Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 30
Hæsti foss landsins, Glymur íBotnsdal steypist niður íhrikalegt gljúfrið.
Tilkomumikil sjón.
frægur útilegumaður á 18 öld og
var um tíma í slagtogi með
Fjalla-Eyvindi og FIöllu. Það er
erfitt. að gera sér í hugarlund
hvernig lífið hefur verið þarna á
fjöllunum. Það hefur ekki alltaf
verið sældarlíf, og fáir til að
hlusta á þótt útilegufólkið hefði
viljað kvarta.
Það er margt að skoða á þess-
um slóðum, og það er óhætt að
hvetja alla þá sem ekki hafa
ferðast að Glym að láta nú verða
af því. Lengd göngunnar fer eftir
því hve langt fólk kýs að aka inn í
Botnsdalinn. Leiðin er þó ekki
lengri en svo að það er einungis
ágæt gönguferð að ganga alla leið
frá Botnsskálanum.
Landið er nú að vakna af vetr-
ardvalanum og skartar sínu feg-
ursta áður en langt um líður. ís-
lensk náttúra er engu lík þegar
hún er að vakna til lífsins eftir
langan vetur, og það er hverjum
manni bæði holt og dýrmætt að
fylgjast með hinum íslenska gró-
anda og lífinu sem er allt í kring-
um mann þegar leitað er út í
náttúruna.
Innan
um
stór-
kalla og
smá-
laxa
Stórlaxasumar. Það er
hið fyrsta sem kemur upp í
hugann nú þegar laxveiði-
tímabilið nálgast. Allir
þessir stóru laxar sem eiga
eftir að veiðast og enn fleiri
sem munu sleppa af króki
veiðimannsins. Kannski
veiða einhverjir drauma-
fiskinn sinn. Menn lifa
a.m.k. alltaf í voninni, eins
og ég gerði í fyrrasumar. En
þá rættust ekki draumarnir
um stórlaxinn. Allt um það
eru margar minningar sem
koma fram í hugann þegar
litið er til laxveiðitímans í
fyrra.
Norðurá í júlí. Það mátti út af
fyrir sig teljast kraftaverk að fá
veiðileyfi á þessum tíma og þama
er maður innanum sannkallaða
Gunnar Bender skrifar um útilíf og laxveiðar:
30