Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1989, Síða 56

Íþróttablaðið - 01.04.1989, Síða 56
Þorgils Óttar fyrirliði gefur eiginhandaráritun. Fyrir framan Jón Hjaltalín er Valery hjálparkokkur íslenska liðsins meðan á keppninni stóð. okkur aukið sjálfstraust og liðið virk- aði Ifklegt til alls. Þaðjákvæða varað spilað var á fullu allan tímann og aldrei slegið slöku við. En liðinu hættir stundum til þess þegar góðri forystu hefur verið náð. Mikið er til í því sem Bogdan segir, en það er að þegar þú ert að spila við þjóðir sem þú etur ekki oft kappi við er um að gera að vinna þær eins stórt og mögulegt er. Leikmenn muna það alla ævi þegar þeir fá rassskellingu og það gefur ákveðið forskot næst þegar þessar þjóðir mætast. í öllum stórkeppnum eru gerð svokölluð „dóptest" á leikmönnum og var þessi keppni engin undan- tekning þar á. Eftir leikinn gegn Kuwait lenti leikmaður númer 13, Siggi Sveinss., í úrtakinu ásamt ein- um leikmanna Kuwait. Að leik lokn- um voru þeir teknir og settir í sérstakt herbergi þarsem þvagprufa vartekin. Fá þeir sem lenda í þessu ýmislegt að drekkatil aðauðvelda þeim róðurinn í rennslinu. Verður þá bjórinn yfirleitt fyrir valinu og eftir nokkra þá losnar Tap þýddi alls engin endalok um hjá flestum og þá fyrst mega þeir yfirgefa herbergið. Siggi Sveinss. sagði mér eftir á að þegar þeir voru spurðir, hann og markvörður Kuwait, hvort þeir hefðu neytt einhverra lyfja síðustu þrjá daga svaraði Siggi neit- andi en Kuwaitleikmaðurinn svaraði óttasleginn og skelfdur á svip: „Never in my life"! Svo það er greini- legt að í Kuwait gilda ströng viðurlög við lyfjaneyslu. Næst framundan var leikur gegn Rúmenum. Eftir að hafa séð þá leika fannst okkur þeir ekki eins sterkir og við áttum von á. Líkurnar á sigri voru góðar, en menn gerðu sér grein fyrir að leikurinn yrði erfiður og þó að leikurinn tapaðist þýddi það alls eng- in endalok. Leikurinn tapaðist 21-23, eins og allir vita, en hann var vel leikinn af okkar hálfu og hefði sigur- inn með smá heppni getað orðið okk- ar. Eftir leikinn lágu úrslit fyrir úr hin- um riðlinum. Hollendingar höfðu komist áfram á kostnað Noregs og Sviss vann V-Þýskaland. Ekki vorum við allt of hressir með þau úrslit en þau sýndu einungis að allt gat gerst. Færðum við okkur nú frá Cherbourg til Strassbourg þar sem milliriðillinn fór fram. I dagbókina skrifaði ég: „Sjálfur er égmjög bjartsýnn en til þessað verða A-þjóð að nýju þurfum við að leggja Sviss og Vestur-Þjóðverja að velli. Rúmenar verða eflaust efstir f riðlin- um en þó getur alltgerst!!" Upp frá þessu fóru hlutirnir að ger- ast og liðið spilaði sem smurð vél. Fyrstvoru V-Þjóðverjar lagðirað velli í stórkostlegum leik og þar kom í Ijós Guðjón, Valdi og Héðinn rólegheit- um á hóteli. hve gffurlegan metnað íslenska liðið hefur. Þrátt fyrir allt mótlætið í leikn- um, vankaða dómara og brottrekstur Stjána og Alla í seinni hálfleik, gafst liðið aldrei upp. Mótlætið þjappaði liðinu einungis enn meira saman. Með þessum sigri gerðum við það sem fæstir áttu von á og nú var kom- inn mikill hugur í menn. Héðan f frá yrði ekki aftur snúið. Þegar upp á hótel var komið vildi Bogdan strax fá fund með leikmönnum. Hann þakk- aði okkur fyrir sigurinn en benti á að enn gæti allt gerst og við yrðum að halda okkar striki. Bogdan var ansi sannfærður um að V-Þjóðverjar myndu vinna Rúmena og Alfreð og Kristján tóku undir þá skoðun og sögðu að þar sem rúmenskur hand- knattleikur ætti lítið af peningum myndu V-Þjóðverjar múta þeim. Því án sigurs ættu V-Þjóðverjar ekki lengur möguleika á A-sæti. Ef V- Þjóðverjar kæmust ekki í A-hóp að nýju væri það ekki einungis mikið tekjutap fyrir þá sjálfa heldur einnig alþjóðlega handknattleikssamband- ið, I.H.F. Flestir styrktaraðilar þess eru þýskir og ef Þjóðverjar ættu ekki lið meðal þeirra bestu myndu margir styrktaraðilar missa áhugann á I.H.F. sem yrði um leið fyrir miklum tekju- missi. Þetta hleypti illu blóði í okkur en maður vildi ekki trúa því að slíkt gæti gerst þvígetulega séð ættu Rúm- enar að sigra V-Þjóðverja. Þegar undirbúningur okkar fyrir leikinn gegn Sviss hófst var leikur Rúmena og Þjóðverja sýndur í sjón- varpinu. Bogdan var illa við að við horfðum á leikinn og sagði að slæm úrslit þar gætu haft áhrif á undirbún- ing okkar. Á sinni venjulegu eftirlits- göngu kom Bogdan inn í herbergi til Jakobs og Júlíusar og sá að þeir voru að horfa á leikinn. Ætlaði hann að banna þeim það en áður en hann vissi af var hann sestur niður hjá þeim til að horfa á leikinn! Leikurinn var þvílík hörmung af hálfu Rúmena að manni blöskraði. Ýmislegt lauslegt 56
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.