Fréttablaðið - 11.07.2020, Page 33
Nánari upplýsingar veitir Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is og Hlynur Atli Magnússon, hlynur@hagvangur.is.
Umsóknir með ítarlegri ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí nk.
Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur verið
leiðandi afl í íslensku tónlistarlífi í 70 ár
og hefur um árabil verið í fremstu röð
hljómsveita á Norðurlöndum. Hljómsveitin
hefur fengið afbragðs dóma jafnt fyrir
hljóðritanir sínar sem og tónleika heima
og erlendis. Hún heldur um 100 tónleika
á hverju starfsári, m.a. áskriftartónleika
með heimsþekktum stjórnendum og
einleikurum, en á einnig samstarf við
listafólk úr öðrum greinum tónlistar.
Vorið 2011 varð Harpa, tónlistar- og
ráðstefnuhús, heimili Sinfóníuhljómsveitar
Íslands. Nánari upplýsingar
á www.sinfonia.is.
VIÐBURÐA- OG SKIPULAGSSTJÓRI
Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) leitar að öflugum viðburða- og skipulagsstjóra í nýtt
starf. Við leitum að skipulögðum aðila sem hefur brennandi áhuga á tónlist, reynslu
af viðburða-, skipulags- og verkefnastjórnun og góða samskipta- og leiðtogahæfni.
Viðburða- og skipulagsstjóri stýrir öflugu teymi á viðburðasviði.
Starfssvið:
• Ábyrgð og umsjón með skipulagningu
og framkvæmd viðburða og tónleikaferða
hljómsveitarinnar
• Ábyrgð á gerð starfsáætlunar SÍ,
kostnaðaráætlunar fyrir viðburðasvið
og uppgjöri viðburða
• Ábyrgð á samningagerð og samskiptum
við listamenn, umboðsskrifstofur,
tónleikahaldara og útgáfufyrirtæki
• Mannaforráð á viðburðasviði SÍ
• Þátttaka í heildrænni stefnumótun SÍ og
ábyrgð á stefnumótun í viðburðahaldi
• Tengslamyndun milli SÍ, Hörpu og alþjóðlegs
tónlistarmarkaðar
• Situr í verkefnavalsnefnd SÍ
og framkvæmdaráði SÍ
• Ýmis tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking á klassískri tónlist og starfsumhverfi
sinfóníuhljómsveita
• Reynsla og þekking á viðburða-, skipulags-
og verkefnastjórnun
• Reynsla af stjórnun og mannaforráðum
• Sterk leiðtogahæfni, framúrskarandi
samskiptafærni og góð samningatækni
• Kostnaðarvitund og reynsla af gerð
kostnaðaráætlana
• Frumkvæði í starfi og sjálfstæð vinnubrögð
• Skipulagshæfni
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta;
bæði í ræðu og riti
• Mjög góð tölvukunnátta
VERKEFNASTJÓRI VIÐBURÐA
Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) leitar að verkefnastjóra viðburða í nýtt starf. Leitað er
að öflugum aðila sem hefur þekkingu og áhuga á klassískri tónlist og starfsumhverfi
sinfóníuhljómsveita, reynslu af verkefna- og viðburðastjórnun, góða samskiptahæfileika
og ríka þjónustulund. Verkefnastjóri viðburða heyrir undir viðburða- og skipulagsstjóra
og starfar í öflugu teymi á viðburðasviði.
Starfssvið:
• Verkefna- og viðburðastýring
• Umsjón með skipulagi hæfnisprófa hjá SÍ
• Aðstoð við skipulagningu tónleikaferða SÍ
• Aðstoð við gerð starfsáætlunar SÍ og við
móttöku og samningagerð við
gestalistamenn
• Umsjón með skráningu í upplýsingakerfi SÍ
• Ýmis tilfallandi störf
Hæfniskröfur:
• Menntun sem nýtist í starfi
• Þekking á klassískri tónlist og starfsumhverfi
sinfóníuhljómsveita
• Reynsla af verkefna- og viðburðastjórnun
• Samskiptahæfni og þjónustulund
• Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð
vinnubrögð
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
• Góð tölvukunnátta
Sterk tengsl
í íslensku atvinnulífi
hagvangur.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 3 L AU G A R DAG U R 1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0