Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 46

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 46
„Við verðum í einu af þremur efstu sætunum” — segir Þór Hreiðarsson í Breiðablik „Ég hef góða trú á Breiðabliksliðinu og held að við eigum eftir að gera góða hluti í sumar,“ sagði hinn gamalkunni knatt- spymumaður úr Breiða- bliki, Þór Hreiðarsson, í stuttu rabbi við íþrótta- blaðið. Ég hef þá trú að mótið verði jafnara og skemmtilegra en oft áður. Liðin hafa lagt meira í þetta en oft áður og ég held að þetta verði mjög gott ís- landsmót. Ég held og raunar veit að við verðum í einu af þremur efstu sætunum en hvaða lið verða erfiðust er ekki gott að segja til um. Ég hef ekki séð það mikið til þeirra undanfar- ið og treysti mér varla til að spá fyrir um það. Þó veit ég að Víkingur og Fram verða sterk í sumar en ég vona bara að okkur takist að velgja þeim undir uggum. Það er ’alveg ómögulegt að spá nokkru um fallbaráttuna. Hún á eftir að verða jöfn og spennandi ekki síður en topp- ÍBV og Fram — liðin sem léku til úrslita um bikarinn í fyrra verða í sviðsljósinu og deildu með sérstigum í fyrsta leik mótsins. baráttan og þar verður ekkert gefið eftir. Þó hef ég trú á að þetta verði erfitt sumar fyrir Akureyrarfélögin, allavega Þór og jafnvel FH líka. Ann- ars er ekki hægt að spá miklu. Mörg liðin eru algert spurn- ingarmerki, ég veit ekki og treysti mér ekki til að spá um gengi þeirra í sumar,“ sagði Þór. Engu að síður tókst okkur að kría út spá hjá Þór og lítur hún þannig út: 1. Breiðablik 2. Fram 3. Vík- ingur 4. ÍA 5. Valur 6. KR 7. ÍBV 8. KA 9. FH 10. Þór. —SK. „FH-LIÐIÐ ER Hinn kunni knattspymu- maður úr Val, Ingi Bjöm Al- bertsson mun í sumar í fyrsta skipti þjálfa í 1. deild íslands- mótsins í knattspyrnu. Ingi Bjöm er löngu orðinn lands- þekktur knattspymumaður. Hann hefur undanfarið átt við meiðsli að stríða sem háð hafa honum mikið og þeirra vegna hefur hann þurft að fara í upp- skurð tvisvar nú á skömmum tíma. En hann er gott dæmi um íþróttamann sem ekki gefst upp þótt á móti blási og er 46

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.