Fréttablaðið - 11.07.2020, Page 56
Næsta þraut var að
skjóta í mark með bolta.
„Ég byrja,“ tilkynnti Kata
ákveðin. „Boltar eru
eitthvað fyrir mig.“
Kata þuri þrjár atrennur
áður en hún hitti í mark
en Lísaloppa bara tvær.
Kata horfði vonsvikin á
boltann sinn og sagði
„Þetta er handónýtur
bolti sem ég hef fengið.“
Lísaloppa brosti bara út í
annað en sagði ekki neitt.
Hér eru þrjár
skugga myndir af
Kötu og Lísuloppu en
aðeins ein þeirra er
nákvæmlega eins og
fyrirmyndin.
Konráð
á ferð og ugi
og félagar
411
Getur þú
séð hver þei
rra
er alveg ein
s,
A, B eða D?
?
?
?
A
B
D
Lausn á gátunni
Svarið er d?
Lestrarhestur vikunnar Arndís Inga
Borgarbókasafnið, Bókmenntaborgin og Bókabeitan efna til sumarlesturs fyrir krakka. Verið velkomin í
bókasafnið í ykkar hverfi og takið þátt í lestrarleiknum. Í hverri viku fær einn heppinn þátttakandi bók að
gjöf og í lok sumarsins er veittur einn veglegur vinningur.
Hvernig bækur þykja þér
skemmtilegastar? Til dæmis
bækur um kisur, bækurnar um
Svörtu kisu eru skemmtilegar.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún?/Hvaða bók var
síðast lesin fyrir þig? Það var
Þín eigin saga 3: Draugagangur,
eftir Ævar Þór Benediktsson.
Hvaða bók ætlarðu að lesa
næst? Ég ætla að lesa Allt í plati
eftir Sigrúnu Eldjárn.
Ef þú myndir skrifa bók, um
hvað væri hún? Ég veit það ekki
alveg, kannski bók um hund. Ég
á sjálf hund sem er fimm ára og
heitir Pjakkur.
Ef þú mættir velja þér persónu
úr bók til að ferðast um Ísland
með, hver væri hún? Engin sér-
stök.
Manstu eftir fyrstu bókinni
sem var í uppáhaldi hjá þér?
Það var bókin Prinsessusögur
og svo Bínu-bækurnar, sem voru
uppáhaldsbækurnar þegar ég
var lítil og svo Jólasveinarnir
sem var lesin fyrir jólin.
Ferðu oft á bókasafnið? Svona
1-2 sinnum í viku og þá í Sól-
heimasafn.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Það er að fara í sund – oftast í
Mosfellslaugina, að fara í Hús-
dýragarðinn og á ströndina í
Nauthólsvík.
Í hvaða skóla ertu? Ég er í Lang-
holtsskóla.
Konráð Sveinn Svafarsson er fimm
ára og verður sex ára í endaðan
ágúst. Hann er ekki í vafa um hvar
er best að eiga heima. Í Grímsey.
Hvað er svona gott við Grímsey?
Bara sumt. Ég get verið meira úti en
inni, því það er meira að gera úti og
það er miklu skemmtilegra að vera
úti en inni. Ég get til dæmis farið í
fjárhúsin.
Áttu kindur? Já, ég og pabbi og afi.
En þær eru uppi á eyju núna.
Ætlið þið þá að heyja í sumar? Nei,
við kaupum bara hey og við eigum
ekki einu sinni heydrasl til að nota.
Við eigum samt alveg túnið hjá fjár-
húsunum og gætum alveg slegið það
eins og fólkið sem átti það áður,
(hann bendir á húsin). Það eru þessi
gulu.
Hvað gerir þú helst á sumrin? Mér
finnst gaman að smíða og fara á
tjörnina. Ég er með jullu , en ég má
ekki fara á hana nema ég sé í vesti
eða með borða.
Kanntu að synda? Ég er að læra það
og er mjög góður að synda með
höndunum en ekki nógu góður með
fótunum. – Mér finnst líka gaman
að grafa og að leita að kríueggjum.
Ertu ekkert hræddur um að krí-
urnar goggi í þig? Nei, kríurnar
þora ekki að gogga í mig. Ég er samt
nánast aldrei með prik, bara húfu.
Hvaða fugla þekkir þú aðra en
kríuna? Lunda, máv, svan, spóa,
hrossagauk, gæs og langvíu og lóu
og tjald og óðinshana. Óðinshan-
arnir eru svo spakir. Þeir eru bara
slakir alveg upp við bátinn á tjörn-
inni þó að ég sé í honum. (Eftir smá
umhugsun). Skemmtilegast er samt
að hjóla. Ég er búinn að hjóla suður í
Borgir í dag, vinur minn er þar. Það
er pínu langt en samt ekkert voða-
lega.
Hvað gerðir þú f leira í dag en
að hjóla? Ég fór á bryggjuna með
mömmu að landa. Það er svo margt
að gera þó þetta sé lítil eyja, því þeir
sem eru hérna þurfa að gera allt. Það
er svoleiðis.
Þess má geta að stuttu eftir við-
talið brunar Konráð Sveinn fram-
hjá blaðamanni á sexhjóli með
foreldrum sínum og kallar: „Ég er
að fara upp á eyju að skoða folaldið
okkar. Það fæddist í nótt.“
Kríurnar
þora ekki að
gogga í mig
ÉG ER BÚINN AÐ
HJÓLA SUÐUR Í
BORGIR Í DAG, VINUR MINN ER
ÞAR. ÞAÐ ER PÍNU LANGT EN
SAMT EKKERT VOÐALEGA.
Konráð Sveinn Svafarsson er eina barnið í Grímsey. FRÉTTABLAÐIÐ/GUNNÞÓRA
1 1 . J Ú L Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R28 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR