Fréttablaðið - 11.07.2020, Page 16

Fréttablaðið - 11.07.2020, Page 16
ÞAÐ HAFÐI NÚ REYNDAR SVOLÍTIL ÁHRIF Á MIG AÐ TALA VIÐ EDDU, ÞVÍ EDDA NÁTTÚRLEGA TRÚIR SVO MIKIÐ Á LÍFRÆNT FÆÐI. Fyrir helgina hófust sýn-ingar á nýrri, íslenskri gamanmy nd, Ömmu Hófí, en þar mætast enn á ný turnarnir tveir sem löngum hafa gnæft yfir íslenska grínsviðinu: Edda Björg- vinsdóttir og Þórhallur Sigurðsson, sem er miklu þekktari sem Laddi. Í myndinni leika Edda og Laddi eldri borgara sem leggjast í banka- rán í ellinni. Gríma Kristjánsdóttir leikur barnabarn Hófíar og tekur undir að þarna sé óhætt að tala um að hún hafi staðið andspænis risum í íslensku gríni. „Algerlega,“ segir hún og rifjar upp gömul kynni af mótleikur- unum sem hún heillaðist af fyrir margt löngu í hlutverkum Stellu og Salómons, í hinni sígildu Stellu í orlofi. Amen eftir orlofinu „Þetta var náttúrlega mjög fyndið af því að það er svo undarlegt með mig og mína fjölskyldu, að við horfðum á Stellu í orlofi og Eddu Björgvins bara eins og kristnir lesa Biblíuna. Eða meira. Ég held við höfum til dæmis horft á hana um hver jól. Alltaf. Ég var sex eða sjö ára þegar ég byrjaði að horfa á hana þannig að sem barn kunni ég hana spjaldanna á milli. Og ég vitna oft í hana í þessum frösum. Ég er ein af þeim,“ segir Gríma, vel meðvituð um að hún er ekki einstakt tilfelli. „Þannig að þetta var mjög fyndið að hitta goðið sitt og þurfa ein- hvern veginn að halda aftur af mér með alla þessa frasa,“ segir Gríma um fyrstu fundi hennar Eddu. „Ég missti einhvern tímann eitt út úr mér, en hún tók ekki eftir því. En það var fyndið.“ Útrætt grín Allt í lífinu hefur tilhneigingu til þess að leita jafnvægis og Stellu vandinn var úr sögunni eftir að leikkonurnar útræddu málið. „En ég meina, svo ræddum við einhvern tímann Stellu í orlofi á settinu og þýðingu hennar í íslenskri kvik- myndasögu og bara svona í kómík yfir höfuð.“ Gríma segir að umræðurnar hafi sprottið upp úr vangaveltum um þráláta tregðu til þess að styrkja framleiðslu grínmynda með fé úr opinberum sjóðum. Þegar talið barst að eðli íslensks gríns hafi svo Stella vitaskuld verið handan við hornið. „Og þarna er ein risastór mynd sem var ekkert sjúklega vel gerð og kvikmyndatakan ekkert best í heimi, en það er bara lífið í henni. Kómíkin og hversdagurinn eða kómíkin í hversdagsleikanum í Stellu í orlofi sem verður svo fyndin. Hún veigraði sér ekkert við að ræða þessa mynd. Alls ekki. Þannig að þá slakaði ég aðeins á og mátti alveg vitna í myndina,“ segir Gríma og hlær. Rétti andinn „Þetta er bara svo hversdagslegt. Þetta kemur fyrir svo marga. Þetta eru náttúrlega svolítið absúrd aðstæður sem koma þarna upp og þarna skipta ekki kvikmynda- takan og peningarnir í myndinni mestu máli heldur andinn og bara leikurinn,“ heldur Gríma áfram og fikrar sig í áttina að þeim göldrum sem geta orðið milli Ladda og Eddu á tjaldinu. „Bara hvað þau ná alltaf mikilli „kemistríu“ saman. Þannig að það eru einhvern veginn sagan og „mómentin“ sem skipta máli í þeirri mynd. Og nú eru þau saman á ný en kannski ekki í alveg jafn hversdags- legum aðstæðum? „Þau eru bara eldra fólk sem kemur á elliheimili og líður ein- hvern veginn eins og þau séu að bíða dauðans og nenna því ekki,“ segir Gríma hlæjandi og bendir þannig á að atburðarás Ömmu Hófí spretti þannig vissulega upp úr hversdags- legum aðstæðum, sem geti af sér „alls konar öðruvísi aðstæður.“ Víkur þá að Grímu þætti Krist- jánsdóttur í af brotasögu ellismell- anna. „Mitt hlutverk í þessu er ekki sérstaklega kómískt og er meira svona að binda persónuna hennar Eddu við hversdagsleikann. Ég er barnabarnið hennar og hún er bara amma. Mannleg kona, skilurðu, sem lenti í alls konar og er búin að missa manninn sinn. Ég er svona meira jörð. Binding í þessari mynd,“ segir Gríma og hlær. „En flækist ein- hvern veginn óvart inn í þetta.“ Lífræn leikflétta Gríma lék í stuttmyndinni Pleisið eftir Jakob Halldórsson 2009 og bíó- myndinni Reykjavík, eftir Ásgrím Sverrisson 2016, en það ár kom hún heim frá námi í Danmörku. „Síðan þá hef ég bara stigið svona frekar létt til jarðar og bara verið í örfáum verkefnum,“ segir Gríma. „Og í vor ákvað ég að taka smá stefnubreytingu og er að fara í garðyrkjunám, í lífræna ræktun. Það hafði nú reyndar svolítil áhrif á mig að tala við Eddu, því Edda náttúrlega trúir svo mikið á líf- rænt fæði,“ segir hún um þann varhug sem mótleikkona hennar geldur við „öllu svona eitri sem við setjum í rauninni í líkamann og sem er náttúrlega stráð yfir allan fjandann. Sýklalyf í allt kjöt og svona. Ef maður sleppir því þá kannski sleppur maður við þessa verstu sjúkdóma sem herja á mannkynið. Eins og krabbamein og Alzheimer og allt það. Það er svo erfitt að rannsaka þetta en ég ákvað bara að demba mér í það, svona í og með. Ég ætla náttúrlega ekki að hætta að leika en ég nennti einhvern veginn ekki að vera lengur svona á kantinum. Það var annað hvort það eða að demba mér í eitthvað annað,“ segir Gríma. „Hann er mettur markaðurinn fyrir leikkonur á Íslandi, þannig að maður verður svolítið að meta þetta. Það er ekki beint hægt að vinna við þetta í fullri vinnu og mig langaði að gera eitthvað.“ Bærilegur léttleiki hversdagsleikans Gríma Kristjánsdóttir leikur barnabarn bankaræningjans ömmu Hófíar, í gamanmynd sem ber nafn aðalpersónunnar sem Edda Björgvinsdóttir leikur, en í henni mætti Gríma æskuhetjunni Stellu Löve og þótti því vissara að missa ekki fleyga Stellu-frasa út úr sér. Gríma Kristjánsdóttir hefur verið létt í spori síðan hún lauk námi og tekur nú lífræna leikfléttu og skellir sér í garðyrkjunám sem hún stefnir á að sinna með leiklistinni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þórarinn Þórarinsson thorarinn@frettabladid.is 1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð HELGIN

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.