Íþróttablaðið - 01.05.1981, Síða 27
Coutinho leikmaður meö Santos hefursparkað Bolchi, leikmann Milans niður í úrslitaleik í heimsbikarkeppni
félagsliða og flýr síðan sem fætur toga undan reiðum Itölum.
skap. Það voru mikil læti í
Buenos Aires fyrir leik okkar við
Estudiantes, en það var samt sem
áður lognið á undan storminum,
eins og Matt Busby sagði, en
hann var búinn að ítreka það við
okkur að vera rólegir sama á
hverju gengi — að sýna þeim
hina kinnina ef við yrðum slegnir
utan undir.
Þegar við komum út úr göng-
unum sem lágu frá búningsher-
berginu að vellinum var kastað
plastpoka með blóðugu kjöti að
okkur. Hann hitti Bobby
Charlton í höfuðið og rifnaði
þannig að blóðið lak niður um
hann. Um leið og dómarinn
flautaði byrjuðu svo lætin. í hvert
einasta skipti sem leikmenn
argentínska liðsins héldu að
dómarinn sæi ekki til þá spörk-
uðu þeir í okkur eða hræktu á
okkur. Og sá eini sem var rekinn
útaf í leiknum var Nobby Stiles
— fyrir að mótmæla ákvörðun
línuvarðar. David Sadler var
verst útleikinn. Hann sneri heim
á leið með brotinn kjálka og
margar ónýtar tennur. í heima-
leik okkar voru George Best og
einn af Argentínumönnunum
reknir af velli, en sá hafði haft
það hlutverk „að afgreiða Best.“
Bardaginn við
River Plate
Árið 1967 mættust Celtic og
Racing Buenos Aires í úrslitaleik
í heimsbikarkeppninni og viður-
eign þeirra mun lengi í minnum
höfð, og getið sem dæmis um
hvernig knattspyrnuleikir eiga
ekki að vera. Celtic vann fyrri
leikinn sem fram fór í Skotlandi
1- 0 og Racing vann seinni leikinn
2- 1. Þriðji leikurinn varð því að
fara fram og var honum valinn
staður í Montevideo. Báðir fyrri
leikirnir höfðu þótt mjög grófir
og í Buenos Aires varð Celtic t.d.
að skipta um markvörð áður en
leikurinn hófst þar sem aðal-
markvörður liðsins, Ronnie
Simpson fékk stein í höfuðið
þegar hann var að hlaupa út á
völlin. En í Montevideo keyrði
fyrst um þverbak og hefur sá
leikur oft verið kallaður „Bar-
daginn við River Plate“. Skot-
arnir voru nefnilega ákveðnir í að
láta hart mæta hörðu, og sýna að
þeir gætu líka slegið frá sér ef því
væri að skipta.
Einn af leikmönnum Racing
sagði síðar í viðtali við tímaritið
Soccer Monthly: Þessi leikur var
ekkert óvenjulegur fyrir okkur.
Við vorum búnir að leika þrjá
leiki við Universitario í undan-
úrslitunum og þrjá á móti
Nacional Montevideo í úrslitum
Ameríkukeppninnar. Allir þeir
leikir voru bardagi og því vorum
27