Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 56

Íþróttablaðið - 01.05.1981, Page 56
Baldur á skrifstofu sinni á Laugardalsvellinum. satt. Þetta stendur og fellur með veðráttunni. Annars var ég að horfa á ensku knattspyrnuna um daginn og mér sýndist vellirnir á Englandi ekki vera upp á marga fiska. Við þurfum örugglega ekki að bera neinn kinnroða fyrir leikmönnum Aston Villa hvað vallarskilyrði snertir, nema ef veðrið skyldi versna. Annars má ég til með að segja, að mér finnst þessi heimsókn Aston Villa það mikill hvalreki á fjörur íslenskra knattspymu- manna að við verðum bókstaf- lega að fóma einhverju fyrir hana. Þetta er einstakur viðburð- ur í íslenskri iþróttasögu að við skulum geta fengið að sjá sjálfa Englandsmeistarana nokkrum dögum eftir að þeir tryggðu sér titilinn. Ég á ekki von á öðru en að íslenskir knattspyrnuáhuga- menn sýni þéssum leik gífurlegan áhuga og ég verð svekktur ef áhorfendur verða færri en svona 10—12 þúsund.“ ,,Verð svekktur ef það koma ekki 10—12 þúsund." Treystum á Guð og gróðurmoldina Og þá er það þessi klassiska í lokin. Hvenær verður byrjað að leika á Laugardalsvellinum í ís- landsmótinu? „Við erum búnir að gera allt sem við getum gert til þess að það megi verða sem fyrst. Við erum búnir að sá í vellina, valta þá og eins erum við búnir að bera á þá og þetta höfum við gert undir stjórn garðyrkjumeistarans Björns Kristóferssonar sem hefur reynst okkur mjög vel. Ef tíðarfarið verður eins og það hefur verið undanfarið, þá verð- ur hægt að byrja að leika á Laugardalsvellinum eftir um vikutíma og ég er það bjartsýnn á þessum góða vordegi að ég er þess næstum fullviss að hægt verði að byrja um miðjan mán- uðinn. En ég endurtek það einu sinni enn að það er undir Guði komið og hinni íslensku gróður- mold komið hvort þessi draumur minn og margra rætist eða ekki. Kraftinn í íslensku gróðurmold- inni þekki ég og það þarf mikið að ganga á ef hún mun bregðast okkur,“ sagði Baldur Jónsson vallarstjóri að lokum. —SK. 56

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.