Fréttablaðið - 11.07.2020, Page 8
Reykjavíkurborg efnir til opinnar hönnunar- og framkvæmdasamkeppni um nýjan miðborgarleikskóla
og fjölskyldumiðstöð á suðvesturhluta reits sem afmarkast af Grettisgötu, Njálsgötu, Rauðarárstíg og
Snorrabraut, þar sem Njálsgöturóló hefur verið um árabil. Væntingar eru til þess að hönnun skólans og
fjölskyldumiðstöðvarinnar marki nýja sýn og hugsun í hönnun byggingarinnar hvað varðar vellíðan, virkni
og heilbrigði þeirra sem þar eru við leik og störf.
Keppendur þurfa að skrá sig inn á útboðsvef Reykjavíkurborgar til þátttöku.
Upplýsingar um skráningu, keppnislýsingu og önnur samkeppnisgögn er að finna á
reykjavik.is/honnunarsamkeppni-um-nyjan-midborgarleikskola-og-fjolskyldumidstod.
Þá er opin hugmyndagátt fyrir sjónarmið bæði almennings og fagfólks
og verða þau höfð til hliðsjónar í ferli samkeppninnar.
Tillögum skal skilað fyrir kl. 24, 7. október 2020.
Reykjavíkurborg og Arkitektafélag Íslands
Mynd: Sigurður Ólafur Sigurðsson
NÝTT BRAGÐ
MÖGNUÐ UPPLIFUN!
Áfram skelfingarástand í Wuhan
Íbúum Wuhan hefur verið fyrirskipað að halda sig innandyra vegna f lóða sem hafa þegar tekið hundruð
mannslífa. Mikil úrkoma undanfarna daga orsakar f lóðin. Þessi maður naut þess þó að láta sig f ljóta í vatns-
f laumnum sem rann um Jiangtan-garð og naut þess að vera einn með sjálfum sér – fjarri COVID. MYND/GETTY
BANDARÍKIN Ghislaine Maxwell,
fyrrum unnusta níðingsins Jeffrey
Epstein, óskaði eftir því fyrir hér-
aðsdómstól í New York í gær að
losna úr varðhaldi gegn tryggingu
á meðan hún biði réttarhalds vegna
meintra brota sinna. Maxwell var
handtekin í byrjun júlímánaðar
en hún er grunuð um að hafa gegnt
stóru hlutverki í mansalshring hins
látna auðkýfings.
Maxwell neitar því alfarið að hún
hafi aðstoðað Epstein við að lokka
til hans fórnarlömb sem hann beitti
síðan kynferðisof beldi. Hún lýsti
því yfir að hún hefði ekki hitt auð-
kýfinginn í meira en áratug.
Maxwell er talin hafa verið á
f lótta síðan Epstein var handtekinn
fyrir rúmu ári, en því vísaði hún
einnig á bug. Lögfræðingar hennar
héldu því fram að Maxwell hefðí ein-
göngu yfirgefið sviðsljósið í kjölfar
handtökunnar til þess að vernda sig
og ástvini sína fyrir ágangi fjölmiðla.
Hún hefði ekki yfirgefið Bandaríkin
í rúmt ár og það væri útilokað að hún
myndi reyna að flýja.
Saksóknarar telja þvert á móti
afar líklegt að Maxwell muni reyna
að flýja ef hún fær um frjálst höfuð
strokið. Þá óttast þeir einnig að
Maxwell reyni að stytta sér aldur
og því verði hún að vera undir stífri
öryggisgæslu þar til að réttarhöld-
unum kemur.
Beiðni Maxwell verður tekin fyrir
þann 14. júlí næstkomandi. – bþ
Vill losna úr haldi gegn tryggingu
STJÓRNSÝSLA Lilja Dögg Alfreðs-
dóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, hefur skipað nýtt
Þjóðleikhúsráð til næstu fimm
ára. Halldór Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri og rithöfundur,
verður formaður ráðsins og er hann
skipaður án tilnefningar. Þetta
kemur fram á vef Stjórnarráðsins.
Samkvæmt nýjum lögum um
sviðslistir, sem tóku gildi í byrjun
mánaðarins, er Þjóðleikhúsráð
skipað fimm einstaklingum. Sviðs-
listasamband Íslands tilnefnir þrjá
fulltrúa en ráðherra skipar formann
og varaformann.
„Þjóðleikhúsið á að vera framúr-
skarandi og leiðandi leikhús á
Íslandi. Þjóðleikhúsráð gegnir því
afar mikilvægu hlutverki og því er
ánægjulegt að vera búin að skipa
kraftmikið og drífandi fólk til
næstu fimm ára.“ segir Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og menningarmála-
ráðherra.
Auk Halldórs sitja í ráðinu: Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir fram-
kvæmdastjóri, sem varaformaður
ráðsins skipuð án tilnefningar,
Sjón, Kolbrún Halldórsdóttir og
Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir
voru tilnefnd af Sviðslistasam-
bandinu.
Varamenn eru Jóna Finnsdóttir
og Magnús Árni Skúlason, Sig-
mundur Örn Arngrímsson, Ragn-
heiður Maísól Sturludóttir og María
Ellingsen. – bb
Menntamálaráðherra skipaði
Halldór formann Þjóðleikhúsráðs
Jeffrey Epstein og Maxwell voru eitt sinn kærustupar. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð