Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 25

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 25
Nestor Togneri, argentínskur knattspyrnumaður, færður í fangelsi, eftir ruddaleik á knattspyrnuvelli. Þetta skeði eftir undanúrslitaleikinn í s-amerísku meistarakeppninni árið 1968. Estudiantes de la Plata. Liðið sem hefur yfir allskonar leikbrögðum að ráða sem ekki eru öll jafn heiðarleg, en virðast vera árangursrík, því marga góða sigra hefur þetta lið unnið. þessari keppni þrisvar sinnum frá því að hún hófst árið 1960, en oftsinnis hafa félagslið frá Brasilíu verið langtum betri en lið frá hinum Ameríkuríkjunum. Tvisvar vann liðið hans Pele, Santos keppnina, árin 1962 og 1963 og 1976 vann Belo Hori- zoate sigur. Harkan vex stig frá stigi Copa Liberadores er leikin á þann hátt að tvö bestu liðin frá Argentínu, Brasilíu, Chile, Uru- guay, Paraguay, Boliviu, Kolombíu, Perú Venezuela og Ecuador eiga þátttöku rétt í keppninni. Þeim er fyrst skipt í fimm riðla, og leikið heima og heiman. Sigurvegararnir úr riðl- unum komast síðan í milliriðla og sigurvegar úr þeim keppa um sigur í mótinu. Sumt af því sem skeð hefur í keppni þessari er næsta spaugi- legt. Eins og t.d. þegar Inde- pendient frá Argentínu og Penarol frá Uruguay mættust í úrslitaleik árið 1965. Þá átti markvörður argentínska liðsins mjög góðan leik, og fór það svo í taugamar á miðverði Penarol, að hann lét sig hafa það að eyða mörgum mínútum í að sparka og rífa upp stóra grastorfu úr vellin- um til þess að kasta framan í markvörðinn. Þetta var þó ekkert á móti því sem átti sér stað þegar argen- tínsku liðin Independiente og Estudiantes mættust í keppninni sama ár. Estudiantes hafði 2-0 forystu og réði lögum og lofum á vellin- um. Framkvæmdastjóri Inde- pendient tók þá ákvörðun að senda varamann inn á völlinn, — Urruzmendi hét sá — frægur þjarkur, og gaf honum skipun um að taka besta leikmann andstæð- inganna, Aguirre Suarez „úr sam- bandi.“ Urruzmendi rauk inn á völl- inn, framhjá dómaranum sem var að bóka leikmannaskiptin, hljóp beint að Suarez og barði hann niður með einu vel útilátnu höggi í andlitið þannig að hann missti meðvitund. Að svo búnu hvarf Urruzmendi rakleiðis af leikvelli og var kominn í bún- ingsherbergið, áður en dómarinn gat sýnt honum rauða spjaldið. 18 reknir af velli í öðrum leik í þessari keppni milli Boca Juniors og Sporting Cristal frá Peru sem fram fór í Buenos Aires 17. mars 1971 dró einnig verulega til tíðinda. Boca þurfti að vinna þennan leik til þess að komast í úrslit, en Cristal var hins vegar búið að missa af úrslitakeppninni. En liðið gat samt hjálpað löndum sínum í Universitario að komast í úrslit með því að ná stigi af Boca Juniors. Flestir spáðu Boca sigri og 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.