Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 41
sem ég hef tekið þátt í á erlendri
grund myndi ég segja að ég væri
fyrir ofan meðallag. Á síðasta
Evrópumóti, sem fram fór í Esj-
berg í Danmörku lenti ég í „holli“
með margföldum austurrískum
meistara. Ég lék að því að mér
fannst sæmilegt golf og náði að
vinna hann á 15. holu. íslenskir
kylfingar þurfa að fá fleiri tæki-
færi til að spreyta sig á erlendri
grundu. Við þurfum á aukinni
reynslu að halda og hana fáum
við ekki hér heima. Aðstaðan hér
er þokkaleg, langbest í Grafar-
holti en einnig er góður völlur í
Keflavík. Golfið er í stórsókn á
íslandi og henni þarf að fylgja
eftir.“
verð samt að játa að stundum
kemur fyrir að ég segi við hana:
bölvuð druslan þín, en ég meina
ekkert með því.“
Hver er þín sterkasta hlið í
golfinu?
Ég held að það séu upphafs-
skotin „drævin“ og púttin. Mér
finnst kylfan sem ég nota yfirleitt
í þau ákaflega skemmtilegt verk-
færi sem býður upp á marga
skemmtilega möguleika.
Ég hugsa að ég sé einna verstur
í sandgryfjunum enda hef ég æft
það mikið. En það er einhvern
veginn svo einkennilegt með mig
og það stingur ef til vill í stúf við
„Annað hvort hætti ég eða
geri eitthvað róttækt“
Hvað með framtíðina Hannes?
„Framtíðin hjá mér sem golf-
leikara er algerlega á huldu. Mér
„Ég segi stundum:
bölvuð druslan þín
en meina það ekki“
Ert þú hjátrúarfullur Hannes?
„Nei það held ég ekki. Alla-
vega ekki mjög mikið. Ég man þó
eftir því að ég notaði alltaf sömu
gerð af golfkúlum á síðasta ís-
landsmóti. Það var Kunlop og ég
notaði alltaf kúlu númer 4. Þetta
var ef til vill vottur af hjátrú en ég
get vel hugsað mér að nota aðrar
golfkúlur í framtíðinni.“
Talar þú nokkum tíma við
golfkúluna?
„Já það kemur oft fyrir að ég
ræði við hana en ég reyni að blóta
henni aldrei. Hún getur ekkert að
því gert hvert henni er skotið. Ég
Harrnes ,,púttar“ á síðasta íslandsmóti. Aðalkeppinautur hans Björgvin
Þorsteinsson fylgist spenntur með hvernig til tekst.
Þarna ereinhver vandi á höndum. Alla vega skín einbeitni úr svip Hann-
esar, þegar hann ,,reiknar“ úthvernig haga skuli högginu.
það sem ég áður sagði að ef ég æfi
vissa hluti of mikið fyrir mót fara
þeir versnandi og ég get alveg
eins átt von á því í viðkomandi
móti að allt fari þangað sem það
á ekki að fara. Þessu er til dæmis
þannig farið með upphafsskotin.
Við skulum segja að ég sé að fara
í mót á mánudegi. Ef ég æfi upp-
hafsskotin á sunnudeginum þá
get ég næstum bókað að þau fara
úr skorðum í mótinu sjálfu, flest
hver.“
Hver eru heilræði þín til ungra
kylfinga sem ætla sér að ná langt?
„Það er ekki um annað að
ræða en æfingar og aftur æfingar.
Golfið er þolinmæðisíþrótt sem
krefst þess af mönnum að þeir
leggi sig alla fram og æfi mjög
vel. Varðandi mig sjálfan vil ég
segja það að ég þakka árangur
minn í golfinu nær látlausum
æfingum mínum á yngri árum,
þegar ég var að byrja.
41