Íþróttablaðið - 01.05.1991, Page 22
FRAMUNDAN E R
BARÁTTA
í BÁÐUM DEILDUM
Texti: Þorgrímur Þráinsson
íslandsmótið í knattspyrnu er haf-
ið. Baráttan er byrjuð en svör við
mörgum áleitnum spurningum fást
ekki fyrr en eftir rúma fjóra mánuði.
Baráttan um titla og falldrauga verð-
ur eflaust hatrömm í sumar í öllum
deildum og lítur út fyrir mjög spenn-
andi íslandsmót. Margir hallast að
því að KR-ingar, sem voru nánast
með Islandsbikarinn í höndunum
síðastliðið sumar þar til 7 mínútur
voru eftir af mótinu, muni hampa
bikar að keppnistímabilinu loknu.
Undirritaður kemur til með að sakna
Skagamanna úr 1. deild og í raun
finnst manni það ekki viðeigandi að
ÍA skuli leika í 2. deild — með fullri
virðingu fyrir þeirri deild. ÍA nýtur
það mikillar virðingar í knattspyrnu-
heiminum að 1. deildin án liðsins er
hálf tómleg.
Það er mál manna að baráttan um
Islandsmeistaratitilinn í knattspyrnu
komi til með að standa á milli
Reykjavíkurliðanna þriggja — Fram,
KR og Vals. Önnur lið geta hæglega
blandað sér í þá baráttu en í upphafi
móts tefla þessi þrjú lið fram sterk-
ustu leikmönnunum og þau hafa auk
þess hefðina á bak við sig. íslands-
meistarar Fram hafa reyndar misst
þrjá mikilvæga leikmenn til annarra
liða — þá Guðmund Steinsson, Þor-
stein Þorsteinsson og Arnljót Davfðs-
son. Breiddin hjá Fram er ekki söm
fyrir bragðið en liðið hefur á að skipa
mörgum mjög efnilegum leikmönn-
um. Liðið skoraði 39 mörk ídeildinni
í fyrra og ef einhver fer í skó Guð-
mundar Steinssonar og skorar 10 í
Tveir lykilleikmenn í sínum liðum. Steinar Guðgeirsson, Fram og Saevar
Jónsson, Val.
Umfjöllun um íslandsmótið í knattspyrnu
í 1,- og 2. deild
Er tími KR-inga runninn upp?
Heldur sigurganga Fram áfram?
Sigrar ÍA með yfirburðum í 2. deild?
Verður Hörður markahæstur 3. árið í röð?
Hvaða lið falla?
22