Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1989, Page 69

Íþróttablaðið - 01.04.1989, Page 69
Þegar greinarhöfundur átti erindi á skrifstofu HSÍ á dögunum var Bogdan á bak og burt. Vangaveltur um hver myndi taka við sem landsliðsþjálfari voru í algleymingi og menn voru enn hálf-vankaðir eftir sigurvímu B- heimsmeistarakeppninnar. Þegar ég spurði Guðjón Guðmundsson um ár- in á landsliðsbekknum með Bogdan, hallaði hann sér aftur í stólnum og sagði að þetta hefðu verið stórkostleg ár. Ógleymanleg reynsla i A-heims- meistarakeppninni í Sviss, Ólympíu- leikar, hin tíðu keppnisferðalög og hin mikla vinna væru honum ofar- lega í huga. Stærsta stundin hefði þó verið sigurinn í París. Þessi óvænta sigurganga, sem jafnvel bjartsýnustu sveimhugar hefðu ekki átt von á. Að- spurður um hvort hann sæi fyrir sér samstarf á bekknum með Bogdan í öðrum löndum gerðist hann furðu al- vörugefinn, en taldi ekki líklegt að svo yrði. Benti á að ávallt hefði sam- starf þeirra byggstá einu ári í senn og að hann hefði gert sér fulla grein fyrir því að einhvern tíma tæki það enda. Bætti svo við að hann hefði heyrt menn gantast með að Bogdan hefði gengið sér í föður stað, þessi sex ár. Bogdan er þjálfari í nútíð Bogdan hefurstundum veriðgagn- rýndur fyrir að einbeita sér að árangri líðandi stundar. Þannig hefur verið sagt að hann hafi einvörðungu þjálf- að í nútíð og látið sig framtíð liða sinna litlu varða. Með skírskotun til þessa hafa menn einnig viljað út- skýra takmarkaðan áhuga hans á ís- lensku, sem þessi fámenna þjóð virð- ist stundum hafa ákveðið að sé falleg- asta tunga heims. Jafnvel má segja að íslendingarnir hafi á stundum verið móðgaðir vegna sinnuleysis Bogdans gagnvart íslensku. Kannski eru þetta fordómar, en það er staðreynd að slíkar vangaveltur hafa átt sér stað meðal handboltaáhugamanna. Greinarhöfundi hafði lengi langað að kynnast Bogdan aðeins nánar og greip tækifærið fegins hendi þegar hann átti þess kost í upphafi árs, þegar íslendingar fóru í fyrstu keppn- isferðina eftir niðurlægingarskeiðið sem fylgdi í kjölfar Ólympíuleikana. Reyndar eru það óskráð lög í blaða- mannastétt að halda trúnað í slíkum samskiptum og láta ekki allt flakka. Dæmigert þunglynt afsprengi járn- tjaldsins Ymsar hugmyndir Bogdans um handknattleik voru hins vegar svo já- kvæðar að sjálfsagt er að koma þeim á framfæri, auk þess voru þær nánast settar fram í fyrirlestrarformi. Á hótelherbergi í smábæ í Dan- mörku safnast saman forráðamenn íslenska landsliðsins í handknattleik, fréttamaður og tveir þarlendir dóm- arar; Mortensen og Knudsen. Bogd- an Kowalczky landliðsþjálfari birtist skömmu síðar og það er kátt yfir hópnum öllum að honum undan- skildum. Það er verið að fagna sigri á Dönum, en því fylgir alltaf sérstök tilfinning, að leggja frændur okkar að velli og það í „selve Danmark." Bogdan virðist ekki sjá ástæðu til að velta sér upp úr sigri á Dönum og bendir á að nú séum við hærra skrif- aðir en þeir. Hann rifjar þó upp fyrstu árin með landsliðinu þegar við áttum jafnan í nokkru basli með frændur okkar á Norðurlöndum, en telur að nú krefjist menn undantekn- ingarlaust sigurs. Jafnframt gefur hann á sinn alkunna hátt í skyn að íslendingar kunni ekki gott að meta, þar sem árangur landsliðsins undir hans stjórn er. Síðan reyna dönsku dómararnir að koma sér í mjúkinn hjá Bogdan og eru augljóslega á gull- hamraveiðum. Þeir eru eins og svo margir aðrir sammála um að völd IHF-mafíunnar séu allt of mikil, ekki síst í dómaramálum. Smám saman kemur þó í Ijós að þeir mega vel við una, þar sem þeir virðast njóta vel- vildar Eriks Elias og Co. Bogdan ger- 69

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.