Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1989, Qupperneq 51

Íþróttablaðið - 01.04.1989, Qupperneq 51
Verið er að stækka San Siro leik- vanginn fyrir HM á Ítalíu 1990. miðjumanna annars vegar og miðju- manna og varnarmanna hins vegar var nánast alltaf hið sama. Og á með- an leikmenn Juventus djöfluðust hver í sínu horni eins og naut í flagi, léku leikmenn AC eins og englar. Einhver hafði á orði að það væri heiður fyrir leikmenn Juventus að leika á sama velli og leikmenn AC. Lítið bar á sovéska leikmanninum, Zavarov, í liði Juventus en miklar vonir voru bundnar við hann fyrir keppnistímabilið. Þess mátil gamans getaað hann hefur um 200.000 Ifrur í mánaðarlaun og auk þess afnot af íbúð og bíl. Lesendum til fróðleiks eru 200.000 lírur tæplega 80.000 krónur og þykja það ekki há mánað- arlaun á ítalfu. En hann kemur frá Sovétríkjunum þar sem menn fá ekk- ert gefins og sættir sig því örugglega við lág laun. Til samanburðar má geta þess að Marco Van Basten fékk um 40 millj- ónir íslenskra króna fyrir það eitt að skrifa undir samning þess efnis að leika í Diadora knattspyrnuskóm næstu 3 árin. Menn geta því rétt ímyndað sér hver mánaðarlaun leik- manna á Ítalíu eru. Allir verða millj- ónamæringar á því að skrifa undir samning við toppliðin þar í landi. En leikurinn þróaðist eins og við var að búast, leikmenn AC voru eins og kóngar á vellinum. Til að kóróna árangurinn sendu þeir 19 ára nýliða, Mannari, inn á þegar 20 mínútur voru eftir og sá gerði sér lítið fyrir og skoraði tvö mörk í sínum fyrsta leik. Gullit stóð sig gífurlega vel í liði AC og hafði mikla yfirferð. I þau fáu skipti sem hann átti slæma sendingu gerði hann allt sem hann gat til þess að vinna boltann aftur. Samvisku- semina skorti ekki hjá honum, hvað þá úthaldið og kraftinn. Stundum vann hann boltann á eigin vallar- helmingi, sendi hann út á kant og var svo mættur fyrstur inn í vítateiginn til þess að afgreiða fyrirgjöfina. Engin furða þótt hann sé ókrýndur konung- ur. Og ekki vantaði „húmorinn" í Gullit. Einhverju sinni átti Colombo fremur máttlaust skot á markið með Leikmenn AC fagna öðru marki Mannari og stórsigri gegn Juventus. vinstri fæti sem rétt dreif að marki. Gullit hljóp þá til hans með vinstri fótinn stífann og gaf til kynna að Co- lombo ætti að einbeita sér að því áfram að nota þann vinstri eingöngu til stuðnings. Tilþrifamiklum leik lauk með gíf- urlegum fagnaðarlátum viðstaddra og var hetjunum klappað lof í lófa. „Forza Milan!" ómaði um San Siro leikvanginn og stuðningsmenn AC heldu glaðir til síns heima. new balance Iþróttaskórnir eru í sérflokki — einu skórnir sem eru fáanlegir í mismunandi breiddum. UTIUF GLÆSIBÆ - SÍM182922 51
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.