Íþróttablaðið - 01.05.1981, Blaðsíða 51
„Framararnir verða sterkir í sumar”
- segir Skagamaðurinn Sigurður Lárusson
hjá Akureyrarfélögunum KA
og Þór. Einnig verða FH-ingar
að taka á honum stóra sínum
ef þeir eiga að forða sér frá
falli en ég spái því að þeir falli í
2. deild.“
Spá Sigurðar Lárussonar lítur
annars þannig út:
1. ÍA 2. Fram 3. Víkingur 4.
Valur 5. Breiðablik 6. ÍBV 7.
KR 8. Þór 9. KA 10. FH.
—SK.
„Stefnum að því að
halda sæti okkar
í 1. deild”
— segir Hinrik Þórhallsson KA
„Hér ríkir mikil bjartsýni og
allir vonast eftir góðum ár-
angri hjá liðinu í sumar,“ sagði
Sigurður Lárusson Skaga-
maður er hann var spurður um
horfur hjá ÍA í sumar. Skaga-
menn tefla nú fram nær
óbreyttu liði frá því í fyrra-
sumar. Jón Alfreðsson hinn
gamalkunni leikmaður hefur
þó hafið æfingar að nýju og
mun hann örugglega styrkja
liðið mikið í sumar. Skaga-
menn hafa einnig fengið til liðs
við sig Borgnesinginn Gunnar
Jónsson og vænta Skagamenn
mikils af honum á komandi
keppnistímabili. Þá hefur Jón
Gunnlaugsson horfið af Skag-
anum og mun hann þjálfa
Völsunga frá Húsavík í sumar.
„Þetta verður erfitt
sumar“
„Ég er viss um að þetta
verður mjög erfitt sumar hjá
flestum ef ekki öllum liðunum.
Flest liðin eru búin að æfa
mjög vel og svo er einnig um
okkur. Okkur vantaði herslu-
muninn í fyrra og með tilkomu
þessara nýju leikmanna vonum
við að okkur takist að sigra
sem allra flest lið í sumar,“
sagði Sigurður Lárusson.
Hvaða lið heldur þú að
verði í toppbaráttunni?
„Það er ekki gott að segja til
um það en ég á von á að
Framarar verði með sterkt
lið í sumar. Einnig verða Vík-
ingamir sterkir og svo við
auðvitað, en ég held að Vals-
menn verði ekki eins sterkir og
þeir hafa verið.
Ef við tölum líka um fallið
þá held ég að þetta verði erfitt
„Mér líst alveg ljóm-
andi vel á þetta íslands
mót sem nú er að hefjast.
Ég held að það verði mun
jafnara en venjulega og
að fleiri lið eigi mögu-
leika á að hreppa ís-
landsmeistaratitilinn í ár
en undanfarin ár,“ sagði
Hinrik Þórhallsson en
hann leikur í sumar með
Akureyrarliðinu KA en
Hinrik lék sem kunnugt
er með Víkingi í fyrra og
þótti standa sig afburða-
vel.
„Ég held að ekkert eitt lið
muni skera sig út úr um hvað
getu snertir og ég spái því að
öll liðin eigi eftir að hirða stig
hvort af öðru. Við í KA
stefnum fyrst og fremst að því
að halda sæti okkar í 1. deild-
inni og ef ég á að segja eins og
er þá er ég mjög bjartsýnn á að
það takist. Það verður örugg-
lega mjög erfitt en í KA-liðinu
eru margir mjög sprækir
strákar sem eiga eftir að sýna í
sumar hvað í þeim býr. í KA
hafa gengið nokkrir auk mín
og ég get nefnt nöfn eins og
Guðjón Guðmundsson sem
lék með IBK í fyrra. Hann er
einn af okkar betri bakvörð-
um. Þá hefur hinn snjalli
markvörður Gunnar Straum-
land gengið til liðs við okkur
úr Völsungi. Okkur vantar
ekki mannskap. Það er bara
spumingin hvemig gengur að
vinna úr þeim mönnum sem
fyrir eru í liðinu,“ sagði Hinrik
Þórhallsson.
Er við spurðum hann hverja
hann teldi erfiðustu andstæð-
ingana í sumar sagði hann að
það yrðu öll lið í deildinni en
vildi ekki nefna neitt eitt sér-
stakt lið í því sambandi. Við
fengum Hinrik til að spá fyrir
um röð liðanna og spá hans er
þannig:
1. Víkingur 2. Breiðablik 3.
ÍBV 4. Valur 5. ÍA 6. Fram 7.
KA 8. FH 9. KR 10. Þór.
— SK.
51