000 meðlimir eru í HSK.
—SK.
19